Næs á Álftanesi

Doktor Gunni hlýddi á Ást & praktík

Tónlist

Ást & praktík - Hipsum­haps

Gefðu umsögn

Hipsum­haps er Fannar Ingi Frið­þjófs­son og það fólk sem hann tekur með sér í það og það skiptið. Hipsum­hapsið kom inn með öryggi þegar fyrst heyrð­ist í því. Lagið „Lífið sem mig langar í“ sló í gegn enda auð­velt að tengja við bæði lag og texta um ein­falt líf og kap­ít­al­ískar grunn­þarfir. Fannar sló með lag­inu tón sem hefur ómað í verkum hans síðan og ekki síst á þess­ari glæ­nýju plötu (vín­yl­plata og streymi), þar sem jarð­bundnar lífs­spekipæl­ingar og ást­ar­hjal eru í aðal­hlut­verki í bland við dannað og, að mestu leyti, þægi­legt vellíð­unar-snekkju­popp.

Ferskar gulrætur

Í textum sínum er Fannar að upp­skera af sama akri og menn eins og Magnús Eiríks­son og Svavar Pétur (Prin­spóló) hafa áður tekið upp ferskar íslenskar gul­rætur. Hér er fjallað um hvers­dags­leik­ann í allri sinni dýrð (rýrð?). Atli Bollason stígur úr Sprengju­höll­inni og leggur hönd á texta­plóg og það er senni­legt að sumt …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár