Íslandsbanki fjárfestir í Meniga

Íslands­banki hefur fjár­fest fyrir 410 millj­ónir króna í hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Meniga. Íslands­banki er þriðji bank­inn til að fjár­festa í Meniga á árinu.

Íslands­banki hefur fjár­fest fyrir 3 millj­ónir evra, eða sem nemur um 410 millj­ónum króna, í íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Meniga. Íslands­banki er þriðji bank­inn til að fjár­festa í Meniga á árinu. Í apríl var til­kynnt um þriggja millj­óna evra fjár­fest­ingu nor­ræna við­skipta­bank­ans Swedbank í fyr­ir­tæk­inu og í júní var greint frá því að alþjóð­legi bank­inn Unicredit hefði fjár­fest í Meniga fyrir sömu upp­hæð.

[links]Samkvæmt til­kynn­ingu bank­ans verður fjár­fest­ingin notuð til að styrkja sam­starfið við Meniga enn frekar og til að bjóða við­skipta­vinum betri not­enda­upp­lifun í gegnum snjall­síma og neta­banka. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka segir þetta vera hluti af star­frænu veg­ferð bank­ans til að efla þróun fjár­tækni­lausna fram­tíð­ar­innar enn frekar.

Meniga var stofnað árið 2009 og er hug­bún­aður sem á að auð­velda fólki að hafa yfir­lit yfir heim­ils­fjár­málum. Hug­bún­að­ur­inn sækir og flokkar sjálf­virkt allar færslur úr bank­anum þínum. Meðal við­skipta­vina Meniga eru margir stærstu banka heims en þeirra á meðal eru Sant­ander, Commerz­bank, ING Direct og Intesa San­pa­olo. Hug­bún­aður Meniga hef­ur verið inn­leidd­ur hjá yfir 80 fjár­mála­stofn­un­um og er hann aðgengi­leg­ur yfir 65 millj­ón manns í 30 lönd­um. Íslands­banki gerð­ist fyrsti við­skipta­vinur Meniga árið 2009 þegar bank­inn inn­leiddi heim­il­is­bók­halds lausnir Meniga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár