Ríkið leggur 15 milljarða króna Keldnalandið inn í Betri samgöngur

Keldna­landið verður þróað til að sam­ræm­ast áformum um þétt­ingu byggðar á sam­göngu- og þró­unarás Borg­ar­línu. Deiliskipu­lag fyrir fyrstu upp­bygg­ing­ar­reiti á að þróa á næsta ári. Það mun taka 20 mín­útur að kom­ast með Borg­ar­línu frá Keldum á Lækj­ar­torg.

Rík­is­sjóður og Betrí sam­göngur ohf., félag sem ríkið og sveit­ar­fé­lög höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins stofn­uðu og eiga í sam­ein­ingu, hafa und­ir­ritað samn­ing um að félagið taki við Keldna­land­inu svo­kall­aða, alls um 116 hekt­ara landi við Keldna­holt og Keldur. Kaup­verðið er 15 millj­arðar króna en greitt verður fyrir það með útgáfu nýrra hluta í Betri sam­göngum. Ríkið er því í raun að leggja landið inn í félagið án greiðslu. Stærð þess að flata­máli er svipuð og mið­borgar Reykja­víkur.

Samn­ing­ur­inn er gerður á grund­velli sam­göngusátt­mál­ans sem und­ir­rit­aður var árið 2019. Þar kom fram að allur ábati rík­is­ins af sölu og þróun Keldna­lands­ins myndi renna til upp­bygg­ingar sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ef ábati verk­efn­is­ins verður meiri en þeir 15 millj­arðar króna sem áætlað er munu þeir fjár­munir renna til Betri sam­gangna.

[adspot]Félagið mun sam­kvæmt samn­ingnum ann­ast upp­bygg­ingu Keldna­lands­ins í sam­vinnu við skipu­lags­yf­ir­völd.

Í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að það eigi að gera slíkt með „það að mark­miði að hámarka virði lands­ins og upp­bygg­ing­ar­mögu­leika eins og kostur er með hag­kvæmu skipu­lagi og nýt­ing­ar­hlut­falli sem sam­ræm­ist áformum um þétt­ingu byggðar á sam­göngu- og þró­unarás Borg­ar­línu.“

20 mínútur með Borgarlínu frá Keldum á Lækjartorg

Í til­kynn­ing­unni er rifjað upp að í sam­göngusátt­mál­anum hafi verið ákveðið að flýta upp­bygg­ingu fram­tíð­ar­hverfis að Keldum sem og fram­kvæmdum við Borg­ar­línu sem fara á um hverfið endi­langt. Þjónusta Borg­ar­línu er ein helsta for­senda þess að hægt sé að umbreyta Keldum og Keldna­holti í þétta og bland­aða byggð með íbúðum, þjón­ustu og atvinnu­hús­næði. Áætlaður ferða­tími með Borg­ar­línu milli Keldna og Lækj­ar­torgs er um 20 mín­útur.

Þar segir enn fremur að Betri sam­göngur hafi í sam­starfi við skipu­lags­yf­ir­völd unnið að und­ir­bún­ingi þró­unar svæð­is­ins síðan um mitt síð­asta ár. „Snemma á nýju ári verður farið í alþjóð­lega sam­keppni um þró­unar- og upp­bygg­ing­ar­á­ætlun fyrir Keldur og Keldna­holt í sam­vinnu félags­ins og Reykja­vík­ur­borgar. Í fram­hald­inu verður unn­inn ramma­hluti Aðal­skipu­lags Reykja­víkur, deiliskipu­lags- og upp­bygg­ing­ar­á­ætl­anir á grunni verð­launa­til­lögu í sam­keppn­inni. Stefnt er að því að hægt verði að þróa deiliskipu­lag fyrir fyrstu upp­bygg­ing­ar­reit­ina á svæð­inu haustið 2023.“

900 milljónir vegna tafa á flýtigjöldum

Þegar sam­göngusátt­mál­inn var gerður var hann kynntur sem 120 millj­­arða fjár­­­fest­ing í sam­­göng­u­innviðum á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu. Stærsti kostn­að­ar­liður sátt­mál­ans er hin svo­kall­aða Borg­ar­lína. Þá var boðað að ríkið kæmi með 45 millj­­arða króna að borð­inu, að með­­­töldu sölu­verð­­mæti Keldna­lands­ins, og sveit­­ar­­fé­lögin 15 millj­­arða króna. Þá stóðu eftir 60 millj­­arð­­ar, sem boðað var að inn­­heimta skyldi með sér­­­stökum flýti- og umferð­­ar­­gjöld­um til árs­ins 2033. Sú tala hefur nú verið upp­reikn­uð, að teknu til­liti til verð­lags­breyt­inga, og er nú áætluð 74,6 millj­arðar króna.

Ef upp­hæð­inni er skipt jafnt yfir árin frá og með 2024 og út samn­ings­tím­ann þá nema árlegar tekjur af flýti- og umferð­ar­gjöldum 7,5 millj­örðum króna.

Meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar, skip­aður nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, lagði til fyrr í þessum mán­uði að Betri sam­­göngur myndi fá 900 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á næsta ári. Ástæðan er sú að ekki kemur til álagn­ingar flýti- og umferð­ar­gjalda á árinu 2023 eins og gert var ráð fyrir í sátt­mála um sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2019 og eiga að fjár­magna rekstur félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár