Karolina Fund: 2052 - Svipmyndir úr framtíðinni

Bók um hvað Ísland getur orðið þegar það verður stórt.

2052 – Svip­myndir úr fram­tíð­inni er bók með safni af smá­sögum sem allar eiga það sam­eig­in­legt að ger­ast á Íslandi árið 2052. Smá­sög­urnar koma úr ýmsum áttum, en 25 mis­mun­andi höf­undar eiga sögur í bók­inni þar sem þeir koma með sitt sjón­ar­horn á hvernig Ísland geti þró­ast á næstu 30 árum. Sumar sög­urnar eru ansi myrkar og drunga­legar, ekki af því að sú fram­tíð sé ósk höf­undar heldur frekar til að vera okkur víti til varn­aðar og minna okkur á hverjar afleið­ing­arnar geta orðið til lengri tíma af ákvörð­unum sem við tökum í dag. Aðrar sögur eru mun jákvæð­ari og hafa það hlut­verk að vera okkur inn­blástur og hvatn­ing til góðra verka.

[adspot]Rit­stjóri og útgef­andi bók­ar­innar er Hjörtur Smárason en meðal höf­unda eru þing­menn og frum­kvöðlar, pró­fess­orar og nem­endur, leik­stjórar og lög­reglu­menn, svo eitt­hvað sé nefnt. Í sög­unum taka höf­und­arnir fyrir spurn­ingar um fram­tíð­ar­þróun hinna ýmsu sviða, eins og til dæmis ferða­þjón­ustu, búsetu, sjáv­ar­út­vegs, tungu­máls­ins og sam­fé­lags­miðla. Við sjáum spegl­ast í þessum sögum ógnir sem vofa yfir sam­fé­lag­inu eins og lofts­lags­breyt­ing­arnar, sam­hengi tækni­þró­unar og manns­lík­am­ans og áhrif inn­flytj­enda á sam­fé­lagið en einnig drauma höf­unda um hverju við getum áorkað þegar við tökum okkur saman og vinnum að metn­að­ar­fullum mark­miðum.

Segðu okkur frá hug­mynd­inni að verk­efn­inu?

„Ég starfa sem ráð­gjafi fyrir borgar- og rík­is­stjórnir um hvernig laða eigi að fjár­magn, hæfi­leika­fólk og ferða­menn. Í því starfi eru sviðs­myndir fram­tíðar mik­il­vægur hluti af ferl­inu sem og skýr fram­tíð­ar­mark­mið fyrir þróun borg­ar­innar eða lands­ins. Mér hefur þótt hins vegar skorta á slíkri fram­tíð­ar­sýn fyrir Ísland eftir hrun og allt of mikil orka hafa farið í að ríf­ast um hverjum hlut­irnir eru að kenna, í stað þess að setj­ast niður, læra af því sem miður fór og ákveða svo hvernig við getum gert betur. Ég var síðan fengin til þess að skrifa sjálfur smá­sögur um fram­tíð­ina fyrir breskt útgáfu­fyr­ir­tæki og datt þá í hug að gaman gæti verið að safna saman íslenskum sögum fyrir íslenska fram­tíð.”

Hvert er mark­miðið með bók­inni?

„Það sem er mark­mið mitt með bók­inni er að skapa umræðu­grund­völl fyrir fram­tíð­ar­stefnu Íslands. Með því að kalla fram hug­myndir um bæði það sem getur farið vel og það sem getur farið illa von­ast ég til þess að þessar sögur geti verið upp­haf­s­punktar að umræðum um hvaða áhrif ákvarð­anir sem við tökum í dag geta haft á það hvernig sam­fé­lag við erum eftir 30 ár. Og það er svo sem ein af ástæð­unum líka fyrir því að ég vel þetta ártal, 2052. Upp­haf­lega ástæðan var að þetta ár væri jafn­langt í burtu og liðið er frá árinu 1984, sem gert var ódauð­legt í fram­tíð­ar­bók George Orwell. Þetta er tími sem er ekki lengra í burtu en svo að við ættum að geta ímyndað okkur ýmis­legt um þennan tíma, en nægi­lega langt í burtu til þess að ákveðin grund­vall­ar­at­riði geti gjör­breyst sem að gefur okkur aukið frelsi í fram­tíð­ar­sýn­inni. Við getum flest séð fyrir okkur árið 1984 og mörg hver munum vel eftir því ári. Sumt hefur ekk­ert breyst á meðan annað hefur mót­ast af hug­myndum sem við gátum ekki einu sinni ímyndað okkur þá. Það gerir þetta að skemmti­legu ári til að fást við.“

Var eitt­hvað sem kom þér á óvart í þeim sögum bár­ust þér fyrir bók­ina?

„Já, ég hafði virki­lega gaman af því að lesa þær hug­myndir sem koma fram í bók­inni. Þær eru jafn ólíkar og þær eru margar og nokkrar þeirra eru alveg þannig að ég þurfti aðeins að draga and­ann og melta þær þegar ég var búinn að lesa þær. Þær ögra manni og þeim hug­myndum sem maður hefur og setja hlut­ina í nýtt sam­hengi. Verður virki­lega hægt að skapa sér fjöl­skyldu á þann hátt sem Margrét Pála lýsir? Eða munu á Íslandi búa tvær þjóðir, önnur á Norð­aust­ur­horn­inu dyggi­lega studd af kín­verskum fjár­fest­ingum og hin á suð­vest­ur­horn­inu þar sem amer­ísku áhrifin munu halda uppi gömlu valda­klík­unum eins og pró­fessor í stjórn­mála­fræði lýsir á mjög skemmti­legan hátt í sínni sögu? Ég held að það sé margt þarna sem á eftir að koma fólki í opna skjöldu og fá það til þess að hugsa um hvernig sam­fé­lag það er sem við viljum búa í eftir þrjá­tíu og hvað það er sem við þurfum að gera til þess að Ísland verði sá staður sem við gjarnan viljum sjá.“

Hér er hægt að taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár