Stjórnarskrá – Breytingar eða blekkingarleikur?

Einar A. Brynj­ólfs­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, minnir á að íslenska þjóðin hefur þegar smþykkt nýja stjórn­ar­skrá.

Stjórnarskrá – Breytingar eða blekkingarleikur?
Afmæli nýju stjórn­ar­skrár­innar Sjö ár eru frá því að íslenska þjóðin kaus sér nýja stjórn­ar­skrá. Mynd: Pressphotos

Fyrr á öldum rétt­lættu kon­ungar stöðu sína með þeim rökum að þeir væru kon­ungar fyrir náð guðs (lat. rex de gratia) og að þeir mættu fara með vald sitt sam­kvæmt því umboði. Eflaust hafa ein­hverjir þeirra trúað þessu sjálfir og vænt­an­lega hefur fátækur almúgi sjaldn­ast haft for­sendur til að efast um þessi sann­indi, enda var annað fyr­ir­komu­lag lítt þekkt og lítil stemmn­ing fyrir breyt­ingum, að minnsta kosti meðal for­rétt­inda­hópanna sem nutu góðs af því. Í sagn­fræð­inni er talað um „ancien régime“ eða „gamla stjórn­ar­farið“. Í krafti þessa kerfis var rétt­læt­inu (og rang­læt­inu) útdeilt niður til almenn­ings, í þeim skömmtum sem elít­unni þótti hæfa.

Hvaðan kemur valdið?

Þegar fram liðu stundir kom fram sú hug­mynd að valdið kæmi ekki að ofan, frá guði, heldur frá almenn­ingi. Talað var um sam­fé­lags­sátt­mála milli almenn­ings og þeirra sem færu með lands­stjórn­ina og að ef þeir sem fengju völdin í hendur frá almenn­ingi stæðu sig ekki í stykk­inu eða gerðu eitt­hvað á hlut umbjóð­enda sinna væri rétt að koma þeim frá, með góðu eða illu.

Í flestum löndum, þar á meðal Íslandi, er svona sam­fé­lags­sátt­máli kall­aður stjórn­ar­skrá. Segja má að núgild­andi sam­fé­lags­sátt­máli Íslend­inga hafi komið að ofan, þó ekki frá guði, heldur frá dönskum kon­ungi og var öllum ljóst að hann átti að vera til bráða­birgða. Rúmlega 60 ár liðu þó þangað til ráð­ist var í gerð nýs sam­fé­lags­sátt­mála og kom það reyndar ekki til af góðu. Efna­hags­hrunið árið 2008 olli miklu umróti í íslensku þjóð­lífi og gerð­ust þær raddir háværar sem köll­uðu eftir nýjum sam­fé­lags­sátt­mála, nýrri stjórna­skrá, sem skyldi deila út vald­inu neðan frá, frá almenn­ingi til lýð­ræð­is­lega kjör­inna full­trúa, stjórn­ar­skrá sem setti undir ýmsa leka þeirrar sem fyrir var, og er.

Ný stjórnarskrá

Úr varð eitt merki­leg­asta plagg Íslands­sög­unnar, ný stjórn­ar­skrá, samin af almennum borg­urum sem höfðu fengið umboð til þess með lýð­ræð­is­legum hætti. Sérstaða  þessa nýja sam­fé­lags­sátt­mála er fólgin í aðferð­inni við að semja hann og í efni hans, enda fór það svo að tveir þriðju hlutar kjós­enda í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, sem fram fór 20. októ­ber 2012, voru þeirrar skoð­unar að hann skyldi liggja til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá.

Um þessar mundir eru liðin sjö ár frá því að almennir kjós­endur gáfu lög­gjaf­anum, það er Alþingi, þessi skýru fyr­ir­mæli. Lög­gjaf­inn, sem er því miður að mestu leyti verk­færi fram­kvæmd­ar­valds­ins, hefur ekki séð ástæðu til að virða þennan vilja kjós­enda. Það er vont, enda má segja að með nýju stjórn­ar­skránni séu gefin skýr skila­boð um að valdið komi frá þjóð­inni, það er neðan frá.

„Aðkoma þjóðarinnar“

Katrín Jak­obs­dóttir, sem leiðir rík­is­stjórn íhalds­flokk­anna þriggja, VG, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks, er í hópi þess stjórn­mála­fólks sem sér enga ástæðu til að virða vilja þjóð­ar­innar þegar á hólm­inn er komið. Í stað­inn ætlar hún, „að halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs“, eins og segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Vilji íhaldsflokkanna eða vilji þjóðarinnar?

Spurn­ingar vakna: Af hverju má ekki virða vilja þjóð­ar­innar frá 20. októ­ber 2012? Hefur heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar með aðkomu þjóð­ar­innar ekki nú þegar farið fram? Tókst ekki nógu vel til? Er eitt­hvað í til­lögum stjórn­laga­ráðs sem hentar ekki elít­unni sem fer með völdin? Er ekki gott að almenn­ingur setji sér sjálfur stjórn­ar­skrá? Eiga þing­menn að „skammta“ þjóð­inni stjórn­ar­skrá? Getur hugs­ast að málið „tefj­ist“ þannig að ekki verði hægt að breyta neinu sem máli skiptir við næstu Alþing­is­kosn­ingar? Hvaða líkur eru til þess að vilji þjóð­ar­innar verði virtur í þetta skiptið? Er Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fyrir náð guðs? Sækir hún ekki vald sitt til þjóð­ar­innar? Ætlar hún að færa þjóð­inni stjórn­ar­skrá, að ofan? Er þetta ekki bara einn stór blekk­ing­ar­leikur?

Að lokum vil ég óska Íslend­ingum öllum til ham­ingju með afmæl­is­barnið, nýju stjórn­ar­skrána. Hennar tími mun koma!

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár