Hversdagslíf Grænlendinga frá sjónarhorni þeirra sjálfra

Græn­lend­ingar eru ekki eins exótískir og umheimurinn virðist halda. Þetta segir ljós­myndarinn Inuuteq Storch, sem hefur gert nokkrar bækur byggðar á mynda­albúmum og bréfa­skriftum fjöl­skyldu sinnar. Hann vill leggja sitt af mörkum til að dýpka skilning á Grænlandi nútímans.

Á sýningunni Porcelain Souls sem nú stendur yfir í Norræna húsinu deilir grænlenski lista­maðurinn og ljós­myndarinn Inuuteq Storch myndum og bréfa­samskiptum fjöl­skyldu sinnar frá árunum 1960–1980. „Þegar ég byrjaði að grúska í myndum og bréfum foreldra minna sá ég fyrir mér að gera eina bók. En eftir því sem ég kafaði dýpra áttaði ég mig á hversu mikið efni ég var með í höndunum, svo það stefnir í að þetta verði á endanum nokkrar bækur,“ segir Inuuteq Storch.

Inuuteq StorchGræn­lenskar ræt­urnar eru til umfjöll­unar í verkum hans.

Hann svarar í símann í heimabæ sínum í Sisimiut á Grænlandi. Þar er hann alla jafna með annan fótinn en með hinn í Kaupmanna­höfn. Þegar hann er ekki á öðru hvoru heimila sinna ferðast hann með verk sín um heiminn en þau hafa verið sýnd í Banda­ríkjunum, Kólumbíu, Grænlandi, Danmörku, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár