Sjö þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja þrengja réttinn til að rjúfa þungun vegna fósturgalla – Bjarni greiddi atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi

Bjarni Bene­dikts­son og sjö aðrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði gegn frum­varpi Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um þung­un­ar­rof. Frum­varpið var sam­þykkt með 40 atkvæðum gegn 18.

Sjö þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja þrengja réttinn til að rjúfa þungun vegna fósturgalla – Bjarni greiddi atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi

Sjö þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði með breyt­ing­ar­til­lögu Páls Magn­ús­sonar um að rétt­ur­inn til þung­un­ar­rofs miði við 20 vikur í stað 22 vikna. 

Þetta eru þeir Birgir Ármanns­son, Bjarni Bene­dikts­son, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Haraldur Bene­dikts­son, Njáll Trausti Frið­berts­son, Óli Björn Kárason og Páll Magn­ús­son. 

Með til­lög­unni var lagt til að réttur kvenna til að gang­ast undir þung­un­ar­rof vegna van­sköp­unar, erfða­galla eða sködd­unar fóst­urs yrði skertur um tvær vikur frá því sem nú er. Hins vegar hefði breyt­ingin rýmkað rétt­inn til þung­un­ar­rofs af félags­legum ástæðum um fjórar vikur. 

Átta þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögð­ust gegn stjórn­ar­frum­varp­inu í heild, meðal ann­ars for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son og Birgir Ármanns­son þing­flokks­for­maður. 

Breytingartillagan hefði skert rétt kvenna

Tillaga Páls Magn­ús­sonar um 20 vikna viku­fjölda var til­raun til að miðla málum og koma til móts við gagn­rýn­is­raddir. Sig­ur­laug Bene­dikts­dóttir fæð­inga­læknir gagn­rýndi til­lög­una harð­lega í við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar. 

„Í dag býðst verð­andi mæðrum fóst­ur­grein­ing í 19. eða 20. viku. Ef grunur vaknar um fóst­ur­galla, þá getur það tekið 1–2 vikur að gera end­ur­teknar skoð­anir og rann­sóknir þar til nið­ur­staða liggur fyrir og konan stendur frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort hún kýs að halda áfram með­göng­unni eða rjúfa hana,“ sagði hún. 

Á und­an­förnum árum hafa á bil­inu 7 til 10 konur á ári rofið þungun eftir að gallar greindust við 20 vikna fóst­ur­grein­ingu.

„Það er ekki hægt að þvinga konur til að ákveða undir eins hvort þær vilji gang­ast undir þung­un­ar­rof eftir fóst­ur­grein­ing­una, svo vænt­an­lega þyrfti að flýta skoð­un­inni, láta hana fara fram í 17. eða 18. viku. Fyrir vikið yrði grein­ingin ekki nærri jafn nákvæm og hún er í dag. Mér sýn­ist þetta ekki vera hugsað til enda. Að færa mörkin niður í 20 vikur væri að skerða rétt þess hóps kvenna, hvers fóstur er með alvar­legan fóst­ur­galla. Það væri sömu­leiðis mun lak­ari þjón­usta fyrir þann stóra hóp kvenna sem óskar eftir fóst­ur­grein­ingu, að fram­kvæma skoð­un­ina í viku 17–18. Þetta væri mikil aft­ur­för og skerð­ing á gæðum þjón­ust­unnar.“

Afgerandi stuðningur frá Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn

Frum­varpið um þung­un­ar­rof var sam­þykkt með 40 atkvæðum gegn 18.

Eins og sjá má hér að ofan studdi stór hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar frum­varpið, meðal ann­ars allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar.

Þá greiddu allir þing­menn Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins atkvæði með því en minni­hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hópur fólks mætti á þing­palla og fagn­aði eftir að atkvæða­greiðsl­unni lauk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár