Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu í gær að festa í lög þá stefnu að sambandið verði kolefnishlutlaust árið 2050. Pólland var eina þjóðin sem skrifaði ekki undir samkomulagið. Samkomulagið kemur í kjölfar þess að leiðtogaráð og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynntu til sögunnar Grænan sáttmála Evrópu fyrr í vikunni. Frá þessu er greint á vef BBC.
Sáttmálinn kveður meðal annars á um 100 milljarða evra fjárveitingu sem styðja á við orkuskipti innan álfunnar. Auk þess felst í sáttmálanum áætlun um á aukið hringrásarhagkerfi innan sambandsins. [adspot]
Stíft var fundið um samkomulagið á leiðtogafundinum sem haldinn var í Brussel í gær. Tékkar, Ungverjar og Pólverjar voru mótfallnir samkomulaginu í fyrstu þar sem þeim þótti útilokað að 100 milljarðar nægðu til ná kolefnishlutleysi innan 27 ríkja sambandsins. Eftir að staðfest hefði verið að kjarnorka væri innifalin í samkomulaginu samþykktu Tékkar og Ungverjar að skrifa undir samkomulagið óbreytt.
Pólverjar sem reiða sig að langmestu leyti á kol við sína orkuframleiðslu sögðust hins vegar þurfa meira tíma til að skipta yfir í grænni orku og skrifuðu því ekki undir samkomulagið. Haft er eftir Charles Michael, nýja forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, að sambandið myndi á næstu misserum halda áfram að reyna sannfæra Pólverja um að styðja samkomulagið.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagðist vonast til að aðildarríkin nái að fullgilda og innleiða samkomulagið strax á næsta ári. Bretland tók ekki þátt í samkomulaginu þar sem þeir stefna á að yfirgefa Evrópusambandið í lok janúar á næsta ári. Hins vegar lýsti breska ríkisstjórnin því yfir í sumar að Bretland stefndi að kolefnishlutleysi fyrir 2050.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir