Nafni apabólu verður líklega breytt

Sótt­varna­læknir segir til skoð­unar að breyta nafn­inu á sjúk­dómi þeim sem nú er kall­aður apa­bóla. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur ákveðið að enska heit­inu mon­keypox verði breytt í mpox.

„Við þurfum ekki að breyta nafn­inu en mér finnst lík­legt að við gerum það,“ segir Guðrún Aspelund sótt­varna­læknir um hvort til standi að breyta nafni sjúk­dóms­ins apa­bólu í sam­ræmi við ákvörðun Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO). Stofn­unin hefur ákveðið að enska heit­inu, mon­keypox, verði breytt í mpox.

Guðrún bendir á að WHO mun nota bæði nöfnin í eitt ár en eftir það ein­göngu mpox. Mpox verði síðan verða form­lega í upp­færslu á alþjóð­legu flokk­un­ar­kerfi WHO á árinu 2023.

Sextán ein­stak­lingar hafa greinst með apa­bóluna á Íslandi. Allt eru það full­orðnir karl­menn og flestir þeirra hafa smit­ast erlendis.

[adspot]

En hverjir taka ákvarð­anir um nöfn á sjúk­dóma og þá breyt­ingar sem þessar?

„Sótt­varna­læknir í sam­ráði við sótt­varna­ráð og emb­ætti land­læknis mun taka ákvörðun þar sem þetta er til­kynn­inga­skyldur smit­sjúk­dómur,“ svarar Guðrún, „en engin form­leg nafna­nefnd eða þannig er um slíkt hér­lendis.“

Hún segir að yfir­leitt séu heiti sjúk­dóma tekin beint upp frá WHO, sam­an­ber COVID-19 og apa­bóla (e. mon­keypox).

[links]WHO tekur ákvörðun sína í kjöl­far háværs ákalls um breyt­ingu á heit­inu. Margir telja nafn sjúk­dóms­ins – apa­bóla – smána þá sem sýkj­ast og fylla þá skömm. „Þegar útbreiðsla apa­bólu hófst fyrr á þessu ári þá voru marg­vís­leg rasísk ummæli látin falla á net­inu og víðar,“ sagði í til­kynn­ingu frá WHO um ákvörð­un­ina. Á fundum sér­fræð­inga WHO, sem koma frá ólíkum löndum, vöktu margir máls á þessu og ósk­uðu eftir nafna­breyt­ingu.“

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur það hlut­verk að nefna sjúk­dóma, rask­anir og heil­kenni. Stofn­unin hefur auk þess vald til að breyta nöfnum. Hins vegar er ekki algengt að það sé gert. Þekktasta dæmið um slíka breyt­ingu er heil­kenni sem WHO kallar nú þrí­stæðu 21. Heil­kennið var áður nefnt Down syndrome af stofn­un­inni, Down-heil­kenni á íslensku.

Faraldurinn fyrirséður

Apabóla (mon­keypox) hefur verið kölluð því nafni í fleiri ár en það er þó ekki fyrr en hún breið­ist frá Afríku til Vest­ur­landa þar sem ákall um nafna­breyt­ingu verður hávært. Í mörgum ríkjum Afríku hefur hún verið land­læg lengi en rann­sóknir á henni þó verið tak­mark­aðar. Helsta skýr­ingin er sú, líkt og oft á við þegar Afríka á í hlut, að fjár­magn til þeirra skortir.

Í maí á þessu ári fór apa­bólan svo að breið­ast út um Evrópu og í kjöl­farið til fleiri Vest­ur­landa. Það kom mörgum sér­fræð­ingnum á óvart en hefði þó ekki átt að gera það. Því þeir sér­fræð­ingar sem mest hafa rann­sakað sjúk­dóm­inn í Afríku voru búnir að vera við að einmitt þetta gæti gerst. Þeir segja að það eina sem hefði átt að koma á óvart var hversu nákvæmir spá­dómar þeirra um far­aldur víða um heim reynd­ust.

[adspot]

„Við höfum alltaf varað við því að við ákveðnar kjörað­stæður, líkt og þeirra sem urðu til þess að far­ald­ur­inn braust út í ár, að sjúk­dóm­ur­inn gæti ógnað lýð­heilsu um allan heim,“ segir Adesola Yinka-Ogunleye, far­alds­fræð­ingur við smit­sjúk­dóma­stofnun Nígeríu. Auk Nígeríu er apa­bóla land­læg í Benín, Kamerún, Gana og Líberíu og að auki hefur hún greinst í mörgum öðrum Afr­íku­ríkjum í far­aldr­inum nú.

Yfir 80 þús­und manns í meira en 100 löndum hafa greinst með apa­bólu á þessu ári. Þessi mikla útbreiðsla hefur minnt á mik­il­vægi þess að hlusta á varn­að­ar­orð sér­fræð­inga í þeim löndum sem mesta þekk­ingu hafa á ákveðnum sjúk­dómum. Far­alds­fræð­ing­arnir Yinka-Ogunleye og Anne Rimoin, sem hefur rann­sakað apa­bólu í Austur-Kongó, hafa báðar rann­sakað sjúk­dóm­inn í fleiri á og hafa sam­an­lagt ára­tuga reynslu af því verk­efni.

Árið 2017 hófu und­ar­leg útbrot að gera vart við sig hjá fólki í suð­ur­hluta Nígeríu. Yinka-Ogunleye grun­aði strax að um væri að ræða apa­bólu en sú stað­reynd að hún hafði ekki greinst í land­inu í fjóra ára­tugi dró þó úr vissu hennar. En grunur hennar var stað­festur nokkrum vikum síðar. 122 til­felli greindust í Nígeríu þetta ár og sjö dauðs­föll voru tengd sjúk­dómnum. Karlar voru í meiri­hluta sýktra og flestir voru þeir full­orðnir svo hægt var að draga þá ályktun að dregið hefði veru­lega úr virkni barna­bólu­setn­ingar gegn bólu­sótt.

Banvænna afbrigði

Í Austur-Kongó hefur annað afbrigði veirunnar sem veldur apa­bólu greinst en í Nígeríu. Það afbrigði er lífs­hættu­legra. Heil­brigð­is­kerfi lands­ins er mjög veik­byggt, þetta er eitt fátæk­asta ríki heims þar sem mikil ólga og átök hafa geisað árum og ára­tugum saman. Þetta ástand hefur gert það erf­ið­ara og flókn­ara að rann­saka útbreiðslu sjúk­dóma. Talið er að þús­undir hafi smit­ast af apa­bólu á hverju ári frá því á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Dauðs­föll árlega skipta hund­ruðum. Í ár, svo dæmi sé tekið, eru til­fellin þegar yfir 4.500 og talið er að 155 manns hið minnsta hafi lát­ist vegna apa­bólu.

Yinka-Ogunleye og Rimoin segja í við­tali við Nature að gríð­ar­leg þörf sé á að rann­saka til fulln­ustu útbreiðslu apa­bólunnar í Afríku. „Það er margt sem við vitum ekki ennþá en þurfum að kom­ast að,“ segir Rimoin. Rannsaka þurfi t.d. ónæmi fólks fyrir veirunni, hversu lengi það varir, sem og smit­leiðir.

Til verks­ins þurfi fleiri vís­inda­menn og betri tæki og tól til sýna­söfn­unar og grein­inga. Slíkar rann­sóknir, á upp­runa og útbreiðslu veirunnar í Afríku mun hjálpa allri heims­byggð­inni, minna þær á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

apabóla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár