Hátt yfir hinu háa Alþingi
Mynd dagsins

Hátt yfir hinu háa Alþingi

Svona er útsýnið af efstu hæð­inni á nýja hót­el­inu sem er að rísa á Land­símareitnum milli Aust­ur­vallar og Fógeta­garðs­ins. Verklok á Icelandair / Hilton hót­el­inu eru áætluð þann 1. maí, en hvenær hót­elið opnar síðan fyrir gestum og gang­andi, fer auð­vitað eftir því hvernig tekst að koma böndum á far­sótt­ina. Mest spenn­andi fyrir okkur heima­menn er end­ur­gerð tón­leika­sal­ar­ins Nasa í sinni upp­runa­legu mynd.
Fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri þakkar „forsjóninni“ fyrir Samherja
FréttirHeimavígi Samherja

Fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi á Akureyri þakkar „for­sjón­inni“ fyrir Samherja

Áhrif Samherja á efna­hags­lífið í Eyja­firði eru ótví­ræð þar sem fyr­ir­tækið skapar mikla atvinnu og afleidd störf. Sumir bæj­ar­búar hafa hins vegar áhyggjur af því hvaða afleið­ingar Namib­íu­málið geti haft á fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins þar sem það er bæði til rann­sóknar fyrir mútu­brot og einnig skatta­laga­brot.
Kristín stýrir vísitölu Willy
Mynd dagsins

Kristín stýrir vísi­tölu Willy

Sölu­maður Deyr, eftir banda­ríska leik­skáldið Arthur Miller, verður frum­sýnt á morgun (laug­ar­dag) á stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins, undir leik­stjórn Krist­ínar Jóhann­es­dóttur (mynd). Verkið er eitt af stóru leik­verkum síð­ustu aldar og þrátt fyrir að það hafi verið frum­sýnt fyrir 72 árum. „Verkið á svo sann­ar­lega við í dag... við horfum upp á tra­gedíu hins venju­lega manns, sem dreymir um að vinna í lott­er­í­inu,“ segir Kristín um höf­uð­per­són­una Willy Loman, sem leik­inn er af Jóhanni Sig­urð­ar­syni.
Ítrekaðar upplýsingar bárust um illa meðferð á Laugalandi en Barnaverndarstofa brást ekki við
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Ítrek­aðar upp­lýs­ingar bár­ust um illa með­ferð á Lauga­landi en Barna­vernd­ar­stofa brást ekki við

Gögn frá umboðs­manni barna sýna að þangað bár­ust ítrek­aðar til­kynn­ingar á árunum 2000 til 2010 um slæmar aðstæður barna á vist­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi, sem rekið var af sömu aðilum. Var Barna­vernd­ar­stofu gert við­vart vegna þess. Fleiri kvart­anir bár­ust beint til Barna­vernd­ar­stofu, en þáver­andi for­stjóri, Bragi Guð­brands­son, kann­að­ist ekk­ert við málið þegar leitað var svara við því af hverju ekki var brugð­ist við og starf­semin aldrei rann­sökuð.
Áhrif Samherjamálsins í Namibíu: 92 prósent Íslendinga telja Samherja hafa greitt mútur
FréttirSamherjaskjölin

Áhrif Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu: 92 pró­sent Íslend­inga telja Samherja hafa greitt mútur

Mark­tækur munur er á afstöðu fólks til útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja eftir því hvort það býr í Eyja­firði eða ann­ars staðar á land­inu. Í Eyja­firði starfa rúm­lega 500 manns hjá Samherja sem er stærsti einka­rekni atvinnu­rek­and­inn í byggð­ar­lag­inu. Þetta kemur fram í úttekt Stund­ar­innar á stöðu Samherja á Akureyri og á Dalvík.
Ragnar Þór segir Fréttablaðið í herferð vegna verkalýðsbaráttu og gagnrýni á eigandann
Fréttir

Ragnar Þór segir Frétta­blaðið í her­ferð vegna verka­lýðs­bar­áttu og gagn­rýni á eig­and­ann

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, var gest­kom­andi á bæ á Suð­ur­landi þar sem ætt­ingjar hans höfðu lagt net í sjó­birt­ingsá á Suð­ur­landi. Hann segir að umfjöllun Frétta­blaðs­ins um málið und­ir­striki þá her­ferð sem blaðið er í. Helgi Magn­ús­son, fjár­festir og eig­andi Frétta­blaðs­ins**, vill ekki svara spurn­ingum um málið.
100 milljarða holan við Hringbraut
Mynd dagsins

100 millj­arða holan við Hring­braut

Hér ganga verka­menn eftir morg­un­kaffið niður grunn­inn á nýjum Land­spít­ala, sem mun lík­lega kosta um 100 millj­arða með tækjum og tólum þegar verk­efn­inu líkur ein­hvern­tíma á þess­ari öld. Í dag er Land­spít­al­inn með starf­semi á 17 stöðum í 100 bygg­ingum sem skapar auð­vitað mikið óhag­ræði. Meira en helm­ingur bygg­inga spít­al­ans eru yfir hálfrar aldar gamlar. Fyrsti áfang­inn, nýr með­ferð­ar­kjarni (sjúkra­hús), verður tek­inn í notkun eftir fimm ár, árið 2026.

Mest lesið undanfarið ár