Tæpur helmingur alls nýs auðs sem skapast fer til ríkustu Íslendinganna

Ríkustu tíu pró­sent lands­manna, rúm­lega 22 þús­und fjöl­skyldur, áttu 58 pró­sent af öllu eigin fé á Íslandi um síð­ustu ára­mót. Frá 2010 hefur skráður auður þeirra auk­ist um um 1.379 millj­arða króna, en allra ann­arra lands­manna um 1.800 millj­arða króna.

Eigið fé Íslend­inga, það sem stendur eftir þegar búið er að draga skuldir frá eignum, hækk­aði um 641 millj­arða króna í fyrra. Það er næst mesta hækkun sem átt hefur stað í vexti á eigin fé frá því að Hagstofa Íslands hóf að halda utan um þær tölur. Metið var sett á árinu 2017 þegar eigið fé Íslend­inga jókst um 760 millj­arða króna.

Upp­gangur síð­ustu ára hefur skilað því að eigið fé lands­manna, eignir þeirra þegar búið er að draga skuldir frá, hefur farið úr því að vera 1.565 millj­arðar króna í lok árs 2010 í að vera 4.744 millj­arðar krókna um síð­ustu ára­mót. Hann hefur aldrei verið meiri.

Til hafa orðið 3.179 millj­arðar króna í nýju eigin fé í íslensku sam­fé­lagi á þessum örfáu árum. Það hefur rúm­lega þre­fald­ast. Af þessum millj­örðum króna sem orðið hafa til frá árinu 2010 hafa 1.379 millj­arðar króna farið til efstu tíu pró­sent lands­manna, sem telur 22.213 fjöl­skyldur. Það þýðir að 43 pró­sent alls nýs auðs hefur endað hjá þessum hópi.

Í fyrra jókst auður þessa hóps um 304 millj­arða króna á á síð­ustu tveimur árum hefur hann vaxið um 667 millj­arða króna. Tæplega önnur hver króna sem verður til í auði í íslensku efna­hags­lífi ratar því til rík­ustu tíu pró­sent lands­manna.

Sá hópur átti því 58 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna um síð­ustu ára­mót, eða alls 2.729 millj­arða króna. Þar á meðal er helm­ingur alls eigin fjár í fast­eignum sem til er í land­inu og rúm­lega helm­ingur allra inn­lána. Efsti fimmt­ung­ur­inn átti sam­tals 3.796 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót. Það þýðir að 80 pró­sent lands­manna átti 20 pró­sent eig­in­fjár og rík­istu 20 pró­sentin 80 pró­sent þess.

Þetta kemur fram í nýjum tölum um eignir og skuldir lands­manna sem Hagstofa Íslands birti í morgun.

Eigið fé vanmetið hjá ríkum

Eigið fé rík­ustu tíu pró­senta lands­manna er reyndar stór­lega van­metið. Öll verð­bréfa­eign (hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröfur) er nefni­lega metin á nafn­virði, en ekki mark­aðsvirði.

Það þýðir að ef verð­bréf í t.d. hluta­fé­lögum hafi hækkað í verði frá því að þau voru keypt þá kemur slíkt ekki fram í þessum tölum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands hefur til að mynda hækkað um 21,3 pró­sent frá því snemma í jan­úar 2019 og um 40 pró­sent frá byrjun árs 2015. Það er enda eðli verð­bréfa að þau eiga að hækka í verði. Ef það væru ekki vænt­ingar um slíkt þá myndi eng­inn kaupa þau.

Þessi hópur er líka lík­leg­astur allra til að eiga eignir utan Íslands sem koma ekki fram í tölum Hag­stof­unnar, en áætlað hefur verið að íslenskir aðilar eigi hund­ruð millj­arða króna í aflands­fé­lögum sem ekki sé gert grein fyrir.

Helmingur á rúmlega allt eigið féð

Sá helm­ingur Íslend­inga sem er með minnstu tekj­urnar, alls rúm­lega 111 þús­und fjöl­skyldur, skuldar sam­an­lagt meira en hann á. Það hefur þó dregið úr þeirri stöðu á und­an­förnum árum og skiptir þar mestu að eigið fé fast­eigna hefur rúm­lega þre­fald­ast frá árs­lokum 2010. Ástæðan þess er ein­föld: hækk­andi hús­næð­is­verð og bætt skulda­staða. Eigið fé í fast­eignum lands­manna hefur enda auk­ist um 2.555 millj­arða króna frá árinu 2010 og er því ábyrgð fyrir 80 pró­sent þeirrar hækk­unar sem Hag­stofan skrá­setur.

Sá helm­ingur lands­manna sem er með hæstu tekj­urnar er því með jákvætt eigið fé um alls 4.851 millj­arð króna, eða meira en sem nemur eigin fé þjóð­ar­innar allrar.

Hlutfall og krónur

Ein­faldur sam­an­burður á eigna­stöðu fólks á Íslandi er flók­inn. Sér­stak­lega vegna þess að þær hag­tölur sem safnað er saman mæla ekki að öllu leyti heild­ar­eignir fólks né taka til­lit til hlut­deildar þess í eignum líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. hér að ofan hefur fyrst og síð­ast horft á hann út frá því hvernig krónur skipt­ast á milli hópa.

Sumir grein­endur kjósa að horfa ein­ungis á hlut­falls­tölur þegar þeir skoða slíkar tölur, og hvort ójöfn­uður hafi auk­ist. Ef horft er á slíkar, sér­stak­lega á afmörk­uðum tíma­bilum, er mjög auð­velt að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að eigna­jöfn­uður sé að minnka.

Til að mynda áttu tíu pró­sent rík­ustu lands­manna 86 pró­sent alls eig­in­fjár í eigu ein­stak­linga árið 2010. Um síð­ustu ára­mót hafði það hlut­fall lækkað niður í tæp­lega 58 pró­sent og hlut­fallið féll lít­il­lega frá árinu áður. En taka verður til­lit til þess að árið 2010 höfðu eignir ann­arra Íslend­inga rýrnað mjög vegna hruns­ins á meðan eignir rík­ustu héld­ust nokkuð stöðugar í gegnum storm­inn.

Þegar horft er á þetta með öðrum augum, hversu stór hluti af nýjum auði fer til rík­ustu tíu pró­sent lands­manna, þá kemur í ljós að frá árinu 2010 hefur, líkt og áður sagði, 43 pró­sent hans endað hjá þessum hópi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jöfnuður

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hinn kerf­is­bundni íslenski ójöfn­uður

Það er eng­inn vafi að mark­aðs­bú­skapur og alþjóða­sam­vinna hefur aukið lífs­gæði á Íslandi. Árið 1994, þegar samn­ing­ur­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) tók gildi var lands­fram­leiðsla Íslend­inga 440 millj­arðar króna. Í fyrra var hún 2.555 millj­arðar. Kakan hefur því stækkað feiki­lega mikið á ald­ar­fjórð­ungi. Það er gott. Íslandi gengur best þegar við stöndum fyrir við­skipta­frelsi, alþjóða­sam­vinnu, mann­rétt­indi og leggjum áherslu á...

Mest lesið undanfarið ár