Tíu staðreyndir um framgang efnahagsmála frá hruni

1. Eigin fé í íslenskum sjáv­ar­út­vegi hefur safn­ast hratt upp á und­an­förnum árum, en það var nei­kvætt um 80 millj­arða í lok árs 2008. Sé mið tekið af stöðu mála í lok árs 2014 þá var eigið fé í íslenskum sjáv­ar­út­vegi, stoð­grein í íslenska hag­kerf­inu til ára­tuga, 185,4 millj­arðar króna. Á sex árum hefur eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja batnað um rúm­lega 265 millj­arða króna.

2. Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi, á árunum 2008 til og með 2014, námu sam­tals 48,8 millj­örðum króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Jónas Gestur Jónasson, end­ur­skoð­andi hjá Deloitte, tók saman. Þetta tíma­bil er besta rekstr­ar­tíma­bil í sögu íslensks sjáv­ar­út­vegs. Miklu hefur skipt í þessu sam­hengi, að geng­is­fall krón­unnar styrkti sam­keppn­is­stöðu sjáv­ar­út­vegs­ins veru­lega frá því sem var fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar. Sem dæmi má nefna, þá kost­aði Banda­ríkja­dalur 58 krónur, í lok árs 2007, en í dag kostar hann 130 krónur. Fyrir fyr­ir­tæki með stóran hluta kostn­aðar í krónum, en tekjur í erlendri mynt, þá styrki þetta rekst­ur­inn.

3. Lands­virkjun, lang­sam­lega stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins, hagn­að­ist um 10,8 millj­arða króna í fyrra en heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu 54 millj­örðum króna, 421 millj­ónum Banda­ríkja­dala. Með­al­verðið á mega­vattið sem fyr­ir­tækið fékk var 24,5 Banda­ríkja­dalir sem er lægsta verð sem fyr­ir­tækið hefur fengið að með­al­tali í fimm ár. Árið 2010 fékk fyr­ir­tækið 28,7 Banda­ríkja­dali á mega­vattið. Meg­in­skýr­ingin er sú að álverð hefur farið lækk­andi en orku­salan til álvera byggir á samn­ingum, þar sem sölu­verð raf­orku sveifl­ast meðal ann­ars eftir álverði. Eigin fé Lands­virkj­unar er nú rúm­lega 1,9 millj­arður Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 255 millj­örðum króna. Skuldir hafa lækkað um 107 millj­arða frá árinu 2009, og nema heild­ar­skuldir Lands­virkj­unar nú tæp­lega tveimur millj­örðum Banda­ríkja­dala.

4. Verð­bólga mælist nú 2,2 pró­sent á árs­grund­velli, 0,3 pró­sentu­stigum undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands sem er 2,5 pró­sent. Verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sentum frá því í febr­úar 2014, eða í tvö ár sam­fleytt.

5. Atvinnu­leysi mælist nú 2,8 pró­sent, miðað við tölur Hagstofu Íslands frá því í jan­úar. Atvinnu­leysið fór hæst upp undir átta pró­sent, sam­kvæmt mán­að­ar­legum mæl­ingum Vinnu­mála­stofn­unar, seinni part árs 2009 og fyrri part árs 2010. Frá þeim tíma hefur dregið jafnt og þétt úr atvinnu­leysi.

6. Íslend­ingar voru 332.750 1. jan­úar 2016. Hinn 1. jan­úar 2009 voru íbúar lands­ins 319.400. Fjölg­unin á sjö árum er um 13.350 manns.

7. Sú atvinnu­grein sem hefur vaxið hrað­ast, og er nú orðin stærsta gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­grein þjóð­ar­innar, er ferða­þjón­usta. Árið 2009 komu 464 þús­und erlendir ferða­menn til lands­ins, en í fyrra voru þeir 1,3 millj­ónir. Þessi mikla fjölgun hefur haft mikil hlið­ar­á­hrif á hag­kerfið, með auk­inni fjár­fest­ingu og þjón­ustu. Því er spáð að erlendum ferða­mönnum muni halda áfram að fjölga á næstu árum, um 20 til 30 pró­sent á ári.

8. Mikil aukn­ing varð í fram­taks­fjár­fest­ingu í tækni- og nýsköp­un­ar­geir­unum á Íslandi á síð­asta ári. Alls nam ný fjár­mögnun fyr­ir­tækja sem til­heyra þeim geirum, og eru oft kölluð „eitt­hvað annað", 194 millj­ónum dala, um 25,2 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar nam fjár­fest­ing í þeim 11,5 millj­ónum dala, um 1,5 millj­örðum króna, árið 2014. Hún tæp­lega 17fald­að­ist því í fyrra. Árið 2014 áttu sér stað alls sjö fjár­fest­ingar í þessum geirum en í fyrra voru þær 17 tals­ins. Þetta kom fram í úttekt sem vef­ur­inn The Nordic Web, sem sér­hæfir sig í umfjöllun um nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja á Norð­ur­löndum, hefur gert.

9. Íslenska ríkið á nú um 80 pró­sent af fjár­mála­kerfi þjóð­ar­innar eftir að hafa yfir­tekið eign­ar­hald á Íslands­banka í byrjun árs­ins. Ríkið á Lands­bank­ann (98 pró­sent), Íslands­banka (100 pró­sent), Íbúða­lána­sjóð (100 pró­sent), Byggða­stofnun (100 pró­sent) og LÍN (100 pró­sent). Þá á ríkið 13 pró­sent hlut í Arion banka, sem nú er í sölu­ferli. Eigið fé Lands­bank­ans og Íslands­banka er tæp­lega 450millj­arðar króna, þar af er eigið fé Lands­bank­ans 264 millj­arðar. Samkvæmt fjár­lögum árs­ins í ár, er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður selji 28,8 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, og fái fyrir það rúm­lega 70 millj­arða króna.

10. Skuldir rík­is­sjóðs hafa lækkað hratt á und­an­förnum miss­erum en í fyrra voru skuldir við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn greiddar upp, og efna­hags­á­ætlun sjóðs­ins og stjórn­valda lauk form­lega. Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs í árs­lok 2015 eru áætl­aðar um 1.349 ma.kr. til sam­an­burðar við 1.492 ma.kr. í árs­lok 2014. Sam­svarar það um 10% lækkun skulda á milli ára. Á árinu 2016 er áætlað að skuldir rík­is­sjóðs lækki enn frekar og nemi 1.171 ma.kr. í lok árs­ins. Það er upp­hæð sem nemur rúm­lega 50 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu Íslands, miðað við bráða­birgða­tölur árs­ins 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár