Skammarlegt fyrir Bandaríkin, hræðilegt fyrir Kunduz

Það ger­ist ekki oft að Banda­ríkja­for­seti biðj­ist per­sónu­lega afsök­unar á aðgerðum banda­ríska hers­ins. Það gerð­ist árið 2012, eftir að banda­rískir her­menn brenndu í ógáti ein­tök af Kór­an­inum í Afganistan, og þar áður árið 2004 eftir að banda­rískir her­menn mis­þyrmdu föngum í Abu Ghraib fang­els­inu í Írak. Og svo á mið­viku­dag­inn var. Obama hringdi sjálfur í fram­kvæmda­stóra Lækna án landamæra til að biðj­ast afsök­unar á loft­árás banda­ríska hers­ins á sjúkra­hús sam­tak­anna í Kunduz í Norður-Afganistan.


The Kunduz attack constitutes a grave violation of International Human­it­arian Law.We dem­and a full & tran­sparent account from the Coalition


— MSF International (@MSF) October 3, 2015

Afsök­un­ar­beiðnin er mót­tekin, var þurrt og ákveðið svar Joanne Liu, fram­kvæmda­stjóra Lækna án landamæra. Samtökin standa eftir sem áður fast við kröfu sína um óháða rann­sókn og kalla árás­ina stríðs­glæp.

Var þetta stríðsglæpur?


Á þriðja tug lækna og sjúk­linga liggja í valnum eftir loft­árás­ina. Æðsti hers­höfð­ingi Banda­ríkja­manna í Afganistan, John Campbell, við­ur­kennir að her­inn hafi að öllum lík­indum brotið sínar eigin reglur. Senni­lega var árásin gerð að beiðni afganska hers­ins, sem ber hit­ann og þung­ann af bar­átt­unni við tali­bana á jörðu niðri. Hins vegar var árásin gerð af Banda­ríkja­mönnum og ákvörð­unin var tekin af Banda­ríkja­mönnum. Ábyrgðin er því þeirra.

„Alvar­leiki atviks­ins er slíkur að ef dómur kemst að þeirri nið­ur­stöðu að árásin hafi verið gerð af yfir­lögðu ráði, þá getur árás á sjúkra­hús talist stríðs­glæpur,” segir mann­rétt­inda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, Zeid Ra'ad al-Hussein. Það þarf sumsé að vera hægt að sýna fram á ein­beittan brota­vilja, og jafn­vel þó hann sé til staðar, þá er þó nokkuð svig­rúm í túlkun lag­anna fyrir að mis­tök séu gerð og rangar ákvarð­anir teknar í hita leiks­ins.

Gleymum því hins vegar ekki að hér lét­ust óbreyttir borg­arar og heil­brigð­is­starfs­fólkið sem var að sinna þeim. Íbúar Kunduz standa nú uppi án sjúkra­húss og átök­unum milli stjórn­ar­hers­ins og tali­bana er hvergi nærri lokið. Samtökin sem eru þekkt fyrir að vera “fyrst inn og síð­ust út” eru ekki end­an­lega búin að yfir­gefa hér­aðið, en þau eru jú búin að missa aðstöð­una sína í hér­aðs­höf­uð­borg­inni.

Hvað segja Genfarsáttmálarnir?


Sjúkra­hús og sjúk­lingar njóta sér­stakrar verndar sam­kvæmt fyrsta Gen­far­sátt­mál­anum. Þar er tekið skýrt fram að jafn­vel særðir liðs­menn her­sveita njóti verndar, svo fremi sem þeir leggi niður vopn. Ef þetta örugga skjól er mis­notað af víga­sveitum fellur verndin niður, en þó ekki fyrr en búið er að gefa við­vörun, sem ekki var gert í þessu til­felli. – Af tækni­legum ástæðum gilda reyndar ekki Gen­far­sátt­mál­arnir orð­rétt í átök­unum í Afganistan, en meg­in­at­riðin eru löngu orðin þjóð­rétt­ar­venja og þar með reglur sem öll ríki heims, sem og ófrið­ar­seggir aðrir, eru bundin af.

Tals­maður afganska inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins Sediq Sediqqi sagði í við­tali við NBC að um 15 liðs­menn tali­bana hafi verið komnir inn á sjúkra­hú­s­lóð­ina og hafi skotið þaðan í átt að afgönskum her­mönnum. Því hafi verið gerð árás til að taka þá úr umferð. Læknar án landamæra neita þessum sögu­sögnum stað­fast­lega. En ef rétt reyn­ist, þá er það vissu­lega líka stríðs­glæpur af hálfu tali­bana, sem spila sjálfir ekki alltaf eftir regl­unum.

Það breytir ekki því að ein af grund­vall­ar­reglum alþjóða mann­rétt­inda­laga, með Gen­far­sátt­málana sem þunga­miðju, er sú að ávallt skuli vega hern­að­ar­legt mik­il­vægi skot­marks á móti skað­anum sem hugs­an­leg árás kunni að valda. Með öðrum orðum getur það ekki talist nógu hern­að­ar­lega mik­il­vægt að taka nokkra víga­menn úr umferð (- hafi þeir yfir höfuð verið til staðar) til að það rétt­læti að brjóta hina mjög svo mik­il­vægu vernd­ar­reglu um sjúkra­hús, vit­andi að þar munu deyja bæði særðir almennir borg­arar sem hafa leitað skjóls, og heil­brigð­is­starfs­fólk sem er lífs­nauð­syn­legt til að tryggja líkn og hjúkrun í átök­unum.

Hvað er Kunduz og af hverju skiptir það máli?


Tali­banar hafa sótt mjög fram í Norður-Afganistan og náðu hinni mik­il­vægu hér­aðs­höf­uð­borg Kunduz á sitt vald í síð­ustu viku. Þetta er tal­inn einn mik­il­væg­asti hern­að­ar­sigur tali­bana í 15 ár.

Þegar tali­banar héldu um stjórn­ar­taumana í Afganistan frá 1996 til 2001 var Kunduz eitt höf­uð­vígi þeirra í Norður-Afganistan, sem þeim reynd­ist ann­ars tor­velt að leggja undir sig. Það segir all­nokkuð um mik­il­vægi borg­ar­innar en er líka vís­bend­ing um að tali­banar hafi í mörg ár átt und­ir­tök í hér­að­inu.

Tali­banar standa enn sterkt í Suður- og Austur-Afganistan, sem er þeirra heima­byggð. Þeir til­heyra lang­flestir þjóð­ar­brot­inu pas­túnum, en í Norður-Afganistan eru önnur þjóð­ar­brot algeng­ari. Að auki sækja þeir fram í norðr­inu.

Í fjalla­hér­að­inu Badakhs­han í norð­aust­ur­horni lands­ins hafa tali­banar sölsað undir sig dal eftir dal, þorp eftir þorp. Það hérað var hið eina sem tali­banar náðu aldrei að leggja undir sig þegar þeir voru við völd, hér­aðið þar sem and­spyrnan átti sitt aðsetur. Í Faryab í norð­vest­ur­horn­inu, þar sem íslenska frið­ar­gæslan vann eitt sinn að þró­un­ar­málum, eru tali­banar við borg­ar­múr­ana í Maímana, (- ef svo má að orði kom­ast um hið til­vilj­ana­kennda borg­ar­skipu­lag sem oft vill verða í Afganistan).

Land­vinn­ingar tali­bana í Norður-Afganistan vekja ugg, einmitt út af því að ógnin er að breiða úr sér á svæðum sem hingað til hafa verið til­tölu­lega frið­sæl. Af þessu leiðir kunn­ug­legt Kalas­hnikov-víg­bún­að­ar­kapp­hlaup sem óbreyttir Afganar þekkja af illu einu og fáir vilja upp­lifa á ný.

NATO aftur í skotgrafirnar


Fregnir af loft­árásum Banda­ríkja­manna eru til merkis um hversu alvar­lega Atl­ants­hafs­banda­lagið og Banda­ríkja­menn taka þessa ógn. Eig­in­lega voru menn hættir í þessu hlut­verki. Eig­in­lega ætl­uðu Banda­ríkja­menn og NATO bara að vera að þjálfa og styðja afganska her­inn frá og með 1. jan­úar 2015, kannski með ein­staka dróna­árásum hér og þar.

Mynd/linkur: https://vimeo.com/115809611 - Texti: Heim­ild­ar­myndin Tell Spring Not to Come This Year segir sögu afganskra her­manna sem víð­ast hvar berj­ast við tali­bana án beinnar þátt­töku alþjóð­aliðs­ins. Myndin hefur unnið til verð­launa á kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín og hjá Amnesty International.

Í nýju sam­starfs­samn­ing­unum við afganska ríkið frá í fyrra haust eru samt mjög opnar klausur þess efnis að Banda­ríkin og Atl­ants­hafs­banda­lagið geti einnig sinnt öðrum mik­il­vægum hern­að­ar­legum verk­efnum í sam­starfi og sam­ráði við afgönsk stjórn­völd.

Nú virð­ist því vera sem Banda­ríkja­menn og Atl­ants­hafs­banda­lagið séu komnir aftur í gömul og kunn­ug­leg hlut­verk sem þeir ætl­uðu helst að segja skilið við: að veita afganska hernum stuðn­ing úr lofti í götu­bar­dögum við tali­bana. Það verður for­vitni­legt að sjá hvernig þetta þró­ast, því tali­banar eru síður en svo komnir að fótum fram. Þessi bar­dagi er ekki búinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár