Ólík ummæli ráðherra rýri trúverðugleika Íslands

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu fjár­mála­ráð­herra fyrir orð hans í við­tali við Financial Times. Ráð­herr­ann seg­ist hafa verið að lýsa þeim mögu­leikum sem nýskipuð pen­inga­stefnu­nefnd myndi skoða.

Katrín Jakobsdóttir og Benedikt Jóhannesson.
Katrín Jak­obs­dóttir og Benedikt Jóhann­es­son. Mynd: Samsett mynd

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar spurðu Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herraum við­tal sem hann fór í hjá Financial Times á dög­unum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Í við­tal­inu var haft eftir honum að núver­andi ástand í pen­inga­mála­stefnu Íslands væri óverj­andi og til skoð­unar væri að tengja krón­una við annan gjald­miðil.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, sagði að í kjöl­farið hafi Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hlaupið upp til handa og fóta til að bera til baka orð Bene­dikts. „Telur hæst­virtur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að krytur hans og hæstv. for­sæt­is­ráð­herra í alþjóð­legum miðlum auki trú­verð­ug­leika íslensks efna­hags­lífs?“ spurði Katrín Jak­obs­dóttir hann. „Telur hann slíkar yfir­lýs­ingar sam­ræm­ast stöðu sinni sem ráð­herra fjár­mála og efna­hags­mála?“

Benedikt sagði að hann hefði verið spurður að því hvert verk­efni nýskip­aðrar pen­inga­stefnu­nefndar yrði. „Ég skýrði það að verk­efni nefnd­ar­innar væri í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála að finna pen­inga­stefnu sem myndi leiða til stöðugra gengis á íslensku krón­unni og hvaða leiðir væri hægt að fara að því marki. Þá nefndi ég m.a. að Viðreisn hefði bent á mynt­ráð í bar­átt­unni fyrir kosn­ing­arnar. Að hægt væri að tengja íslensku krón­una ýmsum stórum gjald­miðlum. Þeir sem kæmu þá til greina væru Banda­ríkja­dalur, breska pundið eða evran og ég teldi að evran væri þar lang­væn­leg­asti kost­ur­inn.“

Hann sagði þetta eitt af því sem yrði vænt­an­lega skoðað í nefnd­inni, og að hann gerði engar athuga­semdir við það að for­sæt­is­ráð­herra segði þetta ekki yfir­vof­andi. „Nefndin er ekki búin að skila nið­ur­stöðu. Þegar hún skilar nið­ur­stöðu munum við vinna úr þeim.“

Katrín ítrek­aði þá spurn­ingu sína um hvort þessi skoð­ana­á­grein­ingur jyki trú­verð­ug­leika íslensks efna­hags­lífs. Benedikt sagð­ist hafa skýrt það hvernig málið hafi komið til og hann gæti ekki borið ábyrgð á því hvernig það væri túlkað. „Það er hins vegar vitað að ekki eru allir sam­mála um þessa pen­inga­stefnu. Ég veit að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki nákvæm­lega sömu áherslur og ég. En það sannar í raun og veru bara það að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ekki útibú frá Viðreisn eins og sumir virð­ast halda.“

Lilja: Viðtalið furðulegt

Lilja Alfreðs­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði að fjár­mála­ráð­herra þætti gaman að ræða við erlenda fjöl­miðla, en „okkur hinum“ þætti það ekk­ert sér­lega skemmti­legt því orð hans rýrðu trú­verð­ug­leika Íslands út á við. „Eins og staðan er í dag er hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra að bjóða upp á algjöra óvissu­ferð er varðar pen­inga­stefn­una og svo virð­ist hæst­virtur ráð­herra ætla sér að tala gjald­mið­il­inn niður á alþjóða­vísu. Viðtalið við FT er svo furðu­legt að mér datt í hug hvort það gæti hugs­an­lega verið ein­hver meiri dýpt í þessu, hvort hæstv. fjár­mála­ráð­herra væri sjálfur að gera sig að ein­hvers konar þjóð­hags­var­úð­ar­tæki sem virkar þannig að þegar krónan er sterk ætlar hann bara að mæta sjálfur og tala hana niður og svo þegar hún er veik ætlar hann að mæta sjálfur og tala hana upp,“ sagði Lilja.

Hún spurði hvort ekki væri fag­legri nálgun að bíða eftir nið­ur­stöðum verk­efn­is­stjórn­ar­innar, hvort Benedikt þætti heið­ar­legt gagn­vart þjóð­inni að sitja í rík­is­stjórn þar sem svona mik­ill skoð­ana­munur væri um eitt helsta hags­muna­mál þjóð­ar­innar, og hvort hann þyrfti ekki að leið­rétta þennan mis­skiln­ing ef orð hans hafi verið tekin úr sam­hengi.

„Það er ein­kenni­legt að heyra hátt­virtan þing­mann gera því skóna að menn eigi að hætta að hafa skoð­anir um leið og þeir eru komnir í rík­is­stjórn. Auðvitað hef ég áfram mínar skoð­anir. Ég hef sömu skoðun núna eins og ég hafði fyrir kosn­ingar. Ég hef ekki dregið neina dul á það. Ég hef talið að það væri far­sælla fyrir Ísland að hafa aðra pen­inga­stefnu, hafa stefnu þar sem væri meira jafn­vægi. Ég hef talið að það væri ekki far­sælt fyrir útflutn­ings­grein­arnar að vera með gjald­miðil þar sem evran er á 160 kr. einn dag­inn, 140 kr. þann næsta og svo komin niður í 112 kr., fer svo upp í 124 kr. og sveifl­ast fram og til baka, þannig að þeir sem eiga við­skipti í þess­ari mynt vita aldrei dag­inn eftir hve mikið þeir fá fyrir sinn snúð. Ég geri enga athuga­semd við það að aðrir kunni að hafa aðrar skoð­anir á því. Þannig er lýð­ræðið. Þannig verða skoð­ana­skipti,“ sagði Benedikt.

Hann sagði einnig að það væri „sann­ar­lega heið­ar­legt og gott“ að vera í rík­is­stjórn og berj­ast fyrir mark­miðum sínum. Það ættu stjórn­mála­menn að gera, hvort sem er í stjórn eða stjórn­ar­and­stöðu. „Mér finnst það mjög eðli­legt að við ræðum það hvernig á pen­inga­stefnan að vera. Það er margt annað sem við ætlum að breyta. Ef það væri búið að breyta öllu sem mér fynd­ist að þyrfti að breyta þá þyrfti ég ekki að vera í póli­tík lengur, þá væri mínu hlut­verki lokið. Það er ekki þannig. Þess vegna er það heið­ar­leg­asta starf sem ég get tekið að mér núna að vera í póli­tík og berj­ast fyrir minni stefnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár