Á milli okkar er strengur

Með ellefu mínútna millibili fæddust þær Alma Mjöll og Helga Dögg Ólafs­dætur, eineggja tvíburar. Á milli þeirra er órjúfanlegur strengur og þótt rof hafi orðið á milli þeirra þegar ruglið tók yfir, Alma Mjöll veiktist og ætlaði að svipta sig lífi, þá eru þær alltaf mikil­vægustu mann­eskj­urnar í lífi hvor annarrar. Þær hafa jafnvel farið nokkurn veginn sömu leiðina í lífinu og urðu óléttar þegar nákvæmlega jafn langur tími var liðinn frá útskrift úr Lista­háskólanum.

Helga Dögg Ólafs­dóttir. Hinn helmingurinn. Hvernig get ég best lýst Helgu Dögg? Hún er uppáhalds­manneskjan mín, uppáhalds­lífveran mín en á sama tíma mest pirrandi eintak sem ég þekki. Ég þekki alla hennar kosti og alla hennar galla, ég þekki hana betur en allir, ég þekki hana betur en hún þekkir sig sjálf. Ég þekki kostina við gallana hennar og gallana við kosti hennar. Ég veit til dæmis að óöryggið hennar gerir hana oft svo sæta og sjálfs­öryggið hennar gerir hana stundum leiðinlega. 

Saga okkar nær langt aftur í tímann, raunar eins langt og sögur fólks ná aftur í tímann. Við urðum teymi um leið og við urðum til. Tilneyddar til að eyða fyrstu níu mánuðum tilveru okkar saman í einu og sama leginu. Helga Dögg Ólafs­dóttir er tvíbura­systir mín, eineggja tvíbura­systir mín, klónið mitt eins og ég kýs stundum að kalla hana. 

Þegar við loks komumst út úr …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár