Stabílitet í stúdíóinu

Amanda Riffo gerir sjón­rænar til­raunir með list sína til að næra for­vitni sína og koma sjálfri sér á óvart. Hún segir að listin sé stöð­ugur díalógur sem aldrei stoppi og þess vegna geti hún ómögu­lega svarað því hvaða gildi hún hafi fyrir líf sitt.

Gerir sjónrænar tilraunir á vinnustofunni
Gerir sjón­rænar til­raunir á vinnu­stof­unni Vinnu­stofa Amöndu er akk­erið í lífi hennar. Þrátt fyrir það hefur hún þörf fyrir að umbreyta henni algjör­lega, í hvert sinn sem hún hefur ivnnu að nýju verki. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hvergi finnur Amanda Riffo meiri stöð­ug­leika í líf­inu en í stúd­íó­inu sínu, sem hún lýsir sem akk­eri lífs síns. „Ég segi þetta en samt er ákveðin mót­sögn fólgin í því, vegna þess að ég gjör­breyti vinnu­stof­unni minni mjög reglu­lega, skipti út hús­gögnum og umturna henni algjör­lega. Í hvert sinn sem ég vinn að nýju verki hef ég nefni­lega þörf fyrir að breyta öllu,“ segir Amanda Riffo. Hún er með vinnu­stofu í hús­næði SÍM á Selja­vegi og umgengst þar aðra lista­menn sem einnig hafa vinnu­stofur þar. „Hér er góð orka en mér finnst líka gott að vera hérna til að vera í kringum aðra lista­menn, af ýmsum kyn­slóðum, kannski af því að ég lærði ekki hér á Íslandi og þekkti því ekki áður aðra lista­menn hér, að minnsta kosti ekki eins og vel og margir aðrir.“ 

Amanda hefur verið búsett í Reykja­vík í bráðum ára­tug en hefur unnið víða að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár