Gísli Hauksson og lobbísmi GAMMA

GAMMA var ekki bara fjár­fest­ing­ar­fé­lag heldur beitti fyr­ir­tækið sér líka í opin­berri umræðu fyrir minnk­andi rík­is­af­skiptum og var því eins konar póli­tísk hug­veita.

Í stjórn RNH
Í stjórn RNH Jón­mundur Guð­mars­son, fyrr­ver­andi starfs­maður GAMMA og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er einn af stjórn­ar­mönnum hug­veit­unnar frjáls­hyggju­hug­veit­unnar RNH.

Ein af sér­stöðum Gísla Hauks­sonar, og GAMMA meðan hann stýrði félag­inu, var áhugi hans og fyr­ir­tæk­is­ins á verk­efnum sem snertu póli­tíska hug­mynda­fræði í sam­fé­lag­inu, meðal ann­ars minnk­andi rík­is­af­skiptum. GAMMA var að sumu leyti eins og hug­veita (e. Think tank) fyrir hug­mynda­fræði frjáls­hyggju og einka­fram­taks í sam­fé­lag­inu og byggði þetta hlut­verk fyr­ir­tæk­is­ins, að hluta til að minnsta kosti, á áhuga Gísla Hauks­sonar á póli­tískri hug­mynda­fræði. Gísli er frjáls­hyggju­maður, og það rót­tækur. 

Frekar sjald­gæft er að öllu jöfnu að íslensk fjár­fest­ingar- og eða sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki eins og GAMMA velji að vera í því hlut­verki beint að verka eins og póli­tískar hug­veitur eða þrýstiöfl í sam­fé­lag­inu og reki áróður fyrir rót­tækum breyt­ingum í ákveðna átt. 

Við þetta bæt­ist að margir af starfs­mönnum GAMMA höfðu sterk tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þess íslenska flokks sem lengst hefur verið til hægri hvað varðar minnk­andi rík­is­af­skipti í gegnum tíð­ina þótt flokk­ur­inn rúmi vissu­lega líka hægri krata. Þannig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár