Vilja að bannað verði að nota pálmaolíu í lífdísil á Íslandi

Lögð hefur verið fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga á Alþingi um að bannað verði að nota pálma­olíu í fram­leiðslu líf­dís­ils á Íslandi. Eft­ir­spurn eftir pálma­olíu hefur auk­ist gríð­ar­lega en fram­leiðsl­unni fylgir aukin eyð­ing regn­skóga og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda

Tíu þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, Vinstri Grænna, Við­reisnar og Pírata hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að bannað verði að nota pálma­olíu í fram­leiðslu líf­dís­ils á Íslandi. Í til­lög­unni er lagt til að Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra verði falið að leggja fram frum­varp, eigi síður en í lok árs 2019, um að bannað verði að nota pálma­olíu í líf­dísil. Í grein­ar­gerð­inni segir að regn­skógar séu ruddir þegar pálma­olía er unnin og að það hafi ill áhrif á umhverfið og valdi marg­vís­legum skaða sem brýnt er að girða fyrir með banni.

Pálmaolía með hærra kolefnisspor en jarðefnaeldsneyti

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar, sem byggð er á umfjöllun Rann­veigar Magn­ús­ar­dóttur vist­fræð­ings, segir að olíu­pálmi er fljót­vax­inn hita­beltispálmi og upp­runn­inn í Vestur- og Suð­vestur-Afríku. Úr ávöxtum þessa pálma er unnin pálma­olía. Pálma­olía er ódýrasta jurta­ol­ían á mark­að­inum í dag og er að finna í gríð­ar­legum fjölda neyt­enda­vara, jafnt í kex­kökum sem í sápu og snyrti­vörum. Evr­ópu­sam­bandið sam­þykkti reglu­gerð árið 2014 um að merkja þyrfti vörur með pálma­olíu sér­stak­lega.

Þó stærstur hluti þeirrar pálma­olíu sem fram­leidd er fari í mat­vörur og snyrti­vörur hefur hún í auknum mæli und­an­far­inn ára­tug verið notuð sem elds­neyti eða íblöndun í elds­neyti. Áætlað er að árið 2014 hafi evr­ópsk far­ar­tæki brennt meira en þremur millj­ónum tonna af pálma­olíu, eða um bil þriðj­ungur af allri líf­elds­neyt­is­notkun í Evr­ópu­sam­band­inu. Í grein­ar­gerð­inni segir að hefð hafi verið fyrir því að líta á líf­elds­neyti sem kolefn­is­hlut­lausa vöru en sú ein­földun hefur í raun blekkt stjórn­völd til að trúa því að pálma­olía í líf­elds­neyti sé betri fyrir lofts­lagið en jarð­efna­elds­neyti en því miður sé raunin þver­öfug.

Lífdísill framleiddur á þremur stöðum hér á landi

Aukin eft­ir­spurn í Evrópu eftir líf­elds­neyti hefur orsakað enn meiri fram­leiðslu á pálma­olíu í Malasíu og Indónesíu, og því fylgir aukin eyð­ing regn­skóga, þurrkun á mólendi, minni líf­fræði­legur fjöl­breyti­leiki og aukin losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Líf­dís­ill er algeng­asta líf­elds­neyti í Evrópuen en hrá­efnið sem notað er til fram­leiðslu líf­dísil getur verið margs­konar, þar á meðal dýrafita, fiskúr­gangur og jurta­olíu. Lífs­dísill­inn er hægt að nota á allar dísil­vélar, þó að í sumum til­fellum þurfi að leggj­ast í breyt­ingar á elds­neyt­is­kerf­inu.

Reiknað hefur verið út að líf­elds­neyti frá jurta­olíu, sem er um 70 pró­sent af líf­elds­neyt­is­mark­aði í Evrópu, losi 80 pró­sent meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en jarð­efna­elds­neytið sem verið er að skipta út. Pálma­olía trónir þar hæst og er þrisvar sinnum verri en jarð­efna­elds­neyti, en næst á eftir kemur soja­olía sem er tvisvar sinnum verri.

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir að líf­dís­ill sé fram­leiddur á þremur stöðum á Íslandi í dag og því sé það nýtt tæki­færi til að fram­leiða eins umhverf­is­vænan líf­dísil og mögu­legt er. Í grein­ar­gerð­inni segir að hægt að sé að nýta fjöl­margt annað í fram­leiðslu líf­dís­ill hér á landi en pálma­olíu, t.d. úrgangs­mat­ar­olíu og dýrafitu, end­ur­nýta met­anól og mögu­lega í fram­tíð­inni þör­unga. Því leggja þing­menn­irnir tíu til að bannað verði að nota pálma­olíu í fram­leiðslu líf­dís­ill hér á landi.

Veldur eyðingu regnskóga

Í grein­ar­gerð­inni segir að eft­ir­spurn eftir pálma­olíu hafi auk­ist veru­lega und­an­farna ára­tugi og til þessa anna henni séu regn­skógar ruddir í stórum stíl. Lönd eins og Indónesía og Malasía, sem fram­leiða lang­mest af pálma­olíu, hafa nú þegar fellt stóran hluta af regn­skógum sínum. Talið er að hið minnsta 15 millj­ónir hekt­ara af regn­skógi sé nú þegar búið að fella fyrir fram­leiðslu á pálma­olíu, aðal­lega í Indónesíu og Malasíu. Slíkt land­flæmi jafn­ast á við eitt og hálft Ísland að stærð. Fram­leiðsla á pálma­olíu hefur tvö­fald­ast und­an­far­inn ára­tug og mun lík­lega vegna mik­illar auk­innar eft­ir­spurnar frá Asíu tvö­fald­ast aukast enn meira fram til árs­ins 2020.

Regn­skógar eru mjög frjósamir og búa yfir miklum líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika. Á einum hekt­ara í Amazon-frum­skóg­inum hafa til dæmis fund­ist fleiri en 230 teg­undir trjáa. Þar að auki er skógur miklu meira en aðeins tré og því miður tap­ast einnig margar dýra- og smá­dýra­teg­undir þegar skógar eru ruddir.

Regn­skógar eru auk þess gríð­ar­lega stórar kolefn­is­geymslur og sumir regn­skógar, einkum í Suð­austur-Asíu, vaxa í kolefn­is­ríkum mýrum. Þegar skóg­arnir eru ruddir og brenndir aukast áhrif lofts­lags­breyt­inga, því bæði losnar kolefni út í and­rúms­loftið þegar skóg­ur­inn sjálfur er brenndur og einnig þegar mýrin er ræst fram.

Að auki kviknar oft í þessum mýrum og árið 2015, sem var mjög þurrt ár, var mik­ill hluti Suð­austur-Asíu hul­inn meng­uðu mistri sem rekja mátti að miklu leyti til skóg­ar­elda í Indónesíu vegna pálma­ol­íu­fram­leiðslu. Við það að breyta regn­skógum í plantekrur eru í raun búin til nær líf­laus land­svæði þar sem dýr eins og órangút­anar eiga sér enga von. Talið er að ef haldið verður áfram að eyði­leggja regn­skóga Indónesíu á sama hraða gætu órangút­anar orðið útdauðir í nátt­úr­unni innan örfárra ára­tuga. Enn­fremur hafa sam­tökin Amnesty International nýlega komið upp um hræði­legan aðbúnað fólks og barna sem vinnur á pálma­ol­íu­plantekrum þar sem börnum er þrælað út og konur veikj­ast við að úða skor­dýra­eitri á skóg­ar­botn­inn.

Síðustu ár hafa því nátt­úru­vernd­ar­sam­tök þrýst á fram­leið­endur í vest­rænum ríkjum að minnka notkun pálma­olíu eða að minnsta kosti þá sjálf­bæra pálma­olíu, þó skiptar skoð­anir séu um hvort að það fram­leiðsla á pálma­olía geti í raun verið sjálf­bær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár