Heimilum í vanskilum fækkað

Árið 2016 höfðu um sjö af hverjum hund­rað heim­ilum ekki getað greitt hús­næð­is­lán eða húsa­leigu á réttum tíma ein­hvern tím­ann á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum vegna fjár­hags­erf­ið­leika. Þetta kemur fram í Lífs­kjara­rann­sókn Hag­stof­unnar.

Árið 2016 höfðu um sjö af hverjum hund­rað heim­ilum ekki getað greitt hús­næð­is­lán eða húsa­leigu á réttum tíma ein­hvern tím­ann á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum vegna fjár­hags­erf­ið­leika. Þetta kemur fram í Lífs­kjara­rann­sókn Hag­stof­unnar.

Um 8 pró­sent heim­ila með börn höfðu þá verið í van­skilum með hús­næð­is­kostnað, um 7 pró­sent með aðra heim­il­is­reikn­inga, svo sem inter­net eða raf­magns­kostnað, og 9 pró­sent verið í van­skilum á öðrum lánum en ein­ungis 4 pró­sent heim­ila án barna. Um 13 pró­sent heim­ila voru í ein­hvers konar van­skilum árið 2016 sem er tölu­verð fækkun frá árinu 2010 þegar þetta hlut­fall var um 19 pró­sent.

Hlutfall íbúa í vanskilum minnkað

Þegar íbúar heim­ila eru skoð­aðir kemur í ljós að í heild hefur hlut­fall lands­manna í ein­hvers konar van­skilum minnkað úr 20 pró­sent árið 2010 í 13 pró­sent árið 2016. Þar sem heim­ili með börn eru hlut­falls­lega lík­legri til að vera í ein­hvers konar van­skilum er hlut­fallið hærra á meðal barna en þeirra sem eru 18 ára og eldri. Árið 2016 reynd­ust 19 pró­sent barna búa á heim­ilum í ein­hvers konar van­skilum á móti 12 pró­sent full­orð­inna. Það er tölu­verð breyt­ing frá árunum eftir efna­hags­hrun þar sem hlut­fall barna sem bjuggu á heim­ilum í ein­hvers konar van­skilum fór hæst í 28 pró­sent árið 2011 á móti 18 pró­sent full­orð­inna.

Þriðjungur erfitt með að ná endum saman

Ríflega þriðj­ungur heim­ila á Íslandi, 36 pró­sent, áttu erfitt með að ná endum saman árið 2016 en það er tals­verð fækkun frá 2011 þegar um helm­ingur heim­ila átti erfitt með að ná endum saman.

Með sama hætti gat um þriðj­ungur heim­ila, 33 pró­sent, ekki mætt óvæntum en nauð­syn­legum útgjöldum árið 2016 án þess að grípa til sér­stakra ráð­staf­ana.

Um 60% heimila eru án barna

Samkvæmt nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sókn­ar­innar voru sex af hverjum tíu heim­ilum án barna árið 2016, 17 pró­sent allra heim­ila voru heim­ili ein­stæðra karla, um 14 pró­sent heim­ili ein­stæðra kvenna og um 31 pró­sent sam­sett af tveimur eða fleiri full­orðnum ein­stak­lingum. Þegar litið er til heim­ila með börn þá reynd­ust ein­stæðir for­eldrar vera 7 pró­sent allra heim­ila en heim­ili sem sam­sett eru af tveimur eða fleirum full­orðnum ásamt börnum vera um 31 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár