Framhaldsskólakennari afneitar loftslagsbreytingum og segir Gretu Thunberg ekkert vita um vísindi

Páll Vil­hjálms­son segir að vinstri­menn og „lofts­lags­sinnar“ noti „ungu, sak­lausu, fal­legu stúlk­una Gretu Thunberg“ sem hug­mynda­fræði­legt tákn.

Framhaldsskólakennari afneitar loftslagsbreytingum og segir Gretu Thunberg ekkert vita um vísindi

Páll Vil­hjálms­son, sögu­kenn­ari við Fjöl­brauta­skól­ann í Garðabæ, sem reglu­lega er vitnað til í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins, telur að hnatt­ræn hlýnun sé „hug­mynda­fræði en ekki vís­indi.“ Þessu hélt hann fram í við­tali á Útvarpi Sögu í gær. Að sögn Páls nota vinstri­menn „hug­mynda­fræði­leg tákn til að koma boð­skapnum á fram­færi, eins og ungu, sak­lausu, fal­legu stúlk­una Gretu Thunberg sem getur auð­vitað alls ekki vitað eitt eða neitt um vís­indi“. 

Hann telur þetta þó mis­ráðið af lofts­lags­hreyf­ing­unni. „Ef Greta Thunberg væri aldr­aður vís­inda­maður, með mik­inn ljóma í kringum sig, væri hún trú­verð­ugri tals­maður fyrir þessa rugl­hugsun, að það sé til mann­gert veður.“ Páll segir að ungir upp­renn­andi vís­inda­menn sem trúi ekki á ham­fara­hlýnun eigi enga mögu­leika í vís­inda­heim­inum. Þeir sem gagn­rýni hnatt­ræna hlýnun fái á sig stimp­il­inn „afneit­arar“. 

Páll heldur því fram að fólk hafi komið sér saman um að trúa á ham­fara­hlýnun af manna völdum vegna þess að með hruni komm­ún­ism­ans og Sov­ét­ríkj­anna hafi mynd­ast „hug­mynda­fræði­legt tóm“. Lofts­lagsógnin rétt­læti rík­is­af­skiptin sem séu ær og kýr vinstri­manna. Segir Páll að „þessi meinta góð­mennska gagn­vart jörð­inni“ valdi fólki sem á um sárt að binda ennþá meiri erf­ið­leikum en það búi við nú þegar. 

Uppi varð fótur og fit árið 2015 þegar Páll skrif­aði pistil undir yfir­skrift­inni „Vont kyn­líf er ekki nauðgun-stráka­sjón­ar­horn“. „Að þessi maður sé læri­meist­ari ung­menna í Fjöl­brauta­skól­anum í Garðabæ er ekki boð­legt. Hverslags kjaftæði er þetta. Hver er til­gang­ur­inn með þessum skrifum?“ skrif­aði Máni Pét­urs­son útvarps­maður, sem sat í skóla­nefnd Fjöl­brauta­skól­ans í Garðabæ. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár