Davíð Oddsson: Geir H. Haarde tók ákvörðunina um að lána Kaupþingi

Davíð Oddsson, fyrrum seðla­banka­stjóri og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, segir að þar sem gjald­eyr­is­vara­forði Seðla­banka Íslands í októ­ber 2008 var til­kom­inn vegna skulda­bréfa­út­gáfu rík­is­sjóðs litu banka­stjórar Seðla­bank­ans svo á að það það yrði að vera vilji rík­is­stjórn­ar­innar, ekki bank­ans, sem réði því hvort Kaupþing fengi hann nán­ast allan að láni 6. októ­ber 2008. Hann tjáir sig um inni­hald sím­tals sem hann átti við Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vegna lán­veit­ing­ar­innar þennan dag þar sem hún er ákveðin í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins í dag. Upptaka er til að sím­tal­inu en ekki hefur feng­ist leyfi hjá Geir til að gera hana opin­bera.

Í Reykja­vík­ur­bréf­inu segir: „Þeir sem báðu um aðstoð­ina [Kaupþing] héldu því fram, að rík­is­stjórnin vildi að þessi fyr­ir­greiðsla yrði veitt. Þess vegna fór sím­talið við for­sæt­is­ráð­herr­ann fram. Til­viljun réð því að það sím­tal var hljóð­ritað. Þess vegna átti fyr­ir­greiðslan sér að lokum stað gegn alls­herj­ar­veði í banka sem tal­inn var standa mjög ríf­lega undir því.“

Vinstri stjórn að kenna að lánið fékkst ekki endurgreitt

Lán­veit­ingin til Kaup­þings var upp á 500 millj­ónir evra. Bankinn var yfir­tekin af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu þremur dögum eftir veit­ingu láns­ins og

skatt­greið­endur hafa tapað 35 millj­örðum króna á veit­ingu láns­ins

.

Davíð segir að það hafi verið rík­is­stjórn Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar að kenna að ekki inn­heimt­ist meira af lán­inu, en hún hafi séð um með­ferð og sölu á veð­inu sem tekið var fyrir því, danska bank­anum FIH. „Það hefur öllu ráðið um það hversu vel veðið hefur reynst. Þeir, sem flæmdir voru frá S.Í. með póli­tísku offorsi af því tagi, sem hafði verið óþekkt í ára­tugi á Íslandi, fengu engu um það ráðið. Ábyrgðin á því er ann­arra.

Bankinn FIH er enn starf­andi og laus­leg skoðun á eigin fé bendir til að hann sé enn mun meira virði en veð­skuldin var. Þeir sem eiga bank­ann nú virð­ast því mega vera mjög ánægðir með við­skipti sín við Seðla­banka Íslands.“

FIH bank­anum var reyndar lokað vorið 2014. 2/3 hluti af við­skiptum bank­ans, alls um 900 við­skipta­vinir, voru seld til Spar Nord. Í frétt á vefnum finanswatch.dk á þessum tíma sagði orð­rétt: „FIH er hættur að leika banka“. Eina starf­semi FIH sem hélt áfram að vera til var fyr­ir­tækja­ráð­gjöf bank­ans.

Davíð segir að hann hafi aldrei verið spurður út í sím­talið við Geir allan þann tíma sem „hin bjána­lega umræða“ um það hefur staðið yfir né hvort hann væri því mót­fall­inn að sím­talið yrði birt. Það væri í raun­inni dul­ar­fyllra en sím­talið sjálft.

Jón Ásgeir og spunameistarar

Tilefni skrifa Davíðs er umfjöllun fjöl­miðla um Al Thani dóm­inn. Hann rifjar upp orð Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar um að hann hefði á sínum tíma eytt millj­örðum króna í að verj­ast í efna­hags­brota­málum. „Einungis örfáir menn í heim­inum ráða við slíkt. Ekki var hinn mikli kostn­aður sund­ur­greindur, en það blasir við að jafn­vel mynd­ar­legir lög­manns­reikn­ingar dýr­seldra lög­manna tóku aðeins til sín brot af slíkri ógn­ar­fjár­hæð. Vafa­lítið er að drjúgum hluta hennar var í því til­viki varið til kaupa á þjón­ustu fjöl­menns liðs spuna­meist­ara og það þótt engir ákærðir í nokkru máli á Íslandi hafi haft annan eins aðgang að fjöl­miðlum og sá sem í hlut átti og beitt þeim jafn frek­lega og gert var í þessu máli.“

Davíð fer yfir hvernig umfjöllun um Al Thani málið í Morg­un­blað­inu hafi borið höfuð og herðar yfir umfjöllun ann­arra miðla og hversu „skrýtið“ það hafi verið hvað áhugi Frétta­blaðs­ins á mál­inu hafi verið dræmur. „Dómurinn var for­síðu­frétt á föstu­dag og frekar um hann fjallað á inn­síðu (þar sem mynd af Óla spes var innan um myndir af hinum dæmdu!), en svo ekk­ert meir. Allir aðrir almennir frétta­miðlar eru enn að gera sér mat úr dómnum, sem flestum ber saman um að muni vera víð­tækt for­dæmi í öðrum málum.

Það tóku svo sann­ar­lega fleiri eftir þessu. Það gat ekki farið fram hjá neinum að milli­stjórn­endur á miðlum 365 lang­aði ber­sýni­lega til þess að lág­marks­kröfur um fag­lega blaða­mennsku fengju notið sín. En það fór heldur ekki á milli mála að snar­lega var gripið í taumana. Til að fela vand­ræða­gang­inn við það að kæfa umræð­una var reynt að drepa henni á dreif. Og var þá ekki rétt­ast að byrja rétt einu sinni spunann um það þegar „gjald­eyr­is­forð­inn var gef­inn Kaup­þingi“ eins og það er gjarnan orðað og svo undr­un­ar­hrópin um það, af hverju megi ekki spila sam­talið á milli for­sæt­is­ráð­herr­ans og seðla­banka­stjór­ans!“

Þráhyggja og andúð þeirra sem vilja heyra símtalið

Davíð snýr sér síðan að frétta­stofu RÚV og gagn­rýnir hana fyrir að taka upp umfjöllun um sím­talið fræga. „Þarna var ótrú­lega langt seilst í þrá­hyggju sinni og andúð. Því í einum af lengstu dómum í sögu Hæsta­réttar Íslands er ekki minnst á þetta mál.

Og ekki var hægt að segja að neitt nýtt hefði gerst í þessu atriði síðan fjár­laga­nefnd undir for­ystu Björns Vals Gísla­sonar fjall­aði um þetta mál í heilan vetur og vant­aði þá ekki áhuga Frétta­stof­unnar.

Öll sú mikla rann­sókn end­aði með því að Björn Valur og meiri­hluti hans suðu saman stuttan áróð­ur­spistil, sem hefði ekki getað orðið ómerki­legri, þótt hann hefði verið settur saman í vetr­ar­byrjun, áður en allur leik­ara­skap­ur­inn hófst, sem engu skil­aði.

„Frétta­stofan“, sem fylgd­ist áköf og gagn­rýn­is­laust með þessum hall­æristil­burðum helsta lið­þjálfa Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, tók þó aldrei eftir því, að allan vet­ur­inn sem fjár­laga­nefndin fimb­ul­fambaði um þetta bað hún seðla­banka­stjórn­ann, sem allt gekk út á að ófrægja, aldrei um að koma á sinn fund og gera grein fyrir mál­inu. Sjálf­sagt vegna þess, að þá hefði ekki þurft fleiri fundi“.

Segir Jón Ásgeir hafa beitt fjölmiðlum sínum

Davíð segir að málið hafi ekki verið flókið. Reynt hafi verið að bjarga Glitni, sem hafi verið nán­ast gjald­þrota, með því að leysa hluta af eign­ar­haldi hans til rík­is­ins, enda talið að ef einn banki færi myndu lík­lega allir fara. „Ekki var heldur talið úti­lokað að rík­is­sjóður kynni að hafa bol­magn til að bjarga einum banka. Ef reikn­ingar Glitnis og upp­lýs­ingar um lána­línur og fleira væru réttar, þótti ekki von­laust að honum mætti hugs­an­lega bjarga. Tækist það væri ekki víst að áhlaup yrði gert á hina. Síðar komu auð­vitað gleggri og verri upp­lýs­ingar í ljós. En svo urðu þau undur, að aðal­eig­andi þessa banka á fallandi fæti (og helsti skuld­ari hans og allra hinna bank­anna) ákvað að reyna að beita fjöl­miðla­veldi sínu og póli­tískum áhrifum, einkum í Sam­fylk­ing­unni, til að knýja fram betra boð frá rík­is­stjórn­inni. Hann dró því að boða til hlut­hafa­fundar. Þar með voru örlög Glitnis inn­sigluð. Veru­leikafirr­ingin var algjör. Atbeini rík­is­ins kom því ekki til.

Því mun hafa verið talið að svig­rúm kynni að verða til þess að bjarga næsta banka sem rið­aði, Kaup­þingi, enda létu eig­endur hans þannig að með til­tek­inni aðstoð héld­ist hann á réttum kili. Því héldu for­svars­menn Lands­bank­ans einnig fram um sinn banka og hafa síðar sumir full­yrt að ákveðið hafi verið að kosta því svig­rúmi sem til var til að bjarga Kaup­þingi fremur en L.Í. En þegar þarna var komið og eftir að hafa séð inn­viði Glitnis var stjórn­völdum lands­ins orðið ljóst, að áhættan við björg­un­ar­að­gerðir var mjög mikil. L.Í. hafði ekki veð fram að bjóða gegn þeirri aðstoð sem for­svars­menn bank­ans héldu fram að myndi duga þeim til bjargar. Síðari tíma vit­neskja gerir það að vísu ekki trú­verð­ugt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár