„Við minnumst þín sem manneskju sem barðist“

Laufey Ólafs­dóttir minn­ist systur sinnar, Ástrósar Kristrún­ar­dóttur, sem lést af völdum fíkni­efna á aðfanga­dag 2016, aðeins 22 ára gömul. Í dag hefði Ástrós fagnað 25 ára afmæli og eru minn­ing­ar­orðin rituð af því til­efni.

„Við minnumst þín sem manneskju sem barðist“

Ástrós Kristrún­ar­dóttir hefði í dag fagnað 25 ára afmæli sínu, en á aðfanga­dag 2016 lést hún af völdum fíkni­efna. Ástrós var alltaf vina­mörg og er sárt saknað. Systir hennar, Laufey Ólafs­dóttir, skrif­aði minn­ing­ar­orð í til­efni dags­ins, sem má lesa hér að neðan, en þar leggur hún áherslu á þakk­læti þrátt fyrir erf­ið­leik­ana. 

Við munum eftir þér

Alla daga hugsa ég til þín. Hvað þessi heimur saknar þín sárt. Hvað það vantar mikið inn í til­ver­una að hafa þig ekki hér. 

Við minn­umst þín sem skemmti­leg­ustu mann­eskju sem við höfum kynnst. 

Einhver sem gat alltaf látið okkur hlæja og líka verið mest óþol­andi mann­eskjan á staðnum. 

Við minn­umst þín sem mann­eskja sem við gátum leitað til því þú dæmdir engan. 

Þú tókst fólk­inu þínu eins og það er og við erum óend­an­lega þakk­lát fyrir öll þau skipti sem þú tókst okkur með opnum örmum.

Við minn­umst þín sem mann­eskjan sem var alltaf til staðar, til í að hlusta eða ein­fald­lega sitja og segja ekk­ert. Bara vera þarna. 

Við minn­umst þín sem mann­eskju sem barð­ist. 

„Þú kenndir okkur að það er eðli­legt að mis­takast“

Þú kenndir okkur að það er eðli­legt að mis­takast og að mestu máli skiptir að standa upp aftur með höf­uðið hátt og reyna gera betur. 

Við minn­umst þín með þakk­læti í hjarta að hafa fengið að upp­lifa lífið, þó ekki nema part, með svona ein­stökum og mögn­uðum karakter sem situr svo djúpt í okkur. Það djúpt að það fær­ist verkur í hjartað að hugsa til þín. 

En fremur öllu öðru, allri van­líðan, tárum eða svefn­lausum nóttum, er það þakk­lætið.

Fyrir minn­ing­arnar, fyrir hlát­ur­sköstin, að fá að sjá þig dansa í góðu skapi, að sjá þig yfir höfuð.

Að hafa fengið þennan stutta og erf­iða en alltof góða tíma með þér.

Að hafa kynnst þér.

Því Ástrós, 

þú ert engum lík. 

Við minn­umst þín aðeins meira í dag heldur en hina dag­ana. 

Aðeins meira dag­ana fram að þessum degi, því þetta er dag­ur­inn þinn. 

Til ham­ingju með afmælið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár