Segir tafir á framkvæmdum á Hverfisgötu hafa valdið milljónatapi

Eigandi veit­inga­stað­ar­ins Gráa katt­ar­ins segir að rekstur stað­ar­ins sé í járnum og upp­safnað tap auk­ist með hverri viku sem verk­lok fram­kvæmda á Hverf­is­götu tefj­ist.

Segir tafir á framkvæmdum á Hverfisgötu hafa valdið milljónatapi
Erfitt aðgengi Ásmundur segir að illa hafi verið staðið að aðgeng­is­málum að veit­inga­stað hans, Gráa kett­inum, á meðan að fram­kvæmdir hafa staðið yfir á Hverf­is­götu. Mynd: Davíð Þór

Ásmundur Helgason, sem á og rekur veit­inga­húsið Gráa kött­inn ásamt Elínu G. Ragn­ars­dóttur konu sinni, segir að lok­anir vegna fram­kvæmda á Hverf­is­götu og tafir á verk­lokum valdi því að rekstur stað­ar­ins sé í upp­námi og tap sé á honum viku hverja. Verkið hafi upp­haf­lega átt að taka þrjá mán­uði en útlit sé fyrir að verk­tími tvö­fald­ist og verði að minnsta kosti sex mán­uðir. „. Hvernig hægt er að klúðra þessu verki svona ofboðs­lega er óskilj­an­legt,“ segir Ásmundur í færslu á Facebook-síðu sinni.

Hverf­is­götu var lokað fyrir umferð akandi í vor sem leið, á milli Ing­ólfs­strætis og Smiðju­stígs, vegna fram­kvæmda við frá­veitu og lagnir. Fram­kvæmdir hófust um miðjan maí og áttu að standa til ágúst­loka en enn er gatan lokuð og svo að sjá að tals­vert vinna sé eftir. Á meðan hefur aðkoma gang­andi fólks að þjón­ustu­fyr­ir­tækjum á þessum hluta göt­unnar verið erfið og stundum ill­fær.

Ekkert stenst sem sagt er

Ásmundur segir að áhrifin á rekstur hans staðar, og ann­arra staða neðan til á Hverf­is­götu, séu áþreif­an­leg. Fjórir veit­inga­staðir á því svæði hafi farið á haus­inn og þó hann geti ekki full­yrt að lokun Hverf­is­göt­unnar sé um að kenna sé hann þess full­viss að lok­unin hafi í það minnsta haft áhrif. Hvað varði rekstur hans eigin staðar, Gráa katt­ar­ins, þá sé hann í járnum. „Við töpum pen­ingum á hverri viku, í  hverjum mán­uði. Við erum auð­vitað alltaf að von­ast til að verkið klárist en við þolum ekki langan tíma í við­bót að óbreyttu. Sem betur fer virð­ist nú samt ekki vera langur tími eftir af fram­kvæmd­unum. Við myndum ekki lifa af vet­ur­inn í óbreyttu ástandi,“ segir Ásmundur í sam­tali við Stundina.

„Við erum búin að tapa millj­ónum vegna þess­ara fram­kvæmda frá því í sumar“

Ásmundur er jafn­framt mjög ósáttur við sam­skiptin við borg­ina og bendir sér­stak­lega á for­mann skipu­lags­ráðs í þeim efnum, Sig­ur­borgu Ósk Har­alds­dóttur.  „Hún svarar aldrei, ég hef sent henni tölvu­póst ítrekað og hún svarar honum aldrei. Sjálfur boð­beri frjáls upp­lýs­inga­flæðis og opinnar stjórn­sýslu, Píratinn sjálfur, svarar aldrei neinum tölvu­póstum. Það er ekki einu sinni hægt að finna full­nægj­andi upp­lýs­ingar um fram­kvæmd­irnar inni á vef Reykja­vík­ur­borgar, eftir allan þennan tíma. Það hefur ekk­ert stað­ist í verk­á­ætlun og það stenst aldrei neitt af því sem sagt er. Það er alveg sama hvort það er af hálfu borg­ar­innar eða af hálfu verk­tak­ans sem er með verkið.“

Ásmundur segir að hann hafi farið fram á að borgin greiði fyr­ir­tæki hans bætur vegna þess­ara miklu tafa sem orðið hafa á fram­kvæmd­unum. Hann hafi engin svör fengið við þeim umleit­unum. Næsta skref sé lík­lega að leita lög­fræði­að­stoðar vegna þess. „Við erum búin að tapa millj­ónum vegna þess­ara fram­kvæmda frá því í sumar. Aðsóknin minnkar bara eftir því sem fram­kvæmd­irnar standa lengur.“

Fyr­ir­vari: Elín G. Ragn­ars­dóttir, annar eig­andi Gráa katt­ar­ins, er stjórn­ar­for­maður Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár