Seðlabanki Evrópu boðar enn eina fjárinnspýtinguna – Léttir á mörkuðum

Fjár­festar róuð­ust þegar Seðla­banki Evrópu boð­aði örv­un­ar­að­gerðir. Áhyggjur eru enn af gangi mála, til lengri tíma litið.

Eftir miklar lækk­anir á mörk­uðum í gær, þar sem tölur sáust sem sjaldan sjást þegar þróun mála á einum degi er ann­ars vegar, þá er annað uppi á ten­ingnum í dag. Framan af degi voru flestar tölur rauðar, og áfram­hald­andi lækkun á hluta­bréfum og olíu í kort­unum. Hluta­bréf á helstu þró­uðu mörk­uðum heims­ins féllu um að með­al­tali 3,3 pró­sent í gær, sam­kvæmt fréttum Wall Street Journal, og verð á hrá­olíu féll um sext pró­sent.

Draghi til bjargar

Um miðjan dag í dag, skömmu fyrir 14:00, birt­ist yfir­lýs­ing frá Maro Draghi, banka­stjóra Seðla­banka Evrópu, þar sem opnað var á þann mögu­leika að bank­inn myndi grípa til örv­un­ar­að­gerða í mars næst­kom­andi, með fjárinn­spýt­ingu á mörk­uðum og útfærðum aðgerðum til að bæta verð­bólgu­skil­yrði og örva hag­vöxt í Evrópu.

Þessar fréttir fóru eins og eldur í sinu um markði, og unnu aug­ljós­lega gegn frek­ari lækk­unum. Svo virð­ist mark­aðir hafi verið í mik­illi þörf fyrir „róandi“ skila­boð frá seðla­bönkum, og því var þessum ann­ars óljósu tíð­indum frá Draghi vel tekið. Áhrifin á mark­aði eru lík þeim sem áttu sér stað á árunum 2010 og 2012, þegar Seðla­banki Evrópu til­kynnti um örv­un­ar­að­gerðir til að ýta undir auk­inn hag­vöxt.

Dagslækkunin á olíu gengið til baka

Olíuverð þaut upp, og hefur lækk­unin frá því í gær, um sex pró­sent, að mestu gengið til baka í dag. Verðið er nú rúm­lega 29 Banda­ríkja­dalir á tunn­una. Fyrir fimmtán mán­uðum var það í 115 Banda­ríkja­dölum, svo lækk­unin hefur verið hröð og mikil, rúm­lega 70 pró­sent. Spár gera jafn­vel ráð fyrir því, að tunnan geti fari í 20 dali á þessu ári.

Undirliggjandi ótti

Þrátt fyrir miklar sveiflur á verð­bréfa- og eigna­mörk­uðum í byrjun árs­ins, hálf­gerða rús­sí­ban­areið, þá er ekki víst að yfir­lýs­ingar seðla­banka um að gripið verði til örv­un­ar­að­gerða muni stuðla að til­trú hjá fjár­festum til lengdar.

Sér­stak­lega eru það veikar hag­vaxt­ar­tölur í Kína sem valda áhyggjum, en þar er nú minnsti hag­vöxtur sem mælst hefur í ald­ar­fjórð­ung, um sjö pró­sent í fyrra. Þá eru ein­stakir geirar í hag­kerf­inu, sem skipta mörg við­skipta­lönd í Evrópu miklu máli, einnig með dökkar horfur. Bílasala er minni en spár gerðu ráð fyrir, miklar sveiflur hafa ein­kennt verð­bréfa­mark­aði og fast­eigna­mark­að­ur­inn er að ganga í gegnum mikla dýfu, frá því sem áður var. Mörgum kann að finn­ast það ein­kenni­legt, að sjö pró­sent hag­vöxtur sé merki um að eitt­hvað sé að í Kína, en þannig er það nú samt, þar sem þetta fjöl­menn­asta ríki heims­ins, með 1,4 millj­arða íbúa, er að ganga í gegnum miklar inn­viða­breyt­ingar sem kalla á mik­inn hag­vöxt. Og það sama má segja um aukn­ingu á alþjóð­legum við­skiptum, sem hefur verið nær stans­laus í ald­ar­fjórð­ung.

Vandamál hrannast upp

Ríki sem eiga mikið undir olíu­við­skiptum, eins og Brasilía, Noregur, Rússland og Nígería, eru nú að ganga í gegnum mis­jafn­lega djúpar efna­hagslægðir. Í Noregi hefur dregið úr eft­ir­spurn og sam­dráttur í olíu­iðn­aði í land­inu er þegar orð­inn tölu­verður. Í ljósi þess hve þjón­usta við olíu­fram­leiðslu er stór atvinnu­vegur í Noregi, með meira en 30 þús­und starfs­menn, þá má gera ráð fyrir að þetta ár muni ein­kenn­ast af hag­ræð­ingu og sam­drætti í þeim anga hag­kerf­is­ins. Það kemur ekki síst við Rogaland, þar sem Stavan­ger er stærsta borgin. Statoil er með höf­uð­stöðvar sínar þar, og mörg fyr­ir­tæki í olíu­iðn­aði sömu­leiðis. Rúmlega fimm þús­und Íslend­ingar búa á því svæði, af um tíu þús­und Íslend­ingum sem búa í Noregi.

Flestar spár gera ráð fyrir að þreng­ingar séu framundan á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum á þessu ári, en eins og ávallt þá er erfitt að sjá fyrir hvernig skamm­tíma­sveifl­urnar verða á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár