Ofbeldisborgin sem fékk strætó

Höf­uð­borg Kólumbíu, Bogota, hefur tekið gríð­ar­lega miklum greyt­ingum á und­an­förnum árum. Eitt sinn var borgin alræmd fyrir glæpi, en nú er öldin önnur.

Þið hafið heyrt um sjón­varps­s­er­í­una Narcos, er það ekki? Gerist í Kólumbíu árið 1992; meg­in­stefin eru ofbeldi, eit­ur­lyf og almenn spill­ing. Í lok síð­ustu aldar voru þetta lyk­il­orðin sem flestir tengdu við landið Kólumbíu. Höf­uð­borgin Bogota var gjarnan kölluð ein af verstu borgum í heimi. Mitt í allri spill­ing­unni stóðu hins vegar upp tveir óháðir stjórn­mála­menn sem áttu eftir að breyta ásýnd og anda borg­ar­innar. Það byrj­aði allt á því að háskóla­rektor sýndi 2000 stúd­entum rass­inn. Bók­staf­lega.

Síðustu helgi var annar af þessum tveimur verið kjör­inn borg­ar­stjóri á ný og hefur sögu­legt tæki­færi til að breyta borg­inni til batn­aðar. Nú er nefni­lega sterkur með­byr í frið­ar­við­ræðum Kól­umbíu­stjórnar við FARC-skæru­lið­ana. Á mið­viku­dag­inn var sam­þykkti Juan Santos, for­seti Kólumbíu, vopna­hlé við FARC-skæru­lið­ana. Í sept­em­ber var gert sam­komu­lag um rann­sókn og refs­ingar fyrir stríðs­glæpi, eitt af mörgum lyk­il­skrefum í átt að var­an­legum friði. Vonir standa til að með vor­inu ljúki þessu lengsta skæru­liða­stríði Suður-Ameríku, sem hefur staðið í ríf­lega hálfa öld.

Santos Kól­umbíu­for­seti von­ast til að frið­ar­samn­ingar verði und­ir­rit­aðir í mars á næsta ári.

Andlegur faðir Jóns Gnarr

Aftur til Bogotá. Árið er 1993. Antanas Mockus er rektor í Uni­versi­dad Nacional de Colombia. Örvænt­ing yfir þjóð­fé­lags­málum og ástandi háskól­ans veldur stöð­ugum óeirðum í háskól­anum. Mockus stendur á svið­inu í aðal­sal háskól­ans en það heyr­ist ekk­ert í honum fyrir ólátum. Stúd­ent­arnir ætla enn einu sinni að búa hann niður af svið­inu.

Til þess að fá þögn varð hann að koma þeim í opna skjöldu. Um kvöldið sýndu allar sjón­varps­stöðvar hvernig hann greip fum­laust um belt­is­sylgj­una, leysti niður um sig bux­urnar og glennti beran aft­ur­end­ann út í háskóla­sal­inn. Mockus neydd­ist til að segja af sér eftir þetta.

Svo leið að sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 1995. Almenn­ingur var búinn að fá nóg af spilltum stjórn­mála­mönnum og kosn­inga­lof­orðum sem eru orðin tóm. Fólk vildi fá “el loco Antanas” sem borg­ar­stjóra.

Í kosn­inga­bar­átt­unni leidd­ist hann út í hópslags­mál í miðjum kapp­ræðum og hopp­aði um borg­ina í ofur­hetju­bún­ingi og tíndi rusl. Það var kannski einmitt þetta sem gerði að fólk treysti honum. Hann var bara venju­legur maður, ekki hluti af fág­aðri og spilltri stjórn­mála­el­ítu.

Narcos dregur upp mynd af eit­ur­lyfja­hringnum Medellin og höf­uð­paurnum Pablo Escobar, alræmdasta Kól­umbíu­manni fyrr og síðar. Margt hefur breyst til batn­aðar í Kólumbíu síðan hann var og hét.

Trúðslæti með alvarlegum undirtóni

Mockus er stærð­fræð­ingur að mennt, heim­spek­ingur af ástríðu og kenn­ari í eðli sínu. Hann not­aði næstu fjögur árin í að breyta því hvernig borg­ar­búar hugsa og haga sér. Hann vildi að fólk gerði sér betur grein fyrir því að land­lægt ofbeldi og mann­skæð umferð ætti að all­nokkru leiti rætur í hegðan almenn­ings.

Til að kenna bætta hegðun í umferð­inni réði hann lát­bragðs­leik­ara til að stjórna umferð­inni, hrósa þeim sem hegð­uðu sér vel og hæð­ast að þeim sem brutu regl­urnar. Háð og spé hefur sterk­ari fæl­ing­ar­mátt í Bogotá en umferð­ar­sektir, sagði hann. Á nokkrum árum fækk­aði dauða­slysum í umferð­inni um helm­ing. Þegar vatns­skortur svarf að borg­inni bauð hann sjón­varps­fólki með sér í sturtu og ráð­lagði fólki að skrúfa fyrir vatnið meðan það setti sjampó í hárið. Vatns­veita borg­ar­innar segir að vatns­notkun hafi minnkað um 40% eftir að fólk fór að huga að vatns­notk­un­inni.

Gjörningur sem vekur til umhugsunar

Hann skar upp herör gegn ofbeldi, sér­stak­lega heim­il­is­of­beldi. Sjón­varps­mynda­vél­arnar sýndu hann gefa börnum og full­orðnum „bólu­setn­ingu við ofbeldi”. Allir fengu nokkra salt­vatns­dropa á tung­una. Þetta kann að hljóma eins og barna­legur gjörn­ingur, en aðal­at­riðið var að ná athygli fólks. Sjón­varps­mynda­vél­arnar voru mættar á stað­inn og frétta­stof­urnar sendu líka út orðin sem hann beindi til full­orð­inna um að draga djúpt and­ann áður en til­finn­ing­arnar leiddu fólk til ofbeldis.

Heim­ild­ar­myndin Cities on Speed – Bogota Change lýsir því hvernig Antanas Mockus náði að hrífa borg­ar­búa í Bogotá með sér, frá rassa­sýn­ingum til gul­róta­lag­anna og ofbeld­is­bólu­setn­inga. Seinni hluti mynd­ar­innar fjallar um arf­taka hans, Enrique Peñalosa, sem nú er nýend­ur­kjör­inn borg­ar­stjóri.

Eitt það síð­asta sem hann gerði í emb­ætti var að biðla til rík­ari íbúa Bogotá um að borga 10 pró­sent auka­skatt af fúsum og frjálsum vilja. Margir hnussuðu og höfðu enga trú á til­tæk­inu en þurftu að éta hatt­inn sinn. Pen­ing­arnir streymdu inn, um tvær millj­ónir Banda­ríkja­dala, til marks um vin­sældir og til­trú fólks á borg­ar­stjór­anum.

Harkalegt en áhrifaríkt

Árið 1998 var komið að næsta hug­sjóna­manni í borg­ar­stjóra­stólnum. Enrique Peñalosa tók við góðu búi, bæði fjár­hags­lega og sam­fé­lags­lega, eftir vit­und­ar­vakn­ingu Mockusar. Peñalosa byggði líka á heim­speki með almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi, en nú véku gjörn­ingar og hug­vekjur Mockusar fyrir áþreif­an­legri and­lits­lyft­ingu.

Peñalosa vildi að borg­ar­skipu­lagið gefi öllum borg­ar­búum jöfn tæki­færi. Í fátækra­hverfum Bogotá skorti hreint vatn og raf­magn. Skól­arnir gátu ekki tekið á móti öllum börnum. Hann réðst til verks. Hann hlaut gagn­rýni fyrir að taka lóðir eign­ar­námi og rífa niður bygg­ingar í fátækra­hverf­unum með stuttum eða engum fyr­ir­vara til að byggja betra hús­næði.

Þó má segja honum til tekna að hann hélt síður en svo hlífi­skildi yfir ríkum. Í miðri Bogotá gátu rík­ustu borg­ar­bú­arnir áður fengið aðgang að flennistórum einka­garði sem til­heyrði rík­manna­klúbbi. Þann garð tók Peñalosa eign­ar­námi, reif niður girð­ing­arnar og setti upp leik- og íþrótta­svæði til að almenn­ingur gæti notið grænna svæða í miðri Bogotá

Borg þar sem hinir ríku taka strætó

Ásýnd borg­ar­innar hafði ekki breyst mikið í valda­tíð Mockusar, en nú tók hún stakka­skiptum. Stærsti þyrn­ir­inn í augum Peñalosa var bíla­um­ferðin. Hinir fátæk­ustu treysta á til­vilj­ana­kenndar einka­reknar stræt­ó­ferðir, sem taka langan tíma því umferðin er svo þung. Markmið hans er “ekki að hinir fátæku geti keyrt um í bílum, heldur að hinir ríku séu til í að taka strætó”.

Aðal­um­ferð­ar­æð­unum var deilt upp. Þar sem áður var margra akreina haf af einka­bílum voru tvær akreinar í miðj­unni teknar undir hrað­strætó­kerfið Transmi­lenio. Strætó­arnir sátu ekki fastir í umferð­inni og far­þegar svifu milli borg­ar­hluta. Ferð sem áður tók rúma tvo tíma stytt­ist nú um rúman helm­ing. Kerfið hefur æ síðan verið ákaf­lega vin­sælt og hefur sífellt sprengt utan af sér allar umbætur og við­bætur, með allt að einni og hálfri milljón not­enda á dag.

Við hlið bíla­um­ferð­ar­innar komu hjóla­hrað­brautir. Og það voru ekki krampa­kenndar til­raunir, með 200 metra hjóla­stíga­bútum á stangli, eins og þekk­ist í sumum borgum. Ónei. Hann gekk ákveðið til verks og lét á þremur árum leggja 300 kíló­metra af hjóla­stígum með­fram aðal­um­ferð­ar­æðum borg­ar­innar.

Til að draga úr umferð á háanna­tímum setti hann upp kerfi, Pico y placa, þar sem fólki var bannað að keyra á háanna­tíma tvo daga í viku, til skiptis eftir síð­asta tölu­staf í bíl­núm­er­inu. Enn þann dag í dag má til dæmis ekki keyra bíla með númer sem enda á 8 á háanna­tíma á mánu­dögum og fimmtu­dögum. Þetta er ekki full­komið kerfi. Ríkir borg­ar­búar hafa kom­ist fram hjá því með því að eiga tvo bíla, svo þeir geti alltaf keyrt a.m.k. annan þeirra. En það dró veru­lega úr umferð fyrst eftir að það var kynnt.

2015: Peñalosa verður borgarstjóri á ný

Um nýliðna helgi voru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Kólumbíu og þar bar til tíð­inda að Peñalosa náði á ný kjöri sem borg­ar­stjóri í Bogotá. Síðustu tólf árin hefur vinstri­flokk­ur­inn Polo verið við völd og hvert spill­ing­ar­málið rakið annað. Síðustu fjögur árin hafa sex borg­ar­stjórar komið og farið, eftir að Samuel Rojas var sviptur emb­ætti fyrir frænd­hygli og aðra spill­ingu.

Fyrir tveimur árum var Bogotá kosin versta borg Suður-Ameríku til að búa í, (þó það mat hafi síðar verið dregið í efa). Umferðin er verri en hún var og glæpa­menn eiga til að brjót­ast inn í bíla sem sitja fastir í umferð. Þó glæpa­tíðnin hafi lækkað veru­lega síðan í lok síð­ustu aldar, þá er hún enn há. Transmi­lenio strætó­arnir eru svo fullir að fólk sér vasa­þjófa stela eigum sínum en getur ekki að því gert því hend­urnar eru klemmdar með síðum. Þá man fólk eftir Peñalosa og vonar að hann bjargi málum. Miðað við alla styrk­ina sem runnu í kosn­inga­sjóð hans frá bygg­inga­fyr­ir­tækjum, þá búast lík­lega margir við stór­ræðum þegar hann kemur til valda aftur.

Mögulega friður í augsýn

Stóru góðu frétt­irnar í Kólumbíu eru aug­ljós­lega frið­ar­við­ræður stjórn­valda við FARC skæru­lið­ana. Þær hafa gengið upp og ofan, eins og oft vill verða en for­set­inn er von­góður um að end­an­legt frið­ar­sam­komu­lag náist næsta vor. Það að kosn­ing­arnar hafi farið fram á frið­sælan hátt er mik­il­vægt út af fyrir sig. Það að öfga­hægri- og vinstri­menn hafi fengið lakt gengi eru líka góðar fréttir. Mögulega, og von­andi, stendur Peñalosa nú á ný með gullið tæki­færi í hönd­unum til að skapa góða, frið­sæla og örugga borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár