Þrír ráðherrar sátu hjá í atkvæðagreiðslu um rýmri rétt kvenna til þungunarrofs

Bjarni Bene­dikts­son, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Lilja Alfreðs­dóttir studdu ekki grund­vall­ar­á­kvæði í frum­varpi Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, ákvæðið sem lýtur að rétti kvenna til að fá þungun rofna fram til loka 22. viku með­göngu.

Þrír ráðherrar sátu hjá í atkvæðagreiðslu um rýmri rétt kvenna til þungunarrofs

Þrír ráð­herrar sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um grund­vall­ar­á­kvæði í frum­varpi Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra til laga um þung­un­ar­rof.

Þetta voru þau Bjarni Bene­dikts­son, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Lilja Alfreðs­dóttir, en um er að ræða 4. gr. frum­varps­ins um rétt kvenna til að rjúfa þungun fram til loka 22. viku með­göngu. Aðeins sex þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ákvæðið, sjö sátu hjá og einn greiddi atkvæði gegn því.

Annarri umræðu um frum­varpið er nú lokið og gengur málið aftur til vel­ferð­ar­nefndar.

Þingmenn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins og trú­fé­lög hafa gagn­rýnt ákvæðið um rýmri rétt til þung­un­ar­rofs harð­lega en efni þess er í sam­ræmi við ráð­gjöf fag­að­ila, svo sem Félags íslenskra fæð­ingar- og kven­sjúk­dóma­lækna og Land­spít­al­ans.

Auk ráð­herr­anna þriggja sátu fimm þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hjá, þeir Haraldur Bene­dikts­son, Jón Gunn­ars­son,  Njáll Trausti Frið­berts­son, Óli Björn Kárason og Páll Magn­ús­son. 

„Ég mun ekki greiða atkvæði um fjórðu grein­ina eins og ég kom að hér áðan og það geri ég í trausti þess að vel­ferð­ar­nefnd taki málið aftur til umfjöll­unar og geri nú til­raun til þess að skapa víð­tæk­ari sátt í jafn við­kvæmu máli og hér um ræðir,“ sagði Óli Björn. „Það er mín eina ósk að það sé gerð sú til­raun. Og að menn hlusti á þessar við­kvæmu raddir sem að hér hafa komið fram. Ég mun því ekki greiða atkvæði herra for­seti.“

10 þing­menn lögð­ust gegn ákvæð­inu, Ásmundur Frið­riks­son úr Sjálf­stæð­is­flokknum, Anna Kolbrún Árna­dóttir, Birgir Þór­ar­ins­son, Karl Gauti Hjalta­son, Ólafur Ísleifs­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Sigurður Páll Jónsson og Þor­steinn Sæmunds­son úr Mið­flokknum og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son og Inga Sæland úr Flokki fólks­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár