Kynferðisbrot á Vogi: „Dóttir mín átti að vera örugg“

Ákæra var gefin út á hendur manni sem er gefið að sök að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á sextán ára stúlku á Vogi. Móðir stúlkunnar segir að málið hafi verið áfall fyrir fjöl­skyld­una og orðið þess vald­andi að hún glat­aði örygg­is­til­finn­ing­unni gagn­vart Vogi. Þrátt fyrir það hafi hún ekki átt ann­arra kosta völ en að senda dóttur sína aftur þangað í afeitrun.

Kynferðisbrot á Vogi: „Dóttir mín átti að vera örugg“

Ákæra var gefin út á hendur karl­manni fyrir kyn­ferð­is­brot gegn sextán ára gam­alli stelpu, þar sem þau voru í afeitrun á sjúkra­hús­inu Vogi í febr­úar 2018. Móðir stúlkunnar segir að málið hafi verið áfall fyrir fjöl­skyld­una. 

Taldi dóttur sína örugga

„Það er erfitt að setja þessa til­finn­ingu í orð, en dóttir mín átti að vera örugg þarna. Ég hélt að hún væri komin á öruggan stað, en svo gerð­ist þetta.“

Manninum er gefið að sök að hafa not­fært sér ald­urs- og afls­mun til þess að tæla stúlk­una í tvígang til þess að hafa við sig munn­mök á sal­erni, gegn ávana­bind­andi lyfjum. Brotin áttu sér stað á föstu­dag og laug­ar­dag. 

Móðir stúlkunnar segir að þegar upp komst um málið hafi starfs­fólkið á Vogi brugð­ist hár­rétt við. Hratt og vel hafi verið tekið á málum. Ger­and­anum var vísað af staðnum, lög­reglan kölluð til og Barna­húsi til­kynnt um atburð­ina. „Sú vinna fór vel fram.“

Sárnaði ummælin

Það var ekki fyrr en Val­gerður mætti síðan í við­tal í Kast­ljós­inu sem kon­unni varð brugðið. Þar sagði Val­gerður að allt væri gert til að tryggja öryggi sjúk­linga, á ung­linga­deild­inni væri sér­stök vakt allan sól­ar­hring­inn og aðgengi að starfs­fólk­inu væri gott. „Það á eng­inn að verða fyrir ein­hverju sem hann vill ekki eða er óánægður með, af því að hann getur alltaf forð­ast það,“ sagði Val­gerður.

Móðir stúlkunnar segir að þessi orð hafi verið sær­andi. „Mér fannst eins og það væri verið að setja sök­ina yfir á þol­and­ann sem var sextán ára gömul, ofsa­lega brotin stelpa.“ Hún hafi því gert athuga­semd við þennan mál­flutn­ing og fengið afsök­un­ar­beiðni. 

Í kjöl­farið sendi SÁÁ frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að ekki væri hægt að tryggja öryggi barna á Vogi og því yrði hætt að taka á móti þeim. Það hefur ekki gengið eftir, enn er tekið á móti börnum á ung­linga­deild á Vogi. 

Eftir stendur að úrræða­leysið sé algjört í mál­efnum ungra fíkla en frá því að þetta gerð­ist hefur dóttir hennar þurft að leita aftur inn á Vog, því engin önnur með­ferð­ar­úr­ræði hafa verið til staðar. 

Baráttan við kerfið

Þetta gerð­ist í febr­úar. Í maí sama ár hafi staðið til að senda stúlk­una aftur inn á Vog, en móðir hennar hafn­aði því og leit­aði allra leiða til að koma í veg fyrir það. „Þetta var þremur mán­uðum eftir að þetta kom upp inni á Vogi, en eina leiðin sem við sáum í stöð­unni var að senda hana aftur inn á Vog. Þá var botn­inum náð.“

Konan hafði sam­band við ráðu­neytið og greindi þar frá aðstæðum sínum og fékk loks aðstoð við að koma barn­inu í annað úrræði.

Hún segir að þessi eilífa bar­átta við kerfið reyni veru­lega á aðstand­endur. 

Missti öryggistilfinninguna

Þegar dóttir hennar missir tökin á neysl­unni sé ekki um annað að ræða en að senda hana aftur inn á Vog. „Það er það eina sem hefur gripið okkur, sem er svo sorg­legt.“ 

Hún á erf­ið­ara með að treysta sjúkra­hús­inu fyrir dóttur sinni eftir að það var brotið á henni þar.  „Eftir að þetta gerð­ist líður mér alltaf illa þegar hún fer inn á Vog. Ég fæ aldrei þessa örygg­is­til­finn­ingu sem ég hafði áður, þegar ég treysti því að þar væri hún í vernd­uðu umhverfi, þar sem ekk­ert ætti að geta komið fyrir hana.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár