Morgunblaðið og Fréttablaðið fá hærri ríkisstyrk eftir umkvartanir

Nýtt fjöl­miðla­frum­varp um styrk til einka­rek­inna miðla hefur verið lagt fram á Alþingi. Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið kvört­uðu undan 50 millj­óna króna hámarki á styrki í fyrri útgáfu og fá nú „sér­stakan stuðn­ing“ til við­bótar.

Morgunblaðið og Fréttablaðið fá hærri ríkisstyrk eftir umkvartanir
Davíð Oddsson Rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins fær auk­inn styrk frá því sem kynnt var í fyrstu drögum nýs frum­varps um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla. Mynd: Pressphotos

Fjöl­miðla­frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra, sem kveður á um stuðn­ing til einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi í takt við hin Norð­ur­löndin, hefur nú verið lagt fram á Alþingi.

Frum­varpið er lít­il­lega breytt frá því sem kynnt var áður á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Helsta breyt­ingin felst í því að rit­stjórnir Morg­un­blaðs­ins, Frétta­blaðs­ins og Sýnar fá hærri styrki en áður var boðað, en þau tvö fyrr­nefndu höfðu gagn­rýnt harð­lega 50 millj­óna króna þak á rík­is­styrki og farið fram á að ein­ungis stærstu fjöl­miðlar fengju styrki.

Samkvæmt frum­varp­inu end­ur­greiðir ríkið 25 pró­sent af rit­stjórn­ar­kostn­aði fjöl­miðla upp að fyrr­nefndu þaki. Talið var að kostn­að­ur­inn við frum­varpið næmi á milli 300 og 400 millj­ónum króna. Í nýfram­lögðu frum­varpi hefur verið bætt við „sér­stökum stuðn­ingi“ sem felur í sér 5,15% end­ur­greiðslu launa­kostn­aðar upp að 927.087 í mán­að­ar­laun sem getur verið umfram 50 millj­óna króna þakið. 

Skilyrði fyrir styrk­veit­ingum er að fjöl­mið­ill hafi verið starf­ræktur í minnst 12 mán­uði áður en sótt er um. Þá séu starfs­menn við efn­is­vinnslu ekki færri en þrír, eða einn á svæð­is­bundnum miðli. Prent­miðlar þurfa að koma út minnst 48 sinnum á ári og minnst 40 pró­sent af efni mið­ils­ins þarf að vera rit­stjórn­ar­efni og einn sjötti hluti þess þarf að byggja á sjálf­stæðri frétta- eða heim­ildar­öflun. Þá má fjöl­mið­ill­inn ekki vera í skuld við opin­bera aðila, svo sem með skatt- eða líf­eyr­is­greiðslur. Undir end­ur­greiðslu­hæfan kostnað fellur beinn launa­kostn­aður blaða- og frétta­manna, rit­stjóra og aðstoð­ar­rit­stjóra, mynda­töku­manna, ljós­mynd­ara og próf­arka­les­ara vegna öfl­unar og miðl­unar á efni.

Gagnrýndu þak á styrki

For­svars­menn Árvakurs, sem gefur út Morg­un­blaðið, og Torgs ehf, sem gefur út Frétta­blaðið, gagn­rýndu frum­varpið harð­lega fyrir að beina ekki nægum hluta styrkja að stærri fjöl­miðlum og að bregð­ast ekki við sterkri stöðu Rík­is­út­varps­ins.

Kristín Þor­steins­dóttir, útgef­andi Frétta­blaðs­ins, sagði í leið­ara blaðs­ins á mið­viku­dag að um blekk­ingu væri að ræða. „Stað­reyndin er sú að frum­varpið mun engin áhrif hafa á starf­semi á þessum mark­aði önnur en þau að hvetja til stofn­unar örmiðla,“ sagði hún. Í umsögn sinni við frum­varpið lögðu Kristín og Ingi­björg Pálma­dóttir, aðal­eig­andi Frétta­blaðs­ins, til að minni kröfur væri gerðar um hlut­fall rit­stjórn­ar­efnis, eða að það væri að lág­marki 30 pró­sent efnis en ekki að lág­marki 40 pró­sent.

Þá sagði Haraldur Johann­es­son, annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, í umsögn við frum­varpið fyrir hönd Árvakurs að ein­ungis væru „þrjár burð­ugar rit­stjórnir“ á einka­reknum miðlum á Íslandi: Morg­un­blaðið, Frétta­blaðið og rit­stjórn Vísis og Stöðvar 2. „Þeir þrír fjöl­miðlar sem burð­ugir geta talist fá að hámarki 150 millj­ónir króna af þeim allt að 400 millj­ónum króna sem til úthlut­unar verða.“

Hann lagði til að fjöl­miðla­rit­stjórnir með færri en 10-20 starfs­menn fengju enga styrki.

Báðir aðilar lögðu einnig til að leyft væri að aug­lýsa áfengi.

Rekstrarforsendur versnað

Í rök­stuðn­ingi með frum­varp­inu er aðdrag­andi þess skýrður. „Síðustu ár hafa rekstr­ar­for­sendur einka­rek­inna fjöl­miðla hér á landi versnað til muna. Margar ástæður eru fyrir þeirri þróun svo sem örar tækni­breyt­ingar og minnk­andi aug­lýs­inga­tekjur fjöl­miðla sam­hliða breyttri neyslu­hegðun fyr­ir­tækja á mark­aði. Þá hefur sam­keppni inn­lendra fjöl­miðla við erlendar efn­isveitur farið vax­andi síð­ustu ár vegna fjöl­breytt­ari miðl­un­ar­að­ferða. Kaup á aug­lýs­ingum fær­ast í auknum mæli til erlendra stór­fyr­ir­tækja svo sem net- og sam­fé­lags­miðla sem leitt hefur til sam­dráttar í aug­lýs­inga­sölu hjá hinum hefð­bundnu einka­reknu fjöl­miðlum.

Í ljósi þess­ara breyt­inga og erf­iðs rekstr­ar­um­hverfis einka­rek­inna fjöl­miðla var í lok árs 2016 ákveðið að setja á lagg­irnar nefnd til að greina rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hér á landi. Nefndin skil­aði skýrslu í jan­úar 2018 þar sem lagðar voru fram til­lögur í sjö liðum um aðgerðir til að bæta rekstr­ar­grund­völl fjöl­miðla. Ein til­lagan fól í sér stuðn­ings­kerfi við einka­rekna fjöl­miðla að nor­rænni fyr­ir­mynd,“ segir í frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár