Samherji nýtir sér hlutabótaúrræði stjórnvalda

Vegna sótt­varna­ráð­staf­ana í fisk­vinnslum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á Akureyri og Dalvík eru starfs­menn nú í 50 pró­sent starfs­hlut­falli. Fyr­ir­tækið nýtir sér hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, en tryggir þó að starfs­menn verði ekki fyrir kjara­skerð­ingu.

Vegna sótt­varna­ráð­staf­ana í fisk­vinnslum Samherja og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, dótt­ur­fé­lags Samherja, eru starfs­menn þar nú í 50 pró­sent starfs­hlut­falli og vinna annan hvern dag.

Samherji nýtir sér þannig hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, en fyr­ir­tækið ætlar sér samt að tryggja að starfs­fólkið verði ekki fyrir nokk­urri launa­skerð­ingu vegna þessa, sam­kvæmt svari Björg­ólfs Jóhanns­sonar, starf­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Breytt starfs­hlut­fall er til komið vegna auk­inna krafna um sótt­varnir en mark­miðið er að minnka líkur á að smit ber­ist á milli fólks og tryggja að starfs­fólk líði sem best þannig að það geti sinnt starfi sínu í sem mestu öryggi,“ segir í svari Björg­ólfs, sem bætir við að Samherji geri sér ekki grein fyrir því hversu lengi ástandið vari, en hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda er ætlað að gera fyr­ir­tækjum sem verða fyrir áhrifum á rekst­ur­inn kleift að halda ráðn­ing­ar­sam­bandi við sem flesta starfs­menn.

„Það er því að okkar mati ábyrgð­ar­hluti að bregð­ast strax við með við­eig­andi hætti og gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja áfram­hald­andi starf­semi félags­ins á meðan og eftir að þessu ástandi lýkur. Með því að nýta þetta úrræði er okkar starfs­fólk örugg­ara á vinnu­stað, auk þess sem farið er að til­mælum yfir­valda, sem ekki er hægt með alla starfs­menn í hús­inu í einu. Við höfum sagt að við ætlum að tryggja að okkar starfs­fólk verði ekki fyrir skerð­ingu launa af þessum sökum,“ segir einnig, í svari for­stjór­ans.

Samherji er eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, eitt af stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í Evrópu og hefur vaxið gríð­ar­lega und­an­far­inn rúman ára­tug. Í árs­lok 2018 nam eigið fé Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, sem sam­anstendur af Samherja hf. og Samherja Holding, 111 millj­örðum íslenskra króna.

Samkvæmt tölum frá Vinnu­mála­stofnun hafa yfir 30 þús­und manns þegar sótt um hluta­bætur vegna skerts starfs­hlut­falls, fjöldi sem nemur yfir 15 pró­sent starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði. Þar af hafa yfir tvö þús­und manns sótt um hluta­bætur á starfs­svæði Samherja á Norð­ur­landi eystra.

Margt í gangi hjá Samherja á tímum heimsfaraldurs

Lækkað starfs­hlut­fall hluta starfs­manna vegna sótt­varna­ráð­staf­ana í sam­komu­banni og sam­dráttur á útflutn­ings­mörk­uðum um allan heim eru ekki einu áhrifin sem kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur haft á Sam­herj­a­sam­stæð­una.

Áætlun um að auka hlut félags­ins í Eimskip fór út af spor­inu og ástæða fannst einnig til þess að kalla Þorstein Má Bald­vins­son aftur að dag­legum rekstri félags­ins.

Þann 10. mars, skömmu áður en ljóst var hversu gríð­ar­leg áhrif far­ald­ur­inn myndi hafa á efna­hags­líf víða um heim jók Samherji hlut sinn í Eimskip yfir 30 pró­sent og þá mynd­að­ist yfir­töku­skylda á hendur fyr­ir­tæk­inu. Tíu dögum síðar, þegar fjár­mála­mark­aðir heims­ins voru komnir í upp­nám, óskaði fyr­ir­tækið eftir því við Fjár­mála­eft­ir­litið að fá heim­ild til að falla frá yfir­töku­skyld­unni og á það var fall­ist, eins og rakið var í frétta­skýr­ingu Kjarnans á dög­unum.[links]

Þetta er ein­ungis í þriðja sinn sem veitt er sér­stök heim­ild af hálfu eft­ir­lits­ins fyrir því að félög sleppi undan yfir­töku­skyldu og við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði sögðu að mörgum fjár­festum þætti ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins ótrú­leg. Einn komst þannig að orði að verið væri að sleppa Samherja af öngl­inum, en miðað við mark­aðsvirði Eimskips þegar Samherji fór yfir 30 pró­sent mörkin þá hefði það kostað sam­stæð­una 17,6 millj­arða króna að kaupa út aðra hlut­hafa. Ef miðað er við gengi bréfa í félag­inu dag­inn eftir, 11. mars, þegar þau hækk­uðu skarpt, hefði kostn­að­ur­inn verið 20 millj­arðar króna.

Þann 27. mars, mitt í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og fár­inu sem ríkir í sam­fé­lag­inu hans vegna, til­kynnti Samherji að Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem „steig til hliðar“ sem for­stjóri eftir umfjöllun inn­lendra og erlendra fjöl­miðla um við­skipta­hætti Samherja í Namibíu í haust, væri sestur aftur á for­stjóra­stól hjá fyr­ir­tæk­inu til þess að leiða við­brögð fyr­ir­tæk­is­ins við COVID-19 far­aldr­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár