Sundrað Bretland: Mjög líklegt að Skotar kjósi aftur um sjálfstæði

Bretar hafa ákveðið að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu. Skotar hyggj­ast krefj­ast nýrrar atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði sitt frá Bretum. Þjóðin er klofin í tvennt því 51,9% kusu úrsögn í þjóð­ar­kvæða­greiðsl­unni í gær. 48,1% kusu með áfram­hald­andi aðild.

Bretar kusu með því að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið í sögu­legri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið í gær. Úrslitin urðu ljós í morgun og sýna gríð­ar­lega skipt­ingu milli svæða í Bret­landi. Í öllu Skotlandi, á Norður-Írlandi og í höf­uð­borg­inni London var yfir­gnæf­andi meiri­hluti kjós­enda fylgj­andi því að halda áfram í ESB, en fyrir utan London var meiri­hluti fyrir útgöngu úr ESB víð­ast hvar í Englandi. 62% Skota vildu halda áfram í ESB, 55,8% N-Íra og 59,9% íbúa London. Annars staðar í Englandi vildur 57% yfir­gefa ESB og 52,5% íbúa í Wales.

Á end­anum voru þeir sem vildu áfram­hald­andi veru Bret­lands í ESB rétt undir 48% og þeir sem vildu yfir­gefa ESB rétt undir 52%.

Það er ekki hægt að segja annað en að Bretland sé sundrað. Mjög skiptar skoð­anir voru um þetta risa­stóra mál, ekki aðeins eftir svæðum, heldur líka eftir aldri, menntun og tekjum. Um það bil þrír af hverjum fjórum kjós­endum í yngsta kjós­enda­hópnum vildu áfram­hald­andi veru í Evr­ópu­sam­band­inu á meðan meiri­hlut­inn í elsta kjós­enda­hópnum vildu yfir­gefa það.

Stóru flokk­arnir eru líka sundraðir eftir harða kosn­inga­bar­áttu þar sem skoð­anir voru skiptar innan flokka.

Úrslitin komu veru­lega á óvart þar sem skoð­ana­kann­anir höfðu bent til þess í gær að Bretar myndu kjósa með áfram­hald­andi veru sinni í ESB.

[adspot]

Kosn­inga­þátt­takan í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í gær var með mesta móti, og hefur ekki verið meiri í nokkrum kosn­ingum und­an­farna ára­tugi. 72,2% kjör­sókn var, sem er samt lægra en í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Skota árið 2014 þegar þeir ákváðu að vera áfram hluti af Bret­landi. Þá fór kjör­sókn í 84,6%.

Mjög líklegt að Skotar kjósi aftur

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, segir að henni finn­ist mjög lík­legt að þess verði kraf­ist að skoska þingið hafi mögu­leik­ann á því að boða til ann­arrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands. Það gæti gerst innan tveggja ára, á sama tíma­bili og samið verður um sam­band Bret­lands við Evr­ópu­sam­bna­dið. Hún sagði þó nauð­syn­legt að stíga var­lega til jarðar, hún ætl­aði að byrja á því að ræða við Evr­ópu­sam­bandið um alla mögu­leika á því að halda Skotlandi innan ESB. Það væri skýr vilji Skota að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu.

Alex Salmond, fyrr­ver­andi fyrsti ráð­herra Skotlands og núver­andi þing­maður fyrir Skoska þjóð­ar­flokk­inn, hefur sagt að nú verði Skotar að halda aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði sitt.

Svartur föstudagur á mörkuðum

Þessi óvæntu úrslit höfðu strax veru­leg áhrif á mark­aði. Sterl­ingspundið hefur hrunið og er nú lægra en verið hefur í yfir 30 ár. Hluta­bréfa­verð hefur einnig hrunið, og áhrif­anna gætir á mörk­uðum um allan heim.

Eftir að Mark Carney seðla­banka­stjóri gaf frá sér yfir­lýs­ingu fyrir skömmu hefur ástandið róast eitt­hvað og verð hækkað á ný. Þó er það enn þannig að FTSE 100 vísi­talan er 274 stigum lægri en í gær, eða 4,3%, sem er gríð­ar­leg lækkun og þurrkar út um 70 millj­arða króna. Heims­mark­aðs­verð á olíu lækk­aði um 4,8 pró­sent.

Cameron segir af sér

David Cameron til­kynnti snemma í morgun að hann ætlar að hætta störfum eftir að ljóst varð að hans mál­staður varð undir í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni um áfram­hald­andi veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu.

Cameron hélt blaða­manna­fund þar sem hann sagði að Bretar ættu að vera stoltir af því að í Bret­landi væri almenn­ingi treyst fyrir því að taka ákvörðun af þessu tagi. Það yrði að virða vilja meiri­hlut­ans, og nú ættu allir að leggj­ast á eitt til að láta þetta ganga upp. Hann óskaði and­stæð­ing­unum til ham­ingju með vel heppn­aða kosn­inga­bar­áttu og þakk­aði þeim sem unnu að bar­átt­unni fyrir því að vera áfram í ESB.

Þá gerði hann líka til­raun til að róa mark­aði og sagði efna­hag Breta mjög sterkan og það hefði ekki breyst. Pundið hefur fallið veru­lega það sem af er morgni og sömu sögu er að segja af hluta­bréfa­verði. Hann reyndi líka að róa ein­stak­linga sem eru í óvissu með sína stöðu, Breta sem búa í öðrum Evr­ópu­sam­bands­ríkjum og Evr­ópu­búa sem búa í Bret­landi, og sagði að á næst­unni yrði engin breyt­ing á þeirra högum.

Cameron sagði nauð­syn­legt að fá nýja for­ystu til þess að fylgja eftir þess­ari breyttu stöðu Bret­lands. Hann ætli þó að starfa áfram í milli­tíð­inni og muni fara á fund Evr­ópu­sam­bands­ins í næstu viku. Miða ætti við að nýr for­sæt­is­ráð­herra sé kom­inn til starfa eftir nokkra mán­uði, helst fyrir lands­fund Íhalds­flokks­ins í októ­ber.

Leiðtogar í Evrópu í sjokki

Leið­togar hinna 27 aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins hafa allir lagt áherslu á sam­stöðu Evr­ópu­ríkja í kjöl­far Brexit. Evr­ópu­sam­bandið megi ekki lið­ast í sundur heldur þurfi að gera úrsögn Breta að tæki­færi fyrir sam­bandið að breyt­ast. Donald Tusk, for­seti Evr­ópu­ráðs­ins, sagði að þessi 27 ríki væru ákveðin í að standa saman þó Bretar hætti. Tusk sat svo neyð­ar­fund eins og Martin Schulz, for­seti Evr­ópu­þings­ins, og Jean Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB.

Leið­togar stærstu Evr­ópu­ríkja sátu neyð­ar­fundi með sínum helstu ráð­gjöfum í morgun. Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, sat þannig fund í Berlín og Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, í París. Þau gáfu sér svo tíma til að upp­lýsa fjöl­miðla í kjöl­farið.

Merkel lagði áherslu mik­il­vægi sterkrar Evrópu. Evr­ópu­sam­bandið hafi verið stofnað til það halda frið í stríðs­hrjáðri álfu. Hún sagði mik­il­vægt að standa við þessi sömu gildi í dag og fyrir um 70 árum þegar Evr­ópu­sam­run­inn hófst. „Það er engin leið að snúa þessu við. Þetta er mikið högg fyrir Evrópu,“ sagði Merkel. Það skipti hins vegar máli hvað ríkin 27 sem eftir standa gera á næstu dögum, mán­uðum og árum.

Á Ítalíu lagði Matteo Renzi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, áherslu á að ESB þyrfti að verða „mann­legra og rétt­lát­ara“. Utan­rík­is­ráð­herrar sex stofn­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins munu hitt­ast í Berlín á morgun, laug­ar­dag og ræða stöð­una. Stofn­ríkin eru Þýska­land, Frakk­land, Holland, Ítalía, Belgía og Lúx­emburg. Þá hefur Evr­ópu­þingið veirð kallað saman á sér­stakan þing­fund á þriðju­dag til að ræða nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar í Bret­landi.

Frétta­skýr­ingin verður upp­færð eftir því sem frek­ari tíð­indi ber­ast. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár