Hótelstjóri KEA græddi ævilaun launþega á lágmarkslaunum árið 2017

Hót­el­stjóri KEA-hót­ela, Páll Sig­ur­jóns­son, hagn­að­ist um meira en 170 millj­ónir króna inni í eign­ar­halds­fé­lagi sínu árið 2017. Páll seldi þá hluta­bréf í hót­el­inu til erlendra fjár­festa. Hann hefur ekki viljað veita við­tal um rekstur KEA-hót­ela.

Hótelstjóri KEA græddi ævilaun launþega á lágmarkslaunum árið 2017
Hefur ekki viljað veita við­tal Páll Sig­ur­jóns­son, hót­el­stjóri KEA, hefur ekki viljað veita Stund­inni við­tal en hann var­aði við verk­föllum árið 2015, árið eftir hagn­að­ist KEA um 750 millj­ónir, og hefur einnig verið áber­andi í fjöl­miðlum nú vegna verk­fall­anna.

Páll L. Sig­ur­jóns­son, hót­el­stjóri og fyrr­ver­andi hlut­hafi í KEA-hót­elum, hagn­að­ist um tæp­lega 173 millj­ónir króna í eign­ar­halds­fé­lagi sínu Selen ehf. árið 2017 þegar félag hans seldi hluta­bréf í KEA-hót­elum. Fjár­festar frá Alaska komu þá inn í eig­enda­hóp KEA-hót­ela.

Þetta er 42-föld árs­laun laun­þega á þeim taxta, 340 þús­und krónur, sem stétt­ar­fé­lagið VR gerir nú kröfu um að verði skil­greind lág­marks­laun fyrir félags­menn þess. Ef gert er ráð fyrir því að starfsævi sé 42 ár, til dæmis frá 26 til 68 ára, þá er um að ræða ævi­laun starfs­manns sem fær greidd laun sam­kvæmt þessum taxta. 

Hagnaður hót­ellaHagnaður nokk­urra hót­el­keðja á árunum 2010 til 2017 sést hér. Hagnaður KEA sést á bláu lín­unni.

Veitir ekki viðtal

Stundin hefur gert ítrek­aðar til­raunir frá því í síð­ustu viku til að ná við­tali við Pál um rekstur KEA-hót­ela þar sem verk­föll Eflingar og VR bein­ast meðal ann­ars að þess­ari hót­el­keðju  þar sem félags­menn þeirra eru þar í vinnu.

Páll hefur hins vegar birst í við­tölum við aðra fjöl­miðla, meðal ann­ars við Stöð 2 á föstu­dag­inn, á verk­falls­degi, þar sem hann meðal ann­ars sást þrífa kló­sett vegna verk­falla starfs­manna KEA-hót­ela. 

Ein af lyk­il­spurn­ing­unum er hvort félag eins og KEA-hótel hafi for­sendur til að greiða þau lág­marks­laun sem stétt­ar­fé­lag eins og VR krefst en um er ræða 342 þús­und króna lág­marks­laun sem eiga að hækka um rúm­lega næstu þrjú árin og enda í 425 þús­und. 

Söluhagnaður hlutabréfa bætist við 830 milljóna arð

Eins og Stundin fjallað um fyrir helgi hafa eig­endur KEA-hót­ela hagn­ast vel á hót­el­keðj­unni á liðnum og skiptu fjórir eig­endur keðj­unnar, þeir Andri Gunn­ars­son, Páll L. Sig­ur­jóns­son, Fannar Ólafsson, Kristján M. Grét­ars­son og Þórður Kol­beins­son meðal ann­ars með sér nærri 1800 millj­ónum króna sem greiddar voru út úr sam­eig­in­legu eign­ar­halds­fé­lagi þeirra Trölla­hvönn ehf. árið 2017. Síð­ast­liðin 8 rekst­arár, frá 2010 til 2017, nemur hagn­aður KEAö-hót­ela rúm­lega 2 millj­örðum króna og hlut­haf­arnir hafa greitt út 830 millj­ónir króna í arð. Við bæt­ist svo sölu­hagn­aður af hluta­bréfum, eins og sá sem mynd­að­ist inni í Selen eða Trölla­hvönn árið 2017, og eins hagn­aður áður­nefndra fjög­urra hlut­hafa þegar þeir seldu Lands­bréfum hlut í KEA-hót­elum árið 2015.

„Við siglum í strand bara 
á fyrstu dög­unum“ 

KEA-hótel hafa því verið frá­bær fjár­fest­ing fyrir þess­ara ein­stak­linga og þeir hafa grætt vel á henni. Ein af spurn­ing­unum er hvort þessi gróði hafi meðal ann­ars verið vegna lágra launa starfs­manna KEA-hót­ela. 

Greiddi út 30 milljóna arð

Í við­tali við Morg­un­blaðið nú í mars sagði Páll Sig­ur­jóns­son meðal ann­ars: „Auðvitað virðum við verk­falls­bar­áttu starfs­fólks okkkar. En fyrir okkur sem rekstr­ar­að­ila þá er staðan auð­vitað háal­var­leg. Og við gerum þær kröfur til aðila að þeir fari að setj­ast niður til að semja.“

Í við­tali við fjöl­miðla árið 2015, þegar einnig voru horfur á verk­föllum, sagði Páll að loka þyrfti KEA-hót­elum ef til verk­falla kæmi: „Komi til alls­herj­ar­verk­falls hérna á þessu svæði, þá er það mjög ein­falt hvað ger­ist hjá okkur. Við siglum í strand bara á fyrstu dög­unum.“ Hagnaður KEA-hót­ela árið 2015 nam 250 millj­ónum og árið eftir, 2016, fór hagn­að­ur­inn upp í nærri 750 millj­ónir króna. 

Eftir að eign­ar­halds­fé­lag Páll hagn­að­ist um áður­nefndar 170 millj­ónir við sölu bréfa í KEA-hót­elum greiddi eign­ar­halds­fé­lag Páls út 30 millj­óna króna arð til hans en eft­ir­stöðvar hagn­að­ar­ins urðu eftir inni í félag­inu. 

Næsta verk­fallslota verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefur verið boðið á fimmtu­dag­inn kemur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár