Segir selatillögu sjónarspil

„Það er mikið áhyggju­efni að selir eru að kom­ast í útrým­ing­ar­hættu en það verður ekki leyst með til­lögu frá umhverfis- og heil­brigð­is­ráði Reykja­víkur,“ segir Vigdís Hauks­dóttir

Selur
Selur Bæði land­selir og útselir eru á válista.

Umhverfis- og heil­brigð­is­ráð Reykja­víkur sam­þykkti á mið­viku­dag til­lögu um að selir fái frið­helgi á strand­svæðum og við árósa í Reykja­vík. Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, sat hjá við atkvæða­greiðslu og sagði til­lög­una sjón­ar­spil.

Staða íslenskra sela­stofna er bág­borin og eru bæði land- og útselur skráðir á válista yfir spen­dýr. Ráðið lagði til að lagaum­gjörð um seli yrði end­ur­skoðuð með það fyrir augum að tryggja vernd íslensku sela­stofn­ana til fram­tíðar. Þá þyrfti að end­ur­skoða hvort mál­efni sela ættu ekki heima undir stjórn umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins.

Vigdís Hauks­dóttirFulltrúi Mið­flokks­ins vill frið­lýsa Faxaflóa.

„Allt í kringum þessa til­lögu er mikið sjón­ar­spil og er í grunn­inn afskipti af stjórn­sýslu rík­is­ins sem sveit­ar­fé­lög hafa ekk­ert með að gera,“ segir í bókun Vigdísar á fund­inum. „Afskipti borg­ar­innar um það hvaða mála­flokkar eru í hvaða ráðu­neyti eru merki um mál­þurrð, en hæg eru heima­tökin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár