Fendibelti fyrir fermingarpeningana

Tengsl eru á milli þess að ung­lingar aðhyllist tísku­strauma þar sem dýrar merkja­vörur eru í fyr­ir­rúmi og hlusti mikið á rapp, segja kenn­arar, nem­endur og rapp­arar. Dæmi eru um að ferm­ing­ar­pen­ingar séu nýttir til að fjár­magna neysl­una en íslenskir rapp­arar benda á að textar þeirra, þar sem merkja­vara er lof­sömuð, séu undir áhrifum banda­rískra rapp­ara sem nota merkja­vörur til að fjar­lægj­ast fátækra­hverfin.

Úr myndbandinu Joey Cypher
Úr mynd­band­inu Joey Cypher Jóhann Krist­ó­fer segir íslenska rapp­ara vera á flottum bílum, með dem­anta­háls­men og í flottum fötum.

Nemendur í grunn­skóla kaupa meðal ann­ars merkja­vöru fyrir ferm­ing­ar­pen­ing­inn. Dæmi eru um átt­undu bekk­inga í Haga­skóla sem keyptu Fendi­belti fyrir ferm­ing­ar­pen­inga, ein­hver í árgang­inum á Gucci-skóla­tösku en aðrir láta sig lítt varða þessa merkja­vöru­tísku, sem fer eins og eldur um sinu um ganga skól­ans. 

Kennari í Haga­skóla og barna­sál­fræð­ingur segja aug­ljóst hvaðan efn­is­hyggja ung­menn­anna komi. „Þetta er rappið, það er aug­ljóst. Hundrað pró­sent,“ segir Hildur Ásgeirs­dóttir, kenn­ari í átt­unda bekk í Haga­skóla. 

Fermingarpeningarnir fóru í Fendi

„Ég ætla að þora að segja að í hund­rað pró­sent til­fella eru krakk­arnir sem klæða sig svona að hlusta á rapp, svo gott sem ein­göngu. Í því sem þau hafa spilað fyrir mig eru rapp­ar­arnir að rappa um Gucci og þá þykir það auð­vitað mjög flott,“ segir Hildur. 

Hildur segir að í 200 manna árgangi átt­unda bekkjar í Haga­skóla eigi þetta alls ekki við um alla, um sé að ræða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár