Innflytjendur halda uppi jákvæðri byggðaþróun

Fæð­ing­ar­tíðni er nú í sögu­legu lág­marki á Íslandi, í Noregi og í Finn­landi. Inn­flytj­endur á Norð­ur­lönd­unum hafa haldið við end­ur­nýjun íbúa á mörgum fámenn­ari og afskekkt­ari svæðum sem ann­ars myndu glíma við fólks­fækkun.

Fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi hefur hríð­lækkað þrátt fyrir hlut­falls­lega mesta fólks­fjölgun síð­ustu ára­tugi miðað við hin Norð­ur­löndin og hefur hún aldrei verið lægri. Fæð­ing­ar­tíðni er nú hærri í Færeyjum, Græn­landi, Svíþjóð og Danmörku en það eru inn­flytj­endur sem halda uppi jákvæðri byggða­þróun í mörgum sveit­ar­fé­lögum á Norð­ur­löndum.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar – State of the Nordic reg­ion, sem unnin er af Nor­dregio og birt­ist í dag.

Samkvæmt skýrslu­höf­undum hefur fæð­ing­ar­tíðni lækkað mikið und­an­far­inn ára­tug alls staðar á Norð­ur­löndum og er hún nú í sögu­legu lág­marki á Íslandi, í Noregi og í Finn­landi. Þá kemur fram að fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi, sem lengi var með þeim hæstu í Evrópu, hafi fallið hratt frá árinu 2009 þegar hún var að með­al­tali 2,2 börn á hverja konu í aðeins 1,7 börn að með­al­tali árið 2019. Nú sé fæð­ing­ar­tíðni hér á landi örlítið lægri en í Svíþjóð og Danmörku. Færeyjar séu eina svæðið þar sem fæð­ing­ar­tíðnin er nægi­lega há til að stuðla að nátt­úru­legri fólks­fjölgun eða 2,5 börn á hverja konu.

Konur eignast sitt fyrsta barn seinna

Helsta ástæða þess­arar þró­unar er, sam­kvæmt skýrsl­unni, að konur eign­ast sitt fyrsta barn mun seinna en áður tíðk­að­ist. Árið 1990 hafi fæð­ing­ar­tíðni verið hæst meðal kvenna á aldr­inum 25 til 29 ára en í dag sé tíðnin hæst í ald­urs­hópnum 30 til 34 ára. Breyt­inga hafi farið að gæta á tíunda ára­tugnum þegar algeng­ara varð að konur biðu með barn­eignir þar til þær höfðu menntað sig.

Inn­flytj­endur hafa haldið við end­ur­nýjun íbúa á mörgum fámenn­ari og afskekkt­ari svæðum sem ann­ars myndu glíma við fólks­fækkun. Þannig varð fólks­fjölgun í 26 pró­sentum sveit­ar­fé­laga á Norð­ur­löndum 2010 til 2018 ein­ungis vegna inn­flytj­enda.

Lífslíkur fólks við fæðingu hafa aukist alls staðar á Norðurlöndum

Kjell Nilsson, for­stjóri Nor­dregio, segir að sam­hliða lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni stuðli bætt heilsa og aukin lífs­gæði að því að sam­fé­lögin eld­ast. Lífslíkur fólks við fæð­ingu hafi auk­ist alls staðar á Norð­ur­löndum frá árinu 1990 og heldur meira hjá körlum og því hafi dregið saman með kynj­unum. Búast megi við því að lífslíkur fólks haldi áfram að aukast og því megi karlar reikna með að lifa í rúm­lega 87 ár og konur í rúm­lega 91 ár árið 2080.

„Áhuga­vert er að skoða lífslíkur og ald­urs­sam­setn­ingu í lönd­unum sem heild en það er ekki síður áhuga­vert að sjá hvernig útkoman er mis­mun­andi eftir svæðum. Í mínu heima­hér­aði, Krono­berg í Svíþjóð, eru lífslíkur karla til dæmis mestar á Norð­ur­lönd­unum,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár