624. spurningaþraut: Hvaða land er þarna í austri?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá kort yfir upp­haf mestu sjóorr­ustu fyrri heims­styrj­ald­ar­innar sem háð var um mán­aða­mótin maí-júní 1916. Hvaða land er það sem sést (grænt að lit) í austri á þessu skjá­skoti?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða hluti af (fyrr­ver­andi) lif­andi verum er mjög vin­sælt að nota í fína skart­gripi?

2.  Hvað heita Eystra­salts­löndin öll þrjú?

3.  Þýskur læknir hét Franz Mesmer, hann dó 1815. Hann setti fram kenn­ingar um eins konar lífs­afl sem hann taldi að umlyki allar lif­andi verur og með því gætu þær haft áhrif hver á aðra. Kenn­ingar Mesmers reynd­ust eiga sér litla stoð en þær eru þó taldar að vissu leyti grund­völlur undir ákveðið fyr­ir­bæri sem þró­ast tók á 19. öld. Hvaða fyr­ir­bæri var það?

4.  Hver lék skip­stjóra sem and­að­ist heldur svip­lega í fyrsta þætti Ver­búð­ar­innar?

5.  En hver leikur skip­stjór­ann sem tók við af honum?

6.  Hvað þýðir orðið „plié“ þegar um ball­ett er að ræða?

7.  Hvernig dýr var Auðhumla?

8.  Hve margir ræn­ingjar voru kross­festir með Jesúa frá Nasaret sam­kvæmt guð­spjöllum?

9.  Hvað heitir fjallið sem sjá má milli Akra­fjalls og Esju þegar horft er frá Reykja­vík?

10.  Hver lék aðal­kven­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Karla­kór­inn Hekla árið 1992?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi ungi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Perlur. Að athug­uðu máli, þá telst „raf“ (trjá­kvoðan) líka rétt.

2.  Eistland, Lettland og Litháen.

3.  Dáleiðsla.

4.  Ingvar Sig­urðs­son.

5.  Björn Hlynur.

6.  Hnjá­beigju.

7.  Kýr.

8.  Tveir.

9.  Skarðs­heiði.

10.  Ragn­hildur Gísla­dóttir.

***

Svarið við fyrri auka­spurn­ingu er Danmörk. Sjá hér:

Svarið við seinni auka­spurn­ingu er Einstein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár