Björt framtíð veltur á breyttri karlmennsku

Karlmenn, hvar sem er í heim­inum, verða að losa sig við þá til­finn­ingu að það sé þeirra hlut­verk að vernda konur. Þetta segir keníski stjórn­enda­ráð­gjaf­inn Pauline Muchina sem bendir á að vernd­inni fylgi oft kúgun, stjórnun og aðrir drottn­un­ar­til­burðir.

Björt framtíð veltur á breyttri karlmennsku
End­ur­skil­grein­ingar þörf Pauline Muchina, sem er alin upp í Kenía, segir að í mörgum sam­fé­lögum telj­ist karl­menn ekki til karl­manna, nema þeir séu ofbeld­is­hneigðir og sterkir. Þessar við­teknu hug­myndir um karl­mennsku grafi undan fjöl­skyldum, fyr­ir­tækjum og mögu­leikum þjóða til að sækja fram á við. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný teg­und karl­mennsku er for­senda far­sællar stjórn­unar alþjóð­legra fyr­ir­tækja eða stofn­ana og ekki bara þess, heldur er hún grund­völlur þess að heims­byggðin öll eigi bjarta fram­tíðin fyrir höndum. Þetta er mat keníska ráð­gjafans Pauline Muchina, gesta­kenn­ara í MPM-nám­inu við HR, þar sem hún kenndi á nám­skeið­inu verk­efna­stjórnun á fram­andi slóð. Pauline færir fyrir því rök að við­teknar karl­mennsku­hug­myndir grafi undan fjöl­skyldum, fyr­ir­tækjum og mögu­leikum þjóða til að sækja fram á við. Eina leiðin til að koma á rétt­læti og sjálf­bærri þróun sé að end­ur­skil­greina karl­mennsku frá grunni.

„Um allan heim hafa karl­menn alist upp í eitr­aðri karl­mennsku.“

Í fyr­ir­lestrum Pauline kom hug­takið nei­kvæð karl­mennska oft til tals. Hvernig skil­greinir hún hana, nei­kvæða karl­mennsku? „Um allan heim hafa karl­menn alist upp í eitr­aðri karl­mennsku. Í því felst sú trú að þú þurfir að vera árás­ar­gjarn til að vera karl­maður. Þú þurfir að van­virða annað fólk, sér­stak­lega konur, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár