Blaðamenn mbl.is segja ritstjóra Morgunblaðsins hafa stutt verkfallsbrotið

Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá rit­stjórn mbl.is voru verk­falls­brot „með vit­und og vilja rit­stjóra og fram­kvæmda­stjóra Morg­un­blaðs­ins“.

Blaðamenn mbl.is segja ritstjóra Morgunblaðsins hafa stutt verkfallsbrotið
Davíð Oddsson Samkvæmt yfir­lýs­ingu blaða­manna mbl.is voru verk­falls­brot á vit­orði fram­kvæmda­stjóra og rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Pressphotos

Átján blaða­menn á vefnum mbl.is lýsa verk­falls­brotum yfir­stjórnar og starfs­manna prentút­gáfu Morg­un­blaðs­ins í yfir­lýs­ingu sem send var út nú síð­degis.

Verkfall Blaða­manna­fé­lags Íslands hjá miðlum fjöl­miðla­fyr­ir­tækja innan vébanda Samtaka atvinnu­lífs­ins stóð yfir á vef­miðlum frá klukkan 10 til 14 í dag. Verk­fallið náði til mbl.is, Vísis.is, Frétta­blaðs­ins.is og að hluta ruv.is. 

Að sögn blaða­manna mbl.is tóku hins vegar rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri Morg­un­blaðs­ins ákvörðun um að brjóta verk­fallið með hjálp starfs­manna af prentút­gáfu og verk­taka.

„Um leið og blaða­menn á mbl.is lögðu niður störf í morgun tóku nokkrir blaða­menn á Morg­un­blað­inu, sem að öllu jöfnu skrifa ekki fréttir á mbl.is, til við að skrifa fréttir á mbl.is. Að auki voru fyrr­ver­andi sum­ar­starfs­maður og lausa­penni á Morg­un­blað­inu kall­aðir til til þess að skrifa fréttir á mbl.is á meðan þeir blaða­menn mið­ils­ins, sem voru á vakt á þessum til­tekna tíma, lögðu niður störf í sam­ræmi við lög­lega boð­aðar aðgerðir sem stóðu til klukkan 14,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

„Við und­ir­rituð blaða­menn og frétta­stjórar á frétta- og íþrótta­deild mbl.is lýsum yfir von­brigðum með þetta fram­ferði“

„Þessi umræddu frétta­skrif voru með vit­und og vilja rit­stjóra og fram­kvæmda­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Við und­ir­rituð blaða­menn og frétta­stjórar á frétta- og íþrótta­deild mbl.is lýsum yfir von­brigðum með þetta fram­ferði og þau við­horf til lög­lega boð­aðra aðgerða sem þarna birt­ast. Við teljum að þetta fram­ferði sé til þess fallið að varpa rýrð á mbl.is, ekki síst þá blaða­menn sem þar starfa og leit­ast eftir fremsta megni við að sinna starfi sínu af heil­indum og fag­mennsku. Að okkar mati er þetta síst til þess fallið að finna væn­lega lausn á kjara­deil­unni sem nú stendur yfir. Með því að senda þessa yfir­lýs­ingu viljum við að það komi skýrt fram að þær fréttir og umfjall­anir, sem skrif­aðar voru og birtar á mbl.is á meðan á lög­lega boð­uðum aðgerðum félaga í Blaða­manna­fé­lagi Íslans stóð, eru ekki á okkar ábyrgð.“

Undir yfir­lýs­ing­una rita: Anna Sigríður Ein­ars­dóttir, Anna Lilja Þór­is­dóttir, Arnar Þór Ing­ólfs­son, Erla María Mark­ús­dóttir, Freyr Bjarna­son, Guð­mundur Hilm­ars­son, Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, Hallur Már Hallsson, Ívar Bene­dikts­son, Jóhann Ólafsson, Jón Pétur Jónsson, Kristján Jónsson, Sindri Sverr­is­son,  Sólrún Lilja Ragn­ars­dóttir, Víðir Sig­urðs­son, Þor­gerður Anna Gunn­ars­dóttir, Þor­steinn Ásgríms­son Melén og Þórunn Krist­jáns­dóttir.

Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur enn ekki náð samn­ingi við Samtök atvinnu­lífs­ins vegna kjara blaða­manna. Hins vegar hefur félagið samið við Útgáfu­fé­lagið Birtíng, Kjarnann og Útgáfu­fé­lagið Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár