Hátekjufólk er ánægðast með tekjuskattskerfið

Stig­hækk­andi tekju­skattur nýtur afger­andi stuðn­ings meðal almenn­ings á Íslandi sam­kvæmt könnun sem Maskína fram­kvæmdi fyrir Stundina. 73 pró­sent svar­enda eru óánægð með íslenska tekju­skatts­kerfið og mestur stuðn­ingur við flat­ara skatt­kerfi er meðal hátekju­fólks og kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hátekjufólk er ánægðast með tekjuskattskerfið
Tekju­hærri beri þyngri byrðar Nið­ur­stöður könn­unar Maskínu benda til þess að mik­ill meiri­hluti lands­manna sé hlynntur stig­hækk­andi tekju­skatts­kerfi. Mynd: Getty images

Aðeins um 12 pró­sent lands­manna eru ánægð með tekju­skatts­kerfið á Íslandi en 47 pró­sent eru óánægð. Óánægjan er afger­andi hjá lág­tekju- og milli­tekju­fólki en miklu minni hjá hátekju­fólki. Þetta er nið­ur­staða skoð­ana­könn­unar sem Maskína vann fyrir Stundina í jan­úar. 

Könnunin sýnir einnig um 73 pró­senta stuðn­ing meðal almenn­ings við stig­hækk­andi tekju­skatt þar sem háar tekjur eru skatt­lagðar af meiri þunga en lágar tekjur. Meiri­hluti kjós­enda allra flokka nema Sjálf­stæð­is­flokks­ins er hlynntur slíku kerfi.

Svar­endur Maskínu eru 1.410 tals­ins og koma úr Þjóðgátt fyr­ir­tæk­is­ins sem er pan­el­hópur fólks sem er dreg­inn handa­hófs­kennt úr þjóð­skrá. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu. 

Langmest ánægja með núver­andi tekju­skatts­kerfi er hjá hátekju­fólki, þeim svar­endum sem eru með meira en 1,2 millj­óna tekjur á mán­uði, en minnst ánægja er meðal þeirra sem lifa á tekjum undir 400 þús­und krónum. 22,2 pró­sent þeirra sem til­heyra hátekju­hópnum segj­ast almennt ánægð með tekju­skattS­kerfið en aðeins 7,4 pró­sent þeirra sem til­heyra lág­tekju­hópnum. 59,3 pró­sent lág­tekju­fólks­ins eru bein­línis óánægð með kerfið en helm­ingi færri úr hópi hátekju­manna eru óánægðir, eða 28 pró­sent. 

Alls vilja 72,8 pró­sent svar­enda að hæstu tekjur beri hærra tekju­skatts­hlut­fall en aðrar tekjur en aðeins 22,3 pró­sent eru mót­fallin því. Stuðn­ingur við flata kerfið er mestur meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins (47,3 pró­sent), Mið­flokks­ins (35,2 pró­sent) og Við­reisnar (31,7 pró­sent). Við sam­an­burð á afstöðu tekju­hópa kemur í ljós að stuðn­ingur við stig­hækk­andi tekju­skatt er minnstur meðal fólks­ins sem er með hæstu tekj­urnar en þó hátt í 60 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár