Fjármálaráðherra vill opna ársreikninga, hluthafa- og fyrirtækjaskrár

Árs­reikn­ingar, hlut­hafa­skrár og fyr­ir­tækja­skrár ættu að vera öllum opnar. Þetta kom fram í máli Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í sér­stakri umræðu um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og tekju­tap hins opin­bera.

Það var Smári McCarthy, þing­maður Pírata, sem vakti máls á þessu í umræð­unni og spurði fjár­mála­ráð­herra hvort honum þætti rétt að opna fyr­ir­tækja­skrá, árs­reikn­inga­skrár og hlut­hafa­skrár upp á gátt. Þetta hafi meðal ann­ars verið gert í Bret­landi nýlega. Með svona aðgerðum væri hægt að vinna beint gegn skattaund­anskotum.

„Ég tel að allar þessar skrár eigi að vera að vera opnar og vil bæta því við að ég tel að það eigi að vera gagn­sætt eign­ar­hald, þannig að það sé ekki bara sagt að það séu ein­hver félög sem eigi önnur félög. Það á að koma fram hver hinn end­an­legi eig­andi er,“ sagði Benedikt.

Það var Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, sem var máls­hefj­andi í umræð­unni í dag. Hún spurði Benedikt um það til hvaða aðgerða hann hygð­ist grípa vegna afland­svæð­ingar og skattaund­an­skota. Hvort hann hygð­ist láta skoða málin betur, láta safna frek­ari gögnum og gera málið að því for­gangs­máli sem það eigi að vera í stjórn­sýsl­unni.

Benedikt sagði málið vera í for­gangi og að hann myndi grípa til víð­tækra ráð­staf­ana. Hann sagð­ist meðal ann­ars hafa farið í heim­sóknir til rík­is­skatt­stjóra, skatt­rann­sókn­ar­stjóra og toll­stjóra á sínum fyrstu dögum í ráðu­neyt­inu. Hann vilji fá til­lögur frá þessum stofn­unum inn í aðgerðir stjórn­valda gegn skatta­skjólum. Einnig sagði hann að til­lögur sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld, um ein­földun skatt­kerf­is­ins, vera í virkri skoðun í ráðu­neyt­inu.

Katrín og fleiri stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn minnt­ust á að svör ráð­herra væru ekki nægi­lega skýr um málið. Það væri ekki nóg að fara í heim­sóknir til und­ir­stofn­ana og biðja þær um til­lögur. „Ég get alveg tekið undir það hjá mörgum hátt­virtum þing­mönnum að auð­vitað voru mín svör til­tölu­lega þunn. Ég er bara ekki kom­inn lengra í þessu máli og ég þekki mála­flokk­inn ekki nægi­lega vel og þess vegna leita ég til sér­fræð­inga og und­ir­stofn­ana til þess að kynna mér málið betur, en málið mun verða sett í for­gang,“ sagði Benedikt í seinni ræðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár