Nýr seðlabankastjóri mættur og gefur vísbendingar um næstu skref

Ásgeir Jónsson, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður grein­ing­ar­deildar Kaup­þings og for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands, tók við sem Seðla­banka­stjóri í morgun.

Nýr seðlabankastjóri mættur og gefur vísbendingar um næstu skref
Nýr banka­stjóri Már Guð­munds­son ræðir við arf­taka sinn, Ásgeir Jónsson. Hér ásamt Rann­veigu Sig­urð­ar­dóttur aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra. Mynd: Pressphotos

Nýr seðla­banka­stjóri tók form­lega við störfum í morgun eftir að Már Guð­munds­son lauk tíu ára starfs­tíma­bili sínu. 

„Bless­aður seðla­banka­stjóri og vel­kom­inn,“ sagði Már við Ásgeir Jónsson, arf­taka sinn í morgun. „Sælir,“ svar­aði Ásgeir, áður en hann heils­aði aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra, Rann­veigu Sig­urð­ar­dóttur.

Már og Ásgeir grín­uð­ust með að nú þyrfti nýr seðla­banka­stjóri að ná að lyfta gull­forða rík­is­ins, ellegar hverfa frá. Gull­forð­inn er hins vegar geymdur erlendis, eða í Lundúnum, og vegur um tvö tonn.

„Þetta er eig­in­lega eina starfið sem hefði geta dregið mig út úr háskól­anum,“ sagði Ásgeir síðar við frétta­menn.

Starf seðla­banka­stjóra hefur verið storma­samt. Þegar Már tók við sem seðla­banka­stjóri 20. ágúst árið 2009 voru meg­in­vextir seðla­bank­ans 9,5 pró­sent og höfðu staðið í 18 pró­sentum fimm mán­uðum fyrr. Nú eru þeir aðeins 3,75 pró­sent.

Ásgeir JónssonNýr seðla­banka­stjóri í morgun.

Ásgeir Jónsson hefur und­an­farin ár verið þekktur sem for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands, en áður var hann meðal ann­ars aðal­hag­fræð­ingur Kaup­þings og for­stöðu­maður grein­ing­ar­deildar Kaup­þings í aðdrag­anda efna­hags­hruns­ins. 

Tveir þing­menn Pírata hafa meðal ann­arra gagn­rýnt skipan Ásgeir á þeim grund­velli að hann hafi verið lyk­il­maður og klapp­stýra Kaup­þings banka í starf­sem­inni fyrir efna­hags­hrunið. Ásgeir gagn­rýndi meðal ann­ars gagn­rýnendur bank­anna fyrir „hysteríu“ árið 2008, nokkru áður en bank­arnir féllu.

Seðla­banka­stjóri er skip­aður til fimm ára, að hámarki til tíu ára. Í núgild­andi lögum er gerð sú krafa að hann sé mennt­aður í hag­fræði eða tengdum greinum. Ásgeir skrif­aði dokt­ors um sveiflu­jöfnun yfir skamman tíma í litlu, opnu hag­kerfi. Hann lauk dokt­ors­prófi frá Indiana Uni­versity í Banda­ríkj­unum með alþjóða­fjár­mál, pen­inga­mála­hag­fræði og hag­sögu sem aðal­svið.

Forveri Más Guð­munds­sonar í starfi var Svein Harald Øygard, sem skip­aður var til bráða­birgða í febr­úar 2009 eftir að Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þá for­sæt­is­ráð­herra, sendi Davíð Oddssyni seðla­banka­stjóra í reynd upp­sagn­ar­bréf, þar sem hún kynnti laga­breyt­ingu sem myndi leggja niður stöðu hans. Davíð er lög­fræði­mennt­aður og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra til þrettán ára.

„Ég varð um tíma að halda sím­tól­inu vel frá mér, svo æstur var hann,“ sagði Jóhanna um síð­asta sam­tal hennar og Davíðs, í bók hennar Minn tími.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, skip­aði Ásgeir í kjöl­far þess að hann var met­inn­meðal þeirra hæf­ustu af hæf­is­nefnd. Ásgeir er sonur fyrr­ver­andi ráð­herra Vinstri grænna, Jóns Bjarna­sonar, en Jón yfir­gaf flokk­inn á sínum tíma.

„Við erum svo­lítið eins og hálf­gerður klúbbur“

Ásgeir tekur við ágætu búi í sögu­legu sam­hengi. Skuldir rík­is­ins eru í lág­marki, verð­bólga er 3,1 pró­sent og stýri­vextir sögu­lega lágir. Næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur er mið­viku­dag­ur­inn 28. ágúst næst­kom­andi.

Í sam­tali við Stöð 2 sagði Ásgeir að stýri­vaxta­lækk­anir „gætu hæg­lega haldið áfram“ vegna fækk­unar ferða­manna. „Við erum líka að sjá kjara­samn­inga sem ég tel að stuðli að stöð­ug­leika í land­inu og allt þetta und­ir­byggir frek­ari stýri­vaxta­lækk­anir. En þetta veltur dálítið á því hvernig hag­kerfið þró­ast. Ísland er svo lítið land og við erum svo­lítið eins og hálf­gerður klúbbur þannig að hag­kerfið er mjög fljótt að snú­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár