Jóhanna Sigurðardóttir: Erlendis væri ráðherra í stöðu Bjarna löngu farinn frá

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra gagrýnir Bjarna Bene­dikts­son harð­lega í færslu á Facebook síðu sinni.

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir á Facebook síðu sinni að erlendis væri fjár­mála­ráð­herra, í þeirri stöðu sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er nú, löngu far­inn frá.

Hún vitnar í máli sínu til umfjöll­unar Stund­ar­innar, sem sætti lög­banni sem nú hefur á tveimur dóm­stigum verið dæmt ólög­legt, en lög­maður Glitnis Holdco, Ólafur Eiríks­son hrl., hefur óskað eftir áfrýj­un­ar­heim­ild frá Hæsta­rétti, til að fara með málið alla leið í dóms­kerf­inu.

„Það er með ólík­indum hvað fjöl­miðlar hafa lítið fjallað um frétt Stund­ar­innar eftir að lög­banni var aflétt um fjár­mál og virkan þátt Bjarna Bene­dikts­sonar í að stýra eða koma að fjár­fest­ingum fjöl­skyldu sinnar upp á 130 millj­arða kr. Öll fyr­ir­tækin eru gjald­þrota eða hafa verið yfir­tekin af kröfu­höfum. Afskrift­irnar eru í sam­ræmi við það. Bjarni og hans fjöl­skylda hafði sem sagt allt sitt á þurru meðan almenn­ingur tap­aði fúlgum fjár í hrun­inu. Það sem undrun sætir er að þegar Logi Ein­ars­son tók málið upp á Alþingi í dag kom Katrín Jak­obs­dóttir Bjarna í skjól og sá ekk­ert athuga­vert við að hann sæti í stóli fjár­mála­ráð­herra. Erlendis væri fjár­mála­ráð­herra með þessa for­tíð löngu far­inn frá og ítar­leg rann­sókn sett í gang. Ætlar stjórn­ar­and­staðan að gera eitt­hvað í mál­inu, krefj­ast umræðu og rann­sóknar á þessu, eða ætlar hún að þegja eins og flestir fjöl­miðlar? Þetta mál er hneyksli og á ekki að líð­ast,“ segir Jóhanna á Facebook síðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár