Heillaðist að því hvernig hún blandar saman hinu óþægilega og fallega

Undir áhrifum er nýr liður í umsjón Katrínar Helgu Andr­és­dóttur þar sem íslenskar tón­list­ar­konur fjalla um áhrifa­valda sína. Að þessu sinni ræðir hún við Sölku Vals­dóttur, rapp­ara og pródúsent, um tón­list­ar­kon­una Sevdalizu.

Heillaðist að því hvernig hún blandar saman hinu óþægilega og fallega

Katrín: Áður en við beinum athygl­inni að Sevdalizu, langar mig aðeins að kynna þig, Salka. Þú hefur gert garð­inn frægan með Reykja­vík­ur­dætrum og Cyber, auk þess að koma fram með fleiri hljóm­sveitum. Nýlega gáfuð þið í Cyber út plöt­una Bizness, sem er fyrsta íslenska hip hop-platan pródúseruð af konu og um þessar mundir ertu að vinna í nýrri plötu með Reykja­vík­ur­dætrum sem er einnig pródúseruð af þér. Þú ert meðal ann­ars undir áhrifum af írönsk-hol­lensku raf­tón­list­ar­kon­unni Sevdalizu. Viltu kynna hana aðeins fyrir okkur?

Salka: Já. Ég myndi segja að hún sé sú tón­list­ar­kona, sem í þá tíð sem ég hef verið að gera raf­tón­list, hefur verið mín helsta fyr­ir­mynd. Hún vinnur sem pródúsent, söng­kona og píanó­leik­ari, auk þess að vera list­rænn stjórn­andi allra tón­list­ar­mynd­banda og plötu­umslaga sinna. Hún hefur yfir­um­sjón með sínum heimi og fing­urna í öllu sem kemur frá henni. Svo er hún líka dans­ari, sem maður sér á tón­leikum, hún er með geð­veikar sviðs­hreyf­ingar finnst mér. Ég fatt­aði þegar ég valdi að tala um hana hvað þetta er ungur tón­list­ar­maður, það er fullt af öðrum hljóm­sveitum sem ég veit í raun­inni miklu meira um, því það er ein­fald­lega meira um þær að vita, en hún gaf út sína fyrstu, eða sína einu breið­skífu 2017, sem heitir Ison. Ekki löngu fyrir það var hún að gefa út singúl­ana af henni og þá kynnt­ist ég henni. Það var Jóhanna sem sýndi mér hana, hún hafði þá séð Human-mynd­bandið.

Katrín: Er það mynd­bandið þar sem hún er með hesta­hófa?

Salka: Já, svona hálfur hestur.

„Ég er örugg­lega prógrammeruð til þess að líta upp til þess­arar konu. Hún er gjör­sam­lega allt sem ég er með sam­visku­bit yfir því að vera ekki“

Katrín: En samt ekki með búk­inn ein­hvern veg­inn, heldur bara með fæt­urna. Mjög skrítið. Af því hún er svo ótrú­lega fal­leg að ofan, og svo eru þessir fætur og það er ekki beint sexí, eig­in­lega bara skrítið. Flott hvernig hún blandar saman óþægi­legu og fal­legu.

Salka: Já. Heim­ur­inn hennar er mjög leik­rænn.

Katrín: Svolítið óhugn­an­legur.

Salka: Já, dimmur en samt mjúkur, kven­legur en samt … skynj­unin mín á mörgu því sem hún gerir er eins og þetta ger­ist í geimnum eða eitt­hvað. Gerist á annarri plánetu, veistu hvað ég meina? Hún er alltaf að breyta formum, taka and­litið sitt og setja það á gínu ... alltaf að breyta eðli hluta og sjálfs síns, og lík­ama.

Katrín: Já, mér finnst þetta vera í hálf­gerðri tölvu­vídd, frekar en í geimnum. Af því að þetta er svo digi­tal.

Salka: Mjög digi­tal, já. Og tón­listin hennar líka. Ég er mjög inn­blásin af því hvernig hún blandar saman sínum pródúk­sjónum við alls konar upp­tökur á hljóð­færum. Hún nær að búa til rosa­lega stóran hljóð­heim úr mjög litlu, nota ólíka heima sem mæt­ast á ótrú­lega fal­legan hátt.

Katrín: Eigum við að fara aðeins í bak­grunn­inn? Hún fædd­ist í Teheran í Íran, en flutti þaðan til Hollands þegar hún var fimm ára. Hún er algjör „overacheiver“, var á skóla­styrk þegar hún var sextán ára að spila með körfu­boltalið­inu í skól­anum sínum og fór svo seinna að spila með lands­lið­inu í körfu­bolta.

Salka: Já, einmitt. Hún er nátt­úr­lega rosa­lega hávaxin, sko. Ég held hún sé einn og níu­tíu eða eitt­hvað djók.

Katrín: Nei!

Salka: Jú. Hún er „huge“. Og líka ótrú­lega sterk­byggð. Hún er svona eins og mann­eskja sem er búið að hlut­falls­lega teygja út í horn­unum, eins og mynd. Ótrúlega tign­ar­leg, hún lítur út eins og ein­hver forn­grísk gyðja.

Katrín: Algjör­lega! Og hún er með svo sterkt nef! Myndi maður segja að þetta væri arn­ar­nef? Eða er það bogið? Þetta er ekki bogið nef, þetta er mjög beint nef!

Salka: Þetta er beint nef með tign arn­ar­nefs­ins!

Katrín: Mikil tign í þessu nefi. Og kinn­bein­unum og allri and­lits­bygg­ing­unni. Og einmitt, breiðar axlir. Sterk. Svo er hún með masters­gráðu í Communications. Hvað myndi maður kalla það á íslensku?

Salka: Sam­skipta­fræði?

Katrín: Mér líður eins og þetta hafi að gera með tengsla­myndun.

Salka: Já, auð­vitað, eitt­hvað svona PR.

„Sam­fé­lagið var stöðugt að gefa henni þau skila­boð að hún nyti vel­gengni, en henni leið ekki vel og skildi ekki af hverju“

Katrín: Einmitt. Ég skoð­aði við­tal við hana þar sem hún tal­aði um að henni hafi ungri gengið mjög vel innan þeirrar senu, fengið gott starf og vel launað, en hafi á sama tíma verið mjög óham­ingju­söm. Sam­fé­lagið var stöðugt að gefa henni þau skila­boð að hún nyti vel­gengni, en henni leið ekki vel og skildi ekki af hverju. Hún segir frá því að hún hafi farið í heims­reisu og verið að djamma með brasil­ískri fjöl­skyldu, sem sagt að spila, og fattað að þetta væri það sem gerði hana ham­ingju­sama, og fór þá að stefna að því að verða tón­list­ar­kona. Hún er fædd átta­tíuogsjö.

Salka: Já, hún er þrjá­tíu og eins árs. En hún er greini­lega ein­hver ofviti eða eitt­hvað.

Katrín: Hún talar sko fimm tungu­mál!

Salka: Já. Hvaða? Pers­nesku, hol­lensku, ensku …

Katrín: Portú­gölsku og frönsku.

Salka: Já já. Beisikk.

Katrín: Hún segir líka í ein­hverju við­tali að hún sé mjög öguð – sem maður finnur!

Salka: Það kæmi mér mjög mikið á óvart ef hún væri það ekki! Ég er örugg­lega prógrammeruð til þess að líta upp til þess­arar konu. Hún er gjör­sam­lega allt sem ég er með sam­visku­bit yfir því að vera ekki.

Katrín: En hún hlýtur líka að setja mjög mikla pressu á sjálfa sig, vera algjör full­komn­un­ar­sinni, með því­líka áráttu. Ég gæti alveg trúað því að það sé erfitt að vera hún.

Salka: Já, ég bara vor­kenni henni ekki neitt, sko (hlær). Mér finnst líka heyr­ast mjög vel að það sé eitt­hvað sem hún þarf að segja. Hún hefur ein­hverja svaka tján­ing­ar­þörf sem hún er drifin af. Sem er kannski ekki endi­lega bara „volunt­ary“. Hana klæjar ein­hvers staðar og verður að klóra sér.

Katrín: Vel orðað. Ég skoð­aði instagram­mið hennar, gaman að skoða það. Hún er mjög ljóð­ræn. Undir færsl­unum hennar eru oft bara ljóð.

Salka: Já, hún er mjög dramat­ísk. Það myndu alls ekki margir púlla það að vera svona dramat­ískir. Ég er mjög hrifin af drama­tík, þegar rétt fólk er dramat­ískt. Eða drama­tík í réttu sam­hengi. Eig­in­lega því meiri epík sem fólk kemst upp með að hafa í tón­list og per­formans, því betra finnst mér. En það er líka mjög vand­með­farið, getur gjör­sam­lega fallið flatt á mag­ann. Eitt sem er mjög sterkt í text­unum hennar og orð­ræðu er þetta með kven­leik­ann. Að hann sé stór­feng­legur og líka gjör­sam­lega und­ir­gef­inn og ein­hvern veg­inn ...

Katrín: Brot­hættur?

„Öll þessi nið­ur­læg­ing og hvernig er risið úr henni. Sem mér finnst vera mjög afger­andi í hljóð­heim­inum hennar“

Salka: Já, brot­hættur og öll þessi nið­ur­læg­ing og hvernig er risið úr henni. Sem mér finnst vera mjög afger­andi í hljóð­heim­inum hennar, þessum hörðu, digi­tal-hljóðum og svo þessi mjúka fiðlu­stemn­ing og röddin hennar og hvernig vinnslan er á henni, bæði svona ótrú­lega mjúk, en líka hökt­andi og mikið unnin. Það kemur vel heim og saman við hvernig hún semur tón­list, hljóð, texta og hvernig mynd­heim­ur­inn skilar öllu.

Katrín: Það er líka gaman að sjá hvað þetta er mikið hún. Hún er með sitt eigið sánd og lúkk og maður fær það alls ekki á til­finn­ing­una að hún sé að elta tísku­strauma, þetta er ein­hvern veg­inn miklu tíma­laus­ara en það.

Salka: Já, þetta er mjög tíma­laust. Ég held þetta verði aldrei eitt­hvað asna­legt, nema þá fyrir þeim sem finnst þetta asna­legt nú þegar. Þetta lyktar all mjög mikið af svona klassík og ein­hverju … kon­ungs­veldi! Svona Í ljósi sög­unnar-klám.

Katrín: Algjör­lega! Hún tal­aði líka um það í við­tali hvað íranska þjóðin sé rík af menn­ingu og að það hafi bara verið tíma­spurs­mál hvenær það kæmi upp á yfir­borðið.

Salka: Það er eitt af því sem er svo spenn­andi við hljóð­heim­inn hennar. Hvernig hún notar aug­ljós­lega áhrifin frá sinni menn­ingu og nær að tvinna þau saman við þennan raf­tón­list­ar­heim á svo spenn­andi hátt.

Katrín: Já, kör­rent og klass­ískt á sama tíma. Hún hefur unnið dálítið mikið með, eins og þú segir, hlut­verk kon­unnar. Hefurðu séð mynd­bandið við Amandine Insensi­ble? Þar er hún eins og ideal kona í mis­mun­andi hlut­verkum. Hún er í hvítu vakúm-speisi og hún er sterka konan, hún er sexí konan, hún er vinnu-success-career konan, hún er öll þessi hlut­verk og það er svo yfir­þyrm­andi ómögu­legt!

Salka: Já. Þetta er góð við­bót við þennan heim sem er svona klass­ískur og kon­ung­legur, hvernig hún tæklar kven­leika á mjög „relata­ble“ hátt. Þetta verður þannig kunn­ug­legra, alla­vega fyrir mig.

Katrín: Einmitt. Ég las við­tal við hana þar sem hún talar um, af því að hún er svo kröftug kona og tign­ar­leg og bara eins og hún sé með hlut­ina alveg á hreinu, þá talar hún um að sem kona fái hún á móti gagn­rýn­ina: getur hún verið „vulnera­ble“, getur hún verið mjúk? Að ef hún væri karl þá væri ekki eins mikil krafa á að hún væri hvort tveggja.

Salka: Ég held að það sé oft mik­ill nún­ingur inni í konum út af þessu, að þurfa í raun­inni að þykj­ast vera karl­menn til að fá ákveðin völd, en þykja þá sömu­leiðis tapa kven­leik­anum og eru þar af leið­andi gagn­rýndar harka­lega. Gullni með­al­veg­ur­inn er tals­vert þrengri.

Katrín: Einmitt. En hvernig myndir þú segja að hennar áhrif end­ur­speglist í þinni tón­list?

Salka: Á mjög margan hátt, myndi ég segja. Ég man bara þegar ég heyrði í fyrsta skipti tón­list­ina hennar, og ég fékk svona … ótrú­lega mikla … það losn­aði eitt­hvað. Þetta var eig­in­lega í fyrsta skipti sem ég heyrði eitt­hvað sem ég var bara, mig langar að búa þetta til, ég hefði viljað búa þetta til! Og óháð öllu! Ekki út af því að ég héldi að þetta yrði svo vin­sælt eða eitt­hvað svo­leiðis, það var bara, vá hvað mig langar að vera að gera þetta! Það að heyra hennar tón­list hvatti mig mikið til að halda áfram, bæði í að læra að fram­leiða raf­tón­list, en líka í að finna eitt­hvert sánd. Ég hef ótrú­leg mikla ástríðu fyrir hljóði og ég heyri ekki oft eitt­hvað sem mér finnst raun­veru­lega mjög gott, eða sem talar mjög vel til mín og að sama skapi bý ég ekki oft eitt­hvað til sem gerir það. Hún er svo ótrú­lega góð í að búa til eft­ir­vænt­ingu eða „suspence“. Hún er meist­ari í því að búa til spennu og nota rými, nota þögn­ina. Það eru oft ótrú­lega fín­gerðir núansar í hljóð­vinnsl­unni sem eru ótrú­lega áhrifa­ríkir og maður heyrir þá ein­hvern veg­inn í gegnum allt og finnur ásetn­ing­inn í hverju ein­asta litlu tvíki á ein­hverri tíðni.

Katrín: Mér finnst það trait vera dálítið kven­legt, að hafa allt útpælt, en hafa líka svona mikið speis. Hafa þögn­ina og hafa eitt­hvað sem er við­kvæmt og gefa hlut­unum rými. Kannski er eitt­hvað gert sem er svo aldrei end­ur­tekið. Það er verið að gefa manni litla nammimola hér og þar.

Salka: Ég myndi alla­vega segja að ég hafi unnið mjög mikið með það í minni tón­list, búa til spennu, nota þagnir, finna leiðir til að lagið verði meira … þannig að þig langi næstum því að hreyfa þig með því eins og þú sért í öldu­gangi. Veistu hvað ég meina? Að lagið haldi þér og stjórni því hvernig þú andar, haldi þér í helj­ar­g­reipum. Ég vil þetta í tón­list. Ég vil að tón­list taki mig og fokki mér smá upp. Það er það sem ég elska mest og ég held að það sé líka ástæðan fyrir því að ég er svona hrifin af þess­ari teg­und af flutn­ingi. Mann­eskjan veit nákvæm­lega hvað hún vill og hvað hún ætlar að gera og þú getur bara setið og hlustað og horft á. Ég vil bara að fólk stjórn­ist í mér. Ég er bara lít­ill sub (hlær).

Katrín: Viltu segja okkur aðeins frá lag­inu sem þú ætlar að covera?

Salka: Já. Það var mjög erfitt að velja lag, því hún er geð­veikt góð í því sem mig langar að verða góð í. Það er ekk­ert lag með henni sem ég myndi í raun­inni vilja end­ur­gera, það er mjög fátt sem mér fynd­ist ég vera í stakk búin til þess einu sinni að hugsa um hvernig mætti breyta. Þannig að ég valdi lag sem heitir Bebin, það kom út minnir mig dag­inn eða tveimur dögum eftir að sett voru ferða­höftin á Mið-Aust­ur­lönd til Banda­ríkj­anna.

Katrín: Sem hefur verið kallað múslíma­bannið.

Salka: Einmitt, og hún ver­andi íranskur rík­is­borg­ari var gerð útlæg. Þetta hafði áhrif á túr­inn hennar, hún gat ekki spilað eitt­hvað í Banda­ríkj­unum, þannig að hún gerði þetta lag. Bebin þýðir á ensku beware eða behold, en lagið er á pers­nesku. Þetta orð getur verið hótun en þarf ekki endi­lega að vera nei­kvætt.

Katrín: Svona búðu þig undir eitt­hvað.

„Að lagið haldi þér og stjórni því hvernig þú andar, haldi þér í helj­ar­g­reipum. Ég vil þetta í tón­list.“

Salka: Já. Ég sagði var­aðu þig. Þetta er ekki bein­þýtt, ég tók inni­haldið og leyfði mér aðeins að skálda í kringum það. Ég segi eig­in­lega allt sem hún segir en svo segi ég líka sumt fleira sem mér fannst skreyta mynd­ina betur, rím­aði eða flæddi betur. Svolítið erfitt að þýða svona úr pers­nesku. Ég setti þetta bara í Google translate, hef engan sans fyrir tungu­mál­inu, það er nátt­úr­lega bara allt annað letur og ekk­ert fyrir mig að miða við. En það var eitt komment á youtube eftir íranskan strák sem var búinn að þýða þetta, sem ég studd­ist við. Viltu að ég fari með text­ann?

Katrín: Endilega!

Salka: Ég íslenskaði hann sem sagt svona:

Reykur og blóð

Leggðu aftur augun þín

Stórt ber smátt

Leggðu aftur augun

Loka loka

Reykur blóð og þoka

Hvað sem er

undir augn­lokum þér

Varaðu þig

var­aðu þig

Spurðu að því hvað hún er að fela

Spurðu að því hvernig það má vera

Það sem þú vilt það skal ég gefa

Það sem þú vilt það skal ég gefa

Ef heim­ur­inn sér það

Loka loka

Reykur blóð og þoka

Hvað sem er

undir augn­lok­unum á þér

Varaðu þig

Varaðu þig

Katrín: Manni finnst þetta svo íslenskt ein­hvern veg­inn, eins og krípí íslensk vöggu­vísa.

Salka: Ég á alveg ein­hvern þátt í því, held ég, að vera svona drunga­legur íslenskur filter.

Katrín: Sem höfðar svo vel til mín og von­andi les­enda líka. Það er búið að vera mjög skemmti­legt að tala við þig, Salka, um Sevdalizu. Takk fyrir kom­una!

Salka: Takk fyrir mig!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár