• fimmtudagur 5. nóvember 2026
  • 9°C Rigning 6 m/s
  • Styrkja
  • Skrá inn
  • Áskrift
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Fasteignir
  • Hátekjulistinn
  • Blöð
  • Fréttabréf
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Styrkja
  • Gefa áskrift
  • Heimilisblaðið
  • Benda á frétt
  • Um Heimildina
  • Laus störf
  • Auglýsingar

Útlit viðmóts

Ljóst Dökkt
© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið

Mynd dagsins

Greinaröð
« Síðasta síða Síða 11 af 14 Næsta síða »
Mynd dagsins

Systra­lag

„Unaður er heilandi og sjálfs­fróun er besta leiðin til þess að róa tauga­kerfið og auka gleði­horm­ónin.“ segir Rósa María Ósk­ars­dóttir, Bodysex leið­bein­andi með meiru. „Á nám­skeið­inu komum við saman naktar og losum okkur við nei­kvæðar lík­ams­í­myndir, til að blómstra kyn­ferð­is­lega.“ Hafir þú áhuga á að kom­ast í tæri við þessa gleði, má geta þess að Rósa María, ásamt femíníska lista­hópnum AFSAKIÐ, er að vinna að sýn­ingu sem opnar í Ásmund­ar­sal strax á nýju ári.
Mynd dagsins

Og úti fyrir hvíla höf og grandar

Það er erfitt fyrir full­frískan ein­stak­ling að drukkna í Tjörn­inni, þar sem hún er ein­ungis 50cm djúp. Tjörnin er griðland fugla en þar stoppa við hátt í 50 teg­undir til lengri eða skemmri tíma. Þar af eru sjö anda­teg­undir sem verpa í og við Tjörnina, auk þess verpa þar bæði álftir og kríur. Á vissum tíma, líkt og nú, eru síla­mávarnir mjög áber­andi, ásamt örfáum svart­bökum. Fyr­ir­ferða­mestar eru þó braut­metis-sólgnu grá­gæs­irnar.
Mynd dagsins

Allir fá þá eitt­hvað fal­legt...

Það er fátt nota­legra nú á aðvent­unni en leggja leið sína niður í miðbæ og kíkja í búð­ar­glugga, sjá eitt­hvað fal­legt til að gefa vinum og fjöl­skyldu. En versl­un­ar­mynstrið hjá okkur er að breyt­ast hratt. Samkvæmt nýrri könnun Zenter rann­sókna ætla sex af hverjum tíu Íslend­ingum að versla jóla­gjaf­irnar á net­inu þetta árið. Annað sem hefur breyst mikið frá í fyrra, er að hlut­fall milli erlendra og inn­lendra vef­versl­ana er nú hnífjafnt. Send­ingar hjá Póstinum vegna inn­lendrar net­versl­unar juk­ust um 120% nú í nóv­em­ber, á meðan pakkar frá erlendum vef­versl­unum dróg­ust örlítið saman milli ára.
Mynd dagsins

Man ein­hver síma­númer lengur?

Árið 1906 kom sím­inn til Íslands, nánar til­tekið til Seyð­is­fjarðar með sæstreng frá Skotlandi, í gegnum Færeyjar. Bændur fjöl­menntu til Reykja­víkur það ár, til að mót­mæla lagn­ingu síma­línu þvert í gegnum sveitir lands­ins - þeir höfðu nefni­lega trölla­trú á því að sím­inn yrði fljót­lega þráð­laus. Það kom líka á dag­inn, reyndar átta­tíu árum seinna. Í dag eru 115.992 með virkar fast­línu­á­skriftir (stór hluti fyr­ir­tæki) og hvorki fleiri né færri en 475.842 far­síma­númer eru í notkun hjá þjóð sem telur bara 360 þús­und sálir.
Mynd dagsins

107 er númer 12

„Já, ég er að reyna að vera alvar­leg á myndum,“ segir Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur þegar ég hitti hana glað­lega fyrir til­viljun niður í bæ í morgun. Og nýja bókin, 107 Reykja­vík? „ Algjör­lega heið­ar­legur farsi." En þetta er tólfta bók Auðar og skrifuð með dís­inni, Birnu Önnu Björns­dóttir. „Eins og ganga með barn saman.“ svarar Auður þegar ég spyr hvern­ing það sé að skrifa bók með öðrum.
Mynd dagsins

Bara 60 grömm af sól

Bessa­staða­bónd­inn fékk í dag fjóra tíma og fimm­tíu og fimm mín­útur af sól. Sól­ar­upp­rás á Álfta­nes­inu í morgun var klukkan 10:49 og sett­ist rétt vestan við Keili á Reykja­nes­inu klukkan 15:44. Í dag eru réttar þrjár vikur í vetr­ar­sól­stöður, eftir það er bjart­ara framundan. Miklu, meira að segja.
Mynd dagsins

Næt­ur­vinna

Lög­reglu­menn, lása­smiðir og læknar á Land­spít­al­anum Háskóla­sjúkra­húsi eru aðeins partur þeirra mörgu starfs­stétta sem halda sam­fé­lag­inu gang­andi, allan sóla­hring­inn. Alltaf á vakt. Á Land­spít­al­anum eru um eitt þús­und starfs­menn í ótal starfs­greinum sem halda starf­sem­inni gang­andi á nótt­unni. Ein þeirra er Jewelly frá Fil­ipps­eyjum. Hún hefur unnið þar í þrjú ár og passar upp á að öllum líði vel. Ómet­an­legt fyrir þá mörgu gesti, hvort sem þeir stoppa stutt eða lengi.
Mynd dagsins

Hvar er Valli?

Reyndar heitir kött­ur­inn á mynd­inni ekki Valli, heldur Loðvík eftir sól­konungnum og frænda sínum, þeim XIV. Samkvæmt Vís­inda­vefnum er ekki vitað hve margir kettir eiga lög­heim­ili hér í lýð­veld­inu en hrein ágiskun hjá þeim er um 20.000 kettir. Það er nefni­lega því miður ekki til neitt katta­tal hér á landi.
Mynd dagsins

Jóla­kött­ur­inn

Þið kann­ist við jóla­kött­inn, sá köttur var gríð­ar­stór. Fólk vissi ekki hvaðan hann kom eða hvert hann fór. Hann glennti upp glyrn­urnar sínar, gló­andi báðar tvær. Það var ekki heiglum hent að horfa í þær. Jóla­kött­inn orti Jóhannes úr Kötlum árið 1932 og nú er hann kom­inn í allri sinni dýrð, 88 árum síðar, niður á Lækj­ar­torg, skreyttur 6.499 perum til að lýsa upp svartasta skamm­degið.
Mynd dagsins

6 plús sex + mínus 1

Lax­ár­dæl­ing­ur­inn, Félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason er að leggja fram á Alþingi rík­is­stjórn­ar­frum­varp um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof. Nýju lögin taka við lögum sem sett voru fyrir tutt­ugu árum, og þóttu þá fram­sækin. Helstu breyt­ingar sem lagðar eru til í frum­varp­inu er leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði vegna barna sem fæð­ast, eru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur frá 1. jan­úar 2021. Reikn­aður kostn­aður rík­is­ins vegna fæð­ing­ar­or­lofs­ins næsta ár eru rúmir 19 millj­arðar. Og þetta segir ráð­herra um frum­varpið: „Með þessu frum­varpi erum við að auka enn á rétt­indi for­eldra til sam­vista með börn­unum sínum á fyrstu mán­uð­unum ævi þeirra.“
Mynd dagsins

Hvít blá fjöll

Það var fal­legt í Blá­fjöllum í morgun (him­in­inn er ekki photosjopp­aður - var svona). Ekki er vitað hvenær skíða­svæðið getur opnað, ekki vegna snjó­leysis heldur vegna veirunnar sem herjar á heims­byggð­ina. Í fyrra var opið í Blá­fjöllum í 57 daga og mættu sam­tals rúm­lega 80.000 á svæðið. Þegar mest gekk á mættu 6.000 manns á einum degi, þá auð­vitað bæði í lyft­urnar og á göngu­skíða­svæðið sem hefur aldrei verið vin­sælla en síð­ast­lið­inn vetur. Enda til fyr­ir­myndar á allan hátt.
Mynd dagsins

Leitið og þér munuð finna

Lög­reglu­mað­ur­inn Guð­mundur Fylk­is­son hefur und­an­farin sex ár gegnt því erf­iða starfi að finna börn og ung­menni sem týn­ast. Það eru um 250 mál á ári sem koma inn á borð til hans og flest leys­ast þau far­sæl­lega. Á föstu­dag­inn fékk hann úr hendi Forseta Íslands við­ur­kenn­ingu Barna­heilla - Save the Children, fyrir störf sín í þágu barna og ung­menna í vanda. „Þetta er dag­vinna, frá átta á morgn­anna til sjö fimm­tíuo­gníu dag­inn eftir. Maður þarf oft að hafa skjótar hendur, og sím­ann minn þekkja þau flest - hann er alltaf opinn. Fyrir þau sem ekki vita er núm­erið: 843 1528," sagði Guð­mundur og rauk af stað.
« Síðasta síða Síða 11 af 14 Næsta síða »
Stofnuð árið 2023 af Stundinni og Kjarnanum
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Fasteignir
  • Blöð
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Fréttabréf
  • Tilkynningar
  • Um Heimildina
  • Benda á frétt
  • Auglýsingar

Morgunpósturinn

Morgunpóstur Heimildarinnar berst alla morgna og er fyrir öll þau sem hafa áhuga á fréttum og þjóðfélagsumræðu.

Áskrift hefur áhrif

Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Sjá meira
© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.
Áskrift hefur áhrif
Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku.
Ég vil fá áskrift Nei, takk
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.
Heimildin notar vefkökur (e. cookies) til að bæta notendaupplifun. Sjá nánar.
  • Skrá inn
  • Nýskrá
  • Við sendum þér kóða í tölvupósti: ekkert lykilorð þarf.

    eða

    Skrá inn með lykilorði
    Gleymt lykilorð?
    Halda áfram með Facebook

    Enginn aðgangur? Hann verður til þegar þú kaupir áskrift eða skráir þig á fréttabréf. Leiðbeiningar

  • Minnst 8 stafir; hvorki algengt lykilorð né eingöngu tölustafir.

    eða

    Halda áfram með Facebook