FEB: Sú óréttláta skerðing sem viðgengst í dag stuðlar að fátækt meðal eldri borgara

Félag eldri borg­ara fagnar kröfu stétt­ar­fé­laga og sam­banda innan ASÍ um að stigið verði ákveðið skref til lækk­unar á skerð­ingu almanna­trygg­inga úr 45 pró­sent í 30 pró­sent vegna líf­eyris frá líf­eyr­is­sjóðum.

Félag eldri borg­ara fagnar fram­kominni kröfu stétt­ar­fé­laga og sam­banda innan ASÍ um að stigið verði ákveðið skref til lækk­unar á skerð­ingu almanna­trygg­inga úr 45 pró­sent í 30 pró­sent vegna líf­eyris frá líf­eyr­is­sjóðum. Þetta var sam­þykkt á aðal­fundi félags­ins í gær, 19. febr­úar, og greint frá í til­kynn­ingu sem send var út í dag.

„Sú órétt­láta skerð­ing sem við­gengst í dag á sér ekk­ert for­dæmi í þeim löndum sem við berum okkur saman við og stuðlar að fátækt meðal eldri borg­ara og rýrir traust á líf­eyr­is­sjóðum,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Einnig leggur FEB áherslu á að tryggður verði jöfn­uður milli líf­eyr­is­þega gagn­vart almanna­trygg­ingum, vegna líf­eyris frá líf­eyr­is­sjóðum sem til­kom­inn sé vegna skyldu­ið­gjalds, hvort sem líf­eyrir komi úr sam­trygg­ingu eða sér­eign.

Félagið leggur jafn­framt allt traust sitt á að ASÍ fylgi kröf­unni fast eftir í við­ræðum við stjórn­völd og ekki verði hvikað frá henni fyrr en ásætt­an­leg nið­ur­staða fáist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár