Snjallborgin sem býr til heimili framtíðarinnar

Mikil fram­þróun á sér nú stað þegar kemur að orku­nýt­ingu heim­ila. Stafangur í Noregi er hálf­gerð til­rauna­stofa í þessum efnum, en þar býr Herdís Sig­ur­gríms­dóttir og fylgist grannt með gangi mála.

Stafangur og nágrenni er þessa dag­ana risa­stór til­rauna­stofa fyrir snjall­lausnir sem spara raf­orku, stytta ferða­tíma, draga úr útblæstri og bæta aðhlynn­ingu aldr­aðra, auk ann­arra sam­fé­lags­verk­efna. Risa­vaxið ljós­leið­ara­net og snjall­heilar í raf­magns­töfl­unni eru lyk­ill­inn að heim­ilum fram­tíð­ar­innar. Á snjall­heim­ilum Stafang­urs er app í snjall­sím­anum allt í senn: lyk­ill­inn að úti­dyra­hurð­inni, fjar­stýr­ingin að sjón­varp­inu, termosta­tið á ofn­inum og slökkvar­inn fyrir öll ljós heim­il­is­ins.

Snjall­heili heim­il­is­ins er líka bein­tengdur dreifi­kerfi raf­orku, fær skila­boð um það hvenær sól­ar­hrings­ins raf­magn er ódýr­ast og setur þá þvotta­vél­ina í gang og hleður raf­bíl­inn. Þá er hægt að tengja hann við þjófa- og bruna­varn­ar­kerfi sem hringir beint í slökkvi­liðið ef reyk­skynj­ar­inn fer í gang. Þannig má spara dýr­mætar mín­útur. Einnig er verið að þróa snjall­lausnir sem geta ger­bylt umönnun aldr­aðra.

Nýsköpunarborgin Stafangur

Stafangur er ein af níu nýsköp­un­ar­borgum sem taka þátt í risa­vöxnu þró­un­ar­verk­efni Evr­ópu­sam­bands­ins fyrir snjall­borgir (smarter cities and communities). Á næstu fimm árum munu Stafangur, í nánu sam­starfi við Eind­hoven og Manchester, prófa urmul snjall­lausna í borg­ar­skipu­lagi og hús­rekstri. Bestu lausn­irnar verða síðan teknar upp í þremur öðrum evr­ópskum borgum, Prag, Leipzig og Sabadell á Spáni.

Það eru ekki bara snjall­hús á list­anum, þó þau verk­efni hljóti mesta athygli. Það er í sjálfu sér ekki nýtt að það sé hægt að opna úti­dyrnar með appi, kveikja og slökkva ljós og stjórna kynd­ingu heim­il­is­ins með sím­anum. Það er ekki mörg heim­ili sem eru útbúin með þeirri tækni ennþá, en það hefur verið gert.

Heildstæð hugsun í raforkustjórnun

Nýj­ung­arnar liggja hins vegar í heild­stæðri og kerf­is­bund­inni hugsun um það hvernig maður geti bundið snjall­lausnir saman og fengið fram marg­feld­is­á­hrif sem stuðla að betri borg­ar­sam­fé­lagi. Með mark­vissri notkun á snjall­lausn­unum er hægt að spara um 20% af raf­magns­reikn­ingi heim­il­is­ins. Ef nógu margir taka upp snjall­ari raf­magns­notkun, þá getur þetta þýtt miklu betri nýt­ingu á öllum innviðum.

Dreifi­kerfið er byggt til að þola stóra toppa í raf­notkun á morgn­ana og um kvöld­mat­ar­leytið, en liggur að sama skapi og mallar í hæga­gangi á nótt­unni. Eftir því sem allt kerfið, heim­ilin og vinnu­staðir verða snjall­ari, er bæði hægt að koma í veg fyrir óþarfa raf­magns­eyðslu og líka jafna álagið á dreifi­kerfið, sem þarf þá ekki heldur að vera jafn­viða­mikið.

Nýskapandi raforkuframleiðandi

Fyr­ir­tækið Lyse er hér í lyk­il­hlut­verki. Lyse rekur upp­haf sitt til vatns­afls­virkj­ana innst í snar­bröttum Lyse-firð­inum, austan við Stafangur, og er enn umsvifa­mik­ill raf­orku­fram­leið­andi. Fyr­ir­tækið rekur einnig eitt stærsta ljós­leið­ara­net í Noregi og selur í dag net­þjón­ustu og sjón­varp til rúm­lega 400.000 við­skipta­vina. Und­an­farin ár hefur fyr­ir­tækið einnig rekið öfl­ugt nýsköp­un­ar­starf til að þróa snjall­lausnir fyrir heim­ili og vinnu­staði til að spara raf­magn og dreifa álagi á kerfið. Í dag hugsar fyr­ir­tækið enn lengra og vinnur með snjall­lausnir fyrir heima­þjón­ustu og aðhlynn­ingu aldr­aðra, svo dæmi séu tekin.

Núna er verið að prófa þetta í smáum skala en plönin eru stór. Á næstu þremur árum mun Lyse setja upp sjálf­virka raf­magns­mæla hjá 140.000 við­skipta­vinum sínum, sem lesa sjálf­krafa af og senda gögn til Lyse á klukku­tíma fresti. Þessir mælar tengj­ast lít­illi tölvu sem er í raun heil­inn í snjall­heim­il­inu.

Þar að auki er nú verið að besta lausn­irnar. Upp­setn­ing á snjall­lausnum á heim­ilum hefur hingað til kostað mikla vinnu, hugsun og und­ir­bún­ing fyrir hvert og eitt til­felli. Það hefur hingað til verið algengt að for­ritun á hverju snjall­heim­ili fyrir sig hafi tekið um 200 tíma. Lyse er hins vegar búið að þróa staðl­aða snjall­húsa­lausn, sem tekur aðeins tvo tíma að for­rita.

En snilldin við snjall­húsa­kerfið er að maður þarf ekki að hugsa svo mikið út í það. Nú þegar er hægt að fá allra handa snjöll tæki og tól, öpp og vél­menni sem létta manni lífið á heim­il­inu. Guardian birti í vik­unni ágæta sam­an­tekt yfir áhuga­verð heim­il­is­tæki sem fást nú þegar eða eru á leið­inni. En hvað er unnið með því að fá mörg tæki sem létta manni lífið, ef maður notar tím­ann sem spar­ast, og vel það, í að læra á tækin, for­rita, fikta í still­ing­unum, hringja í við­gerð­ar­mann og leita að ábyrgð­ar­skír­tein­unum fyrir hvert tæki fyrir sig?

Hvað eru snjallar borgir?

Hið sama gildir um borg­irnar. Þær eru sam­býli margra ólíkra afla og aðila. Til þess að þróa rót­tækar og gagn­gerar breyt­ingar á innviðum sam­fé­lags­ins, verða allir að leggj­ast á eitt. “Það er hægt að fylla borg­irnar með tækni svo út úr flóir, en ef tækni­lausn­irnar eru ekki tengdar og að vinna saman, eða ef við náum ekki að teikna þær inn í heild­ar­skipu­lagið, þá missum við af mörgum tæki­færum til að bæta þjón­ust­una við íbú­ana,” segir Ellen Våland Mauritzen hjá Stafang­urs­borg.

Það er að mörgu leyti það sem stóra snjall­borga­verk­efnið snýst um: að sam­eina snjall­lausnir og fá þær til að vinna saman. „Þetta verk­efni varir jú bara í fimm ár. Í raun­inni fer mjög lít­ill hluti þessa verk­efnis í að finna upp á nýrri tækni; margt af þessu er nú þegar til. Þannig að það er ekk­ert margt á list­anum sem fær fólk til að segja: ‘vá! Hugsaðu þér! Í fram­tíð­inni verður þetta hægt!’ Þetta er miklu frekar nýsköp­un­ar­verk­efni, þar sem við prófum tækni­lausnir í nýju sam­hengi eða í stærri skala, með það fyrir augum að ná betri nýt­ingu á orku, plássi, sam­göngum; eða í öðrum til­gangi,” bætir kollegi hennar við: Gerd Seehuusen, sem stýrir verk­efn­inu fyrir hönd Stafang­urs­borgar.

„Þegar ég hugsa um nýsköpun og snjall­lausnir, þá dettur mér alltaf í hug Georg gír­lausi og fugla­húsið sem hann sat með á hausnum til að finna upp á hlutum,” segir Gerd. „Það sem við erum að gera hér er í raun­inni að setja svona upp­finn­inga­hatt á heila borg og reyna að fá marga aðila til að þróa lausnir saman og hugsa heild­stætt.”

Samvinna milli geira nauðsynleg

Ein af lyk­ilá­stæð­unum fyrir því að Stafangur fékk að taka þátt í einu viða­mesta nýsköp­un­ar­verk­efni Evr­ópu­sam­bands­ins á þessu sviði, þrátt fyrir að Noregur sé ekki í ESB, er sú að hér fara saman kraft­mikil nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki, háskólaum­hverfi sem er í góðum tengslum við atvinnu­lífið og sveit­ar­fé­lög sem leggja mikið upp úr að styðja við bakið á nýsköpun.

„Í Stafangri er löng hefð fyrir náinni sam­vinnu milli háskól­ans, atvinnu­lífs­ins og sveit­ar­fé­lag­anna. Ætli það megi ekki rekja það til olíu­iðn­að­ar­ins,” segir Gerd Seehuus, verk­efn­is­stjóri hjá Stafang­urs­borg. Stafangur hefur lengi verið mið­punktur norska olíu­iðn­að­ar­ins. „Hér er mikil hefð fyrir nýsköpun; að hafa alltaf augun opin fyrir nýjum lausnum og styðja nýjar og lof­andi hug­myndir.”

Tækifærin í kreppunni

Stafangur hefur fengið að kenna á lækk­andi olíu­verði, enda mið­punktur norska olíu­iðn­að­ar­ins. Þó að ástandið sé langt frá að geta jafn­ast á við fjár­málakrepp­una á Íslandi, þá hafa fjölda­upp­sagnir og vax­andi atvinnu­leysi verið fastir liðir í fréttum frá Stafangri þetta árið og lítil von á snöggum bata.

Gerd segir þetta hins vegar hafa góð áhrif á nýsköp­un­ar­um­hverfið, í það minnsta fyrir þetta verk­efni. Nú neyð­ist fólk til að víkka sjón­deild­ar­hring­inn. Það hefur verið mik­ill fókus á olíu­iðn­að­inn fram að þessu en nú er fólk allt í einu farið að hafa meiri áhuga á verk­efnum eins og þessu.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár