Húðflóran hefur áhrif á fæðuofnæmi

Líkami okkar inni­heldur ótrú­legt magn frumna sem starfa við það að byggja upp líf­færi okkar. Allar þessar frumur gegna viða­miklu hlut­verki hvern ein­asta dag við að halda okkur gang­andi og við­halda heilsu okkar.

Fjöldi lík­ams­frumna okkar bliknar þó í sam­an­burði við allan þann fjölda bakt­ería sem býr í og á lík­ama okkar. Þessar dreif­kjarna­frumur sem lík­ami okkar hefur tekið að sér að hýsa gegna ekki síður mik­il­vægu hlut­verki í dag­legu lífi okkar, jafn­vel þótt þeirra mik­il­væga hlut­verk sé aðeins að koma almenni­lega í ljós núna.

Staphylococcus aureus

Ein af þessum dreif­kjarna­frumum ber teg­unda­heitið Staphylococcus aureus (S. aureus). S. aureus er bakt­ería sem lifir gjarnan á húð eða í nef­holi manna og talið er að um 30% manna beri hana í sinni eðli­legu húð­flóru.

Þótt bakt­er­ían sé til­tölu­lega algeng í eðli­legri flóru manna getur hún samt sem áður valdið sýk­ingum. Hjá ein­stak­lingi sem er með bakt­er­í­una í sinni hefð­bundnu bakt­er­íuflóru ger­ist það yfir­leitt bara ef ein­hver röskun verður á bakt­er­íuflór­unni.

Staphylococcus veldur helst sýk­ingum í þeim líf­færum sem eru nefnd hérna að ofan, það er að segja á húð eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár