Skeljungur greiddi forstjóranum sínum sjö milljónir á mánuði í fyrra

Skelj­ungur hagn­að­ist um 6,9 millj­arða króna á árinu 2021. Nánast allur hagn­að­ur­inn er til­kom­inn vegna sölu á P/F Magn. Olíu­fé­lagið, sem verið hefur í rekstri í 93 ár, hefur verið breytt í SKEL fjár­fest­inga­fé­lag.

Árni Pétur Jónsson var forstjóri Skeljungs þangað til fyrr í þessum mánuði þegar hann sagði af sér vegna ásakana um ósæmilega hegðun fyrir 17 árum síðan.
Árni Pétur Jónsson var for­stjóri Skelj­ungs þangað til fyrr í þessum mán­uði þegar hann sagði af sér vegna ásak­ana um ósæmi­lega hegðun fyrir 17 árum síðan. Mynd: Aðsend

Laun og hlunn­indi Árna Péturs Jóns­sonar, þáver­andi for­stjóra Skelj­ungs, voru 72 millj­ónir króna á síð­asta ári, eða sex millj­ónir króna á mán­uði. Auk þess fékk hann 12 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð frá félag­inu, eða alls eina milljón króna á mán­uði. Sam­an­lögð laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur til Árna Péturs voru því sjö millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði í fyrra.

Árni Pétur tók við starfi for­stjóra Skelj­ungs árið 2019. Hann gegndi starf­inu því allt árið 2020. Á því ári voru laun og hlunn­indi hans 49 millj­ónir króna, eða um fjórar millj­ónir króna á mán­uði. Hann fékk auk þess 13 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð og því voru heild­ar­greiðslur félags­ins til hans tæp­lega 5,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Laun og hlunn­indi Árna Péturs hækk­uðu því um 47 pró­sent á síð­asta ári en mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð dróst saman um tæp­lega átta pró­sent.

Sagði upp fyrr í þessum mánuði

Árni Pétur sagði starfi sínu lausu í byrjun þessa mán­aðar. Í til­kynn­ing­unni sem hann sendi frá sér sagði Árni Pétur að honum hafi borist tölvu­póstur frá fyrrum sam­starfs­konu hans í öðru fyr­ir­tæki, þar sem hann var yfir­maður hennar fyrir um 17 árum síð­an. „Þar greinir hún frá því að í dag upp­lifi hún sam­skipti okkar á þessum tíma með þeim hætti að ég hafi gengið yfir ákveðin mörk.“

[adspot]Hann sagði að konan hafi ekki sakað hann um ofbeldi, áreiti eða ein­hvers konar brot gegn lög­um, heldur hafi verið um að ræða valda­ó­jafn­vægi og ald­urs­mun. „Þrátt fyrir að ég hafi á engan hátt gerst brot­legur við lög þá átta ég mig á því að við­mið og við­horf hafi breyst í sam­fé­lag­inu og er það vel,“ segir Árni Pétur í til­kynn­ingu sinni. „Met ég stöð­una þannig að mál þetta kunni að valda fyr­ir­tæk­inu og sam­starfs­fólki óþæg­ind­um. Ég hef því óskað eftir að láta af störfum sem for­stjóri hjá Skelj­ungi hf.“

Ólafur Þór Jóhann­es­son, sem starf­aði áður sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs og sem aðstoð­ar­for­stjóri Skelj­ungs, tók við starf­inu af Árna Pétri.

Nær allur hagnaðurinn vegna sölu á P/F Magn

Skelj­ungur hagn­að­ist um 6,9 millj­arða króna á síð­asta ári. Sá hagn­aður er nær allur til­kom­inn vegna sölu á fær­eyska dótt­ur­fé­lag­inu P/F Magn á árinu 2021, en bók­færð áhrif þeirrar sölu á tekjur Skelj­ungs í fyrra voru 6,7 millj­arðar króna. Hlut­hafar ætla að greiða sér út 350 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem birt var í gær kom fram að Skelj­ungur verði héðan í frá fjár­fest­inga­fé­lag og beri nafnið SKEL fjár­fest­inga­fé­lag. Þar með lýkur sögu olíu­fé­lags­ins Skelj­ungs á Íslandi, en hún hófst árið 1928.

Strengur, eign­ar­halds­fé­lag sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son fer fyrir, á 50,1 pró­sent hlut í félag­inu og hefur því tögl og hagldir innan þess. SKEL byrjar til­veru sínu með 12 millj­arða króna í hand­bært fé, um 50 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall og ein­ungis tvo millj­arða króna í vaxta­ber­andi skuldum. Áhersla verður lögð „á þróun á nýjum tæki­færum með félögum í eigna­safni með lang­tíma verð­mæta­sköpun að leið­ar­ljósi.“

Stærstu eignir fjár­fest­inga­fé­lags­ins eru 100 pró­sent hlutur í Orkunni, Skelj­ungi IS og Gallon, 48,5 pró­sent hlutur í Sp/f Orku­fé­lagi í Færeyjum (sem keypti P/F Magn), 20 pró­sent hlutur í Kalda­lóni og 50 pró­sent hlutur í félag­inu Fast­eigna­þróun.

Orkan, stærsta eign félags­ins, rekur 70 þjón­ustu­stöðvar með elds­neyti og átta versl­anir, þrjár mat­vöru­versl­anir undir hatti Extra og þrjár þæg­inda­versl­anir undir hatti 10/11. Þá á Orkan Löður sem rekur 15 þvotta­stöðvar, Lyfjaval og Lyf­sal­ann sem reka sex apó­tek, Brauð & Co, Gló, Sbarro og WEDO (Heimkaup, Hópkaup, Bland).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár