Hefur ekki orðið var við mikla eftirspurn eftir íslenskum stjórnendum á alþjóðavettvangi

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir verka­lýðs­fé­lögin geta bent á hinar miklu hækk­anir sem ráða­menn og banka­stjórar hafi tekið sér þegar þeir ræða við sína félags­menn um átök á vinnu­mark­aði.

„Staðan er í algjörum hnút. Við erum komin með allt að borð­inu sem við getum farið og lagt fyrir okkar bak­land til ákvörð­unar um fram­haldið. Það sem við erum með í nest­is­box­inu í þeim fund­ar­höldum eru ákvarð­anir kjara­ráðs þar sem emb­ætt­is­manna­kerfið og alþing­is­menn og ráð­herrar tóku sér hund­ruð þús­unda í launa­hækk­anir, hlut­falls­lega um 45 pró­sent. Á meðan að þeir eru til­búnir til að liðka fyrir um 6.750 krónum á mán­uði til handa okkar félags­mönnum.“

[links]Þetta sagði Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut.

Hann sagð­ist líka geta bent á aðrar launa­hækk­anir. „Við erum með ákvarð­anir stjórnar Lands­bank­ans um 80 pró­senta launa­hækkun á banka­stjór­ann þar. Við erum með ýmis­legt í fartesk­inu til að setja hlut­ina í sam­hengi gagn­vart okkar félags­mönnum sem taka síðan ákvörðun um fram­haldið og hversu langt þeir eru til­búnir til að gagna til þess að sækja fram raun­veru­legar kerf­is­breyt­ingar í okkar sam­fé­lagi.“

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Ragnar ræddi líka þann rök­stuðn­ing sem haldið hefur verið á lofti vegna launa­hækk­ana banka­stjóra rík­is­banka, og gaf ekki mikið fyrir hann. „Varðandi sam­keppn­is­hæfni, þá hef ég ekki orðið var við, í sam­tölum við erlenda kollega mína, mikla eft­ir­spurn eftir íslenskum stjórn­endum á alþjóða­vett­vangi. Síður en svo.“

[adspot]Hann segir að þegar rætt sé um sam­keppn­is­hæfni þá þurfi að horfa á það út frá sam­keppn­is­hæfi sam­fé­lags­ins. „Ef við ætlum að tala um sam­keppn­is­hæfni þá þurfum við að bjóða sam­keppn­is­hæf lífs­kjör. Bara þannig að fólk vilji koma hér og starfa. Ef við viljum fá hér menntað fólk og vera hér með gott og upp­byggi­legt sam­fé­lag. Samfélag þar sem fólk hefur hús­næð­is­ör­yggi. Samfélag þar sem fólk nær endum saman á dag­vinnu­launum og sam­fé­lag þar sem fólk getur lifað með mann­legri reisn. Þetta er grunn­stefið. Ef við ætlum að tala um sam­kvæm­is­hæfni þá verðum við að byrja á réttum enda. Sam­fé­lagið okkar, lífs­kjörin hér, þurfa að vera sam­keppn­is­hæf, þannig að við förum kannski að fá eitt­hvað af fólk­inu okkar sem að flúði hér lífs­kjör eftir hrun, og hefur ekki verið fáan­legt til að snúa til baka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár