Kæra gjaldtöku vegna lóðaúthlutunar í Þorlákshöfn

Inn­við­a­ráðu­neyt­inu hefur borist kæra vegna gjald­töku sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss á umsóknum um bygg­ing­ar­lóðir. Úthlut­un­ar­ferlið sjálft er einnig gagn­rýnt fyrir póli­tísk hags­muna­tengsl og er ráðu­neytið hvatt til að taka ferlið til rann­sóknar.

Yfir þúsund umsóknir bárust um 34 lóðir í Vesturbergi í Þorlákshöfn í desember. Úthlutunin fór fram milli jóla og nýárs, um þremur vikum seinna en til stóð.
Yfir þús­und umsóknir bár­ust um 34 lóðir í Vest­ur­bergi í Þor­láks­höfn í des­em­ber. Úthlut­unin fór fram milli jóla og nýárs, um þremur vikum seinna en til stóð. Mynd: Ölfus

Fyr­ir­tæki sem sótti um lóð í Þor­láks­höfn í des­em­ber en fékk ekki úthlutun hefur kært gjald­töku Ölfuss á umsókn um bygg­ing­ar­lóðir. Auk þess gerir kær­andi athuga­semdir við með­ferð umsókn­anna og telur eðli­legt að inn­við­a­ráðu­neytið taki ferlið til skoð­unar.

Yfir þús­und umsóknir bár­ust um 34 lóðir í Vest­ur­bergi í Þor­láks­höfn í des­em­ber. Fjöldi umsókn­anna vakti athygli. Vest­ur­berg er nýtt hverfi í Þor­láks­höfn, vestur af gró­inni byggð með teng­ingu við Sel­vogs­braut, eina af stofn­brautum bæj­ar­ins. Um er að ræða fyrsta áfanga nýrrar byggðar þar sem eru þrettán ein­býl­is­hú­s­lóðir, 18 rað­hú­s­lóðir og fjórar lóðir fyrir smá­fjöl­býli. Alls er um 103 íbúða­ein­ingar að ræða.

Mistök við talningu umsókna

Umsókn­ar­frestur var til 2. des­em­ber og til stóð að úthluta lóð­unum 9. des­em­ber. Alls bár­ust 1.118 umsóknir sam­kvæmt fund­ar­gerð bæj­ar­ráðs og sagði Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, í sam­tali við Hafn­ar­fréttir að hann hafi átti von á miklum áhuga en að fjöld­inn hafi farið fram úr hans vænt­ingum. Sagði hann jafn­framt að sveit­ar­fé­lagið yrði lík­lega að finna nýjar leiðir til að draga á milli umsækj­enda.

Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um lóða­út­hlut­un­ina og fjölda umsókna segir Sigmar B. Árnason, bygg­ing­ar­full­trúi í Ölfusi að mis­tök urðu mis­tök í taln­ingu fjölda umsókna og reynd­ust þær 1.023 tals­ins. Þar af voru 26 ógildar og því var unnið úr 997 umsóknum. Af þeim voru 158 ógildar, sam­kvæmt reglum um úhlutun lóða í sveit­ar­fé­lag­inu, þar sem umsækj­andi er hand­hafi lóðar sem fram­kvæmdir eru ekki hafnar á.

Undantekning gerð á innheimtu byggingagjalds

Sú und­an­tekn­ing var gerð við úthlutun lóð­anna að inn­heimta eitt bygg­inga­gjald, alls 7.471 kr., óháð fjölda umsókna hjá ein­stak­lingi eða fyr­ir­tæki. Alls bár­ust umsóknir frá 78 ein­stak­lingum og 68 frá fyr­ir­tækjum. Flestar umsóknir frá ein­stak­lingi voru 18 tals­ins og 22 frá fyr­ir­tæki. Ekki var greint frá því sér­stak­lega að þessi leið yrði farin og hefur umsækj­andi sem Kjarninn ræddi við bent á með þessu fyr­ir­komu­lagi hafi aukið ójafn­ræði verið til staðar meðal umsækj­enda þar sem boðuð gjald­taka fyrir hverja umsókn hafi getað haldið aftur af fólki varð­andi fjölda umsókna.

Sigmar segir í svari til Kjarnans að ekki hafi þótt verj­an­legt að taka umsýslu­gjöld fyrir hverja umsókn. Því var öllum umsóknum safnað saman frá hverjum ein­stak­lingi og fyr­ir­tækjum og eitt svar­bréf sent. Í stað þess að rukka gjald fyrir þær 997 umsóknir sem teknar voru til umfjöll­unar var bygg­ing­ar­gjald rukkað hjá 78 ein­stak­lingum og 68 fyr­ir­tækjum, eða sem nemur rúmri milljón króna. Ef gjald hefði verið inn­heimt fyrir hverja umsókn fyrir sig hefði það numið rúmum 7,4 millj­ónum króna.

Kærandi telur að sveit­ar­fé­lag­inu sé ekki heim­ilt að inn­heimta sér­stakt gjald fyrir hverja umsókn um bygg­ing­ar­leyfi og fer fram á að gjald­taka sveit­ar­fé­lags­ins vegna lóð­aum­sókna verði felld úr gildi og sveit­ar­fé­lag­inu verði gert að end­ur­greiða gjaldið auk kostn­aðar og vaxta. Sigmar segir að sveit­ar­fé­lagið muni ekki taka afstöðu til kærunnar fyrr en nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins liggi fyrir.

Úthlutað milli jóla og nýárs án vitundar umsækjenda – „Hingað til hefur spilastokkur dugað“

Til stóð að til­kynna um lóða­út­hlut­anir 9. des­em­ber. Sigmar segir í svari til Kjarnans að vegna fjölda umsókna hafi farið mik­ill tími í að vinna úr þeim og því hafi úthlut­unin taf­ist og fór hún fram á fundi afgreiðslu­nefndar bygg­inga­full­trúa 27. des­em­ber.

Í reglum um úthlutun lóða í Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi kemur fram að „að lok­inni úthlutun skal öllum umsækj­endum svarað skrif­lega.“ Í kærunni kemur hins vegar fram að engin til­kynn­ing hafi borist en upp­lýs­ingar um úthlutun hafi birst í fund­ar­gerð afgreiðslu­nefndar bygg­inga­full­trúa frá 27. des­em­ber. Sigmar full­yrðir að öllum umsækj­endum hafi verið sent svar­bréf en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans kann­ast fleiri umsækj­endur en sá sem sendi kæruna ekki við að hafa fengið svar­bréf. Sigmar segir að svar­bréfin hafi verið send á tíma­bil­inu 29. des­em­ber til 10. jan­úar.

Í fund­ar­gerð afgreiðslu­nefndar bygg­ing­ar­full­trúa frá því í lok des­em­ber þegar úthlut­unin fór fram segir að auk bygg­ing­ar­full­trúa hafi starfs­maður á skrif­stofu sveit­ar­fé­lags­ins verið við­staddur. Ekki er til­greint hvernig var staðið að útdrætt­inum en í fund­ar­gerð bæj­ar­ráðs frá 8. des­em­ber var sam­þykkt með bókun að umsókn­unum yrði raðað upp og gefið fast númer í töflu­reikn­inum Excel. „Lóðunum verði síðan úthlutað skv. slembitölu falli (random num­ber gener­ator - Google leit),“ segir í bók­un­inni sem var sam­þykkt sam­hljóða.

Sigmar segir í svari sínu til Kjarnans að hingað til hafi spila­stokkur dugað við úthlut­anir þar sem ein sort er notuð og umsækj­endur boð­aðir á stað­inn og dregið um lóðir. Það hafi hins vegar ekki verið mögu­leiki nú og því hafi verið dregið af handa­hófi úr Excel-skjali í þetta sinn. Fulltrúi sýslu­manns var ekki verið við­staddur úthlut­un­ina þar sem ekk­ert í lóða­út­hlut­un­ar­reglum sveit­ar­fé­lags­ins geri ráð fyrir því. „Svo hefur aldrei verið,“ segir Sigmar.

Meðferð umsóknanna „efni í sérstaka rannsókn“

Í kærunni segir einnig að með­ferð umsókna við lóða­út­hlut­un­ina sé efni í sér­staka rann­sókn og eðli­legt væri að ráðu­neytið tæki málið til skoð­unar. Þar er full­yrt að nokkrir aðilar tengdir Sjálf­stæð­is­flokknum í Ölfusi hafi fengið lóðir. Auk þess er það gagn­rýnt að „fyr­ir­ferð­ar­mik­ill verk­taki í Þor­láks­höfn fær bæði úthlutað rað­húsa­lóð fyrir fyr­ir­tæki sitt og ein­býl­is­húsa­lóð per­sónu­lega.“

Úthlut­unin er sögð óhefð­bundin og að hlut­leysis hafi ekki verið gætt við fram­kvæmd­ina. „Það er alla­vega alveg ljóst að fram­kvæmdin á þess­ari lóða­út­hlutun er langt frá því að vera yfir vafa hafin,“ segir í kærunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár