Leggja fram ólíkar breytingar á erfðafjárskatti

Fjár­mála­ráð­herra og þing­menn Við­reisnar hafa lagt fram tvö ólík frum­vörp um breyt­ingar á lögum um erfða­fjár­skatt. Mikill munur er á frum­vörp­unum en annað tekur meðal ann­ars mið af skatt­stofni dán­ar­bús­ins en hitt af arf­greiðslum hvers erf­ingja fyrir sig.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Samsett.

Tvö laga­frum­vörp um breyt­ingar erfða­fjár­skatti hafa verið lögð fram á síð­ustu vikum. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, lagði fram annað þeirra til umsagnar í sam­ráðs­gátt fyrr í októ­ber og þing­menn Við­reisnar hafa einnig lagt fram frum­varp um breyt­ingar á erfða­fjár­skatti á Alþingi.

Frumvarp Bjarna leggur til þrepa­skipt­ingu þar sem neðra skatt­þrepið er 5 pró­sent og efri 10 pró­sent en skatt­þrepin taka mið af skatt­stofni dán­ar­bús­ins en ekki arf­greiðslu hvers erf­ingja um sig. Frumvarp Við­reisnar miðar hins vegar við þrjú þrep 10, 15 og 20 pró­sent og ræðst hlut­fallið af fjár­hæð þess arfs sem fellur til hvers erf­ingja um sig við upp­gjör til­tek­ins dán­ar­bús, ólíkt því sem lagt er til í frum­varpi Bjarna.

Fimm prósent af allt að 75 milljónum

Frumvarp fjár­mála­ráð­herra felur í sér að erfða­fjár­skatt­ur­inn verði þrepa­skiptur með þeim hætti að ann­ars vegar reikn­ast 5 pró­sent erfða­fjár­skattur af skatt­stofni að fjár­hæð allt að 75 millj­ónum króna og hins vegar 10 pró­sent af því sem er umfram 75 millj­ónir. Lagt er til að skatt­þrepin taki mið af skatt­stofni dánarbúsins en ekki arf­greiðslu hvers erf­ingja um sig.

Árið 2010 var erfða­skatt­ur­inn hækk­aður úr fimm pró­sentum í tíu pró­sent. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að sú hækkun hafi verið hluti af umfangs­miklum aðgerðum til að afla ríkis­sjóði viðbótar­tekna í ljósi sérstakra og erf­iðra aðstæðna í ríkis­fjármálum og að hann hafi hald­ist óbreyttur þrátt fyrir að hagur rík­is­jsóðs hafi vænkast. Því er lagt til í frum­varp­inu að neðra skatt­þrepið verði lækkað í 5 pró­sent.

Í frum­varp­inu kemur jafn­framt fram að þrátt fyrir að greiða skuli 5 pró­sent erfða­fjárskatt af skatt­stofni allt að 75 millj­ónum sam­kvæmt frum­varp­inu þá er ekki gert ráð fyrir að greiddur sé erfða­fjárskattur af fyrstu 1,5 millj­ón­unum. Í frum­varp­inu er einnig tekið fram að erfða­fjárskattur af fyr­ir­fram­greiddum arfi sé sami og í hærra skatt­þrep­inu, það er 10 pró­sent.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að þær laga­breyt­ingar sem lagðar séu til í frum­varp­inu munu lækka skatt­tekjur ríkis­sjóðs, frá því sem ann­ars hefði orðið, um 2 millj­arða á næsta ári. Í fjárlaga­frum­varpi fyrir kom­andi ár er gert ráð fyrir að tekjur af erfða­fjárskatti verði 5,2 millj­arðar en ef frum­varpið nær fram að ganga verða þær um 3,2 millj­arðar.

Lækkun erfðafjárskatts eykur misskiptingu

Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, var einn þeirra sem skil­aði inn umsögn um frum­varp fjár­mála­ráð­herra í sam­ráðs­gátt. Hann segir að þrepa­skipt­ingin sem lögð er til í frum­varp­inu sé til þess fal­inn að auka mis­skipt­ingu eigna og sam­þjöppun þeirra.

[links]Hann bendir á að í nýlegum upp­lýs­ingum Hagstofu Íslands komi fram að um 60 pró­sent eigna er í höndum þeirra 10 pró­sent fram­telj­enda sem mest eiga.

„Tví­skipt­ing skatt­stiga erfða­fjár­skatts er í sjálfu sér ekki slæm hug­mynd en ókost­irnir eru þeir að sú leið að setja nýtt lægra þrep í stað nýs hærra þreps mun auka á það ójafn­ræði sem þegar er fyrir í því að hafa þessar tekjur lítið skatt­lagðar í sam­an­burði við aðrar tekjur. Þessi lága skatt­lagn­ing á háar arfs­tekjur er einnig til þess fall­inn að auka mis­skipt­ingu eigna og sam­þjöppun þeirra,“ skrifar Indriði.

Hann segir að úr hvoru tveggja mætti draga með því að bæta við hærra skatt­þrepi í stað lægra skatt­þreps. Eða jafn­vel að hækka núver­andi þrep og bæta öðru við til dæmis 15 pró­sent og 25 pró­sent að fyr­ir­mynd Dana. Úr áhrif­unum á lágan arð mætti draga með því að hækka frí­mark arfs sem nú er 1,5 millj­ónir króna.

Hann segir jafn­framt að frí­markið og fyr­ir­huguð þrepa­skipt­ingin sé gölluð að því leyti að hún mið­ast við dán­ar­búið en ekki arf­tak­ana sem eru hinir raun­veru­legu greið­endur skatts­ins.

„Þannig er ein­birnum og fámennum erf­ingja­hópum ívilnað miðað þau til­vik þegar erf­ingjar eru fleiri. Þetta mætti laga með því að miða frí­tekju­markið og vænt­an­legt þrep við hvern lög­erf­ingja í stað dán­ar­bús­ins,“ skrifar Indriði.

Hann segir jafn­framt að ekki komi fram í grein­ar­gerð­inni hvernig fyr­ir­huguð lækkun skatts­ins um tvo millj­arða króna á ári komi niður á fram­telj­endur eftir tekjum eða eignum.

Leggja til að hæsta þrepið verði 20 prósent

Þingmenn Við­reisnar lögðu fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um erfða­fjár­skatt á Alþingi í lok sept­em­ber. Með frum­varp­inu leggja þing­menn­irnir til að horfið verði frá því að líta á dán­arbú manns sem and­lag erfða­fjár­skatts og þess í stað verði horft til arfs hvers erf­ingja um sig sem and­lag erfða­fjár­skatts­ins. Þar með verði skatt­tekjur rík­is­ins vegna hvers dán­ar­bús háðar fjölda erf­ingja bús­ins og arfs­hluta þeirra.

Með frum­varp­inu er lagt til að hlut­fall erfða­fjár­skatts verði breyti­legt eftir upp­hæð þess arfs sem fellur erf­ingja í hlut við skipti til­tek­ins dán­ar­bús. Skatt­hlut­föllin verði í raun fjögur, 0 pró­sent, 10 pró­sent, 15 pró­sent og 20 pró­sent.

Þing­menn­irnir leggja til að af fyrstu 15 millj­ón­unum skal greiða 10 pró­sent erfða­fjár­skatt, af næstu 15 millj­ónum skal greiða 15 pró­sent erfða­fjár­skatt og af þeim hluta arfs sem er umfram 30 millj­ónir skal greiða 20 pró­sent erfða­fjár­skatt. Þá er lagt til að hver erf­ingi greiði engan skatt af fyrstu 6.5 millj­ón­unum. 

„Arfur verður ekki til fyrr en bú hefur verið gert upp. Að vissu leyti má segja að til­viljun ráði hvað komi til skipta og auki þannig eignir og tekju­mögu­leika erf­ingja. Það er eðli­legt að þeir erf­ingjar sem mest fá greiði hlut­falls­lega mest í skatt. Breyt­ingin stuðlar líka að því að draga úr auð­söfnun á fárra manna hendur. Með því að per­sónu­binda afslátt­inn fá fleiri í sinn hlut arf án skatt­heimtu. Þannig dreif­ist arfur betur til ein­stak­linga í sam­fé­lag­inu um leið og erfða­fjár­skattur sem kemur í hlut rík­is­ins við skipti minni dán­ar­búa lækkar,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í frum­varp­inu kemur fram að erfitt sé að sjá fyrir með fullri vissu hver áhrifin á tekjur rík­is­ins verða ef frum­varp þing­mann­anna nær fram að ganga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár